Vestfirðir - 09.11.2012, Blaðsíða 6
6 9 nóvember 2012
Jón Kr. Ólafsson söngvari á Bíldudal:
„Hef unnið eins og hundur í slori og grút í frystihúsinu“
Jón Kristján Ólafsson er fæddur á Bíldudal 22. ágúst 1940, í húsi sem nefnt var Nes. Flestir kannast við
Jón Ólafsson söngvara en fyrstu skref
sín sem söngvari steig hann í kirkjunni
á Bíldudal hjá prestinum, sr. Jóni Kr. Ís-
feld. Fimmtán ára var hann kominn úr
mútum og í kór kirkjunnar sem hann
svo stýrði frá sextánda ári. Kórstarfi
sinnti Jón Kristján af alúð fram undir
aldamótin síðustu.
Jón Kr. gerðist poppari 1962 er hann
gekk til liðs við hina rómuðu hljóm-
sveit Facon. Það samtarf entist ein sjö
ár og lauk 1969 með hinu vinsæla lagi:
„Ég er frjáls“. Þá var hann á besta aldri
og röddin aldrei betri svo hann flutti
sig um set til Reykjavíkur og hóf upp
raust sína á betri skemmtistöðum borg-
arinnar, svo sem Hótel Borg og Hótel
Sögu þar sem hann söng um nokkurra
ára skeið. Það var svo árið 1983 sem
SG-hljómplötur gáfu út stóra plötu
með Jóni Kr. þar sem hann syngur
kunn einsöngslög við undirleik Ólafs
Vignis Albertssonar. Um þá plötu sagði
Árni Johnsen í grein í Morgunblað-
inu: ,,Í gullabúi íslenskrar menningar
er margur gimsteinn frá náttúrunnar
hendi og einn af þeim er Jón Kr.
Ólafsson frá Bíldudal. Ljóðasöngvari
af guðsnáð með fallega rödd og mikla
smekkvísi í lagavali, en á nýútkominni
hljómplötu hans frá SG hljómplötum
syngur hann kunn íslensk einsöngslög.
Jón Kr. hefur þétta og fagra rödd sem
hann beitir listilega án þess að hafa
fengið sérstaka skólun í heimi tónlist-
arskólanna.“
-Var þessi titill, söngvari, sem hefur
orðið fastur við þig eitthvað sem þú
valdir sjálfur?
,,Ég hef sungið alla mína hunds- og
kattartíð, fékk það með móðurmjólk-
inni en mamma var úr Arnarfirðinum.
Hún hafði fína sópranrödd en fékk
engin tækifæri til að syngja, það var
ekki verið að hlaupa í þá tíð á eftir fólki
eins og gert er í dag. Ég er söngvari, það
er staðreynd, og vinur minn Hafliði
Magnússon kallaði mig aldrei neitt
annað. Þegar Hafliði var búinn að
standa í slorhaugnum alla daga alveg
upp undir axlir, sagði hann stundum
daginn eftir að hann hefði komið við og
fengið sér söngvaraskammt. Þá hafði
hann komið við hjá mér.“
-Þú hefur búið á Bíldudal alla tíð. Þín
söngrödd hefur þá fyrst og fremst nýst
þér í Arnarfirðinum, eða hvað?
,,Ég söng í kirkjukórnum á Bíldu-
dal í áratugi, en hætti því árið 1995.
Ég lenti í styrjöld við kirkjuráðið á
Bíldudal, hef sennilega verið búinn
að vinna allt of mikið fyrir þetta lið í
sjálfboðavinnu. Ég var búinn að taka
allan kirkjugarðinn í gegn, vinna hann
upp um kvöldin og helgar. Einnig hafði
ég bjargað listaverkum úr kirkjunni
fyrir milljónir króna. Árið 1977 sendi
ég altaristöfluna í Bíldudalskirkju sem
Þórarinn B. Þorláksson málaði 1916 í
viðgerð til Reykjavíkur hjá Franz Ponsi
sem var fyrsti forvörðurinn sem þjóðin
eignaðist. Þá var hann að gera við alt-
aristöfluna í Dómkirkjunni, sem var
að verða ónýt, einn mygluhaugur á
veggnum!
Ég fékk engar skammir fyrir þetta þá,
það kom seinna en það hlýtur að vera
mikið starf að verða sér til skammar
fyrst það tók svona langan tíma að
þeirra mati. Ég kem samt enn í kirkju,
því ég fylgi vinum mínum til grafar.
Ég þarf heldur ekkert á því að halda að
fara í kirkju,ég kann þetta allt sem þar
er gert, þarf enga viðbót við það sem
ég lærði hjá nafna mínum, honum séra
Jóni Kr. Ísfeld.”
Söngvarinn reisti skömmu fyrir
aldamótin minnisvarða um hjónin
Auði og Jón Kr. Ísfeld á kirkjulóðinni
á Bíldudal. Jón Kr. segir að um þann
atburð að þar hafi orðið einhver mestu
læti sem um getur á safnaðarnefndar-
fundi á Bíldudal. ,,Sóknarnefndin hafði
útvegað mér stað fyrir minningarstein-
inn að sunnanverðu á lóðinni, en þar
hefðu náttúrulega fáir getað litið hann
augum. Ég setti hann hins vegar niður
að norðanverðu, þar sem hann blasti
við öllum sem fram hjá gengu. Það var
nóg til þess að allt varð snarvitlaust. Ég
var sem betur fer staddur í Reykjavík
þegar þessi ósköp gengu yfir og var því
ekki á þessum fundi. Það vantar ekki
gauraganginn í liðið þegar það heldur
að það eigi við!“
-Ekki hefurðu lifað af söng alla þína
tíð?
,,Nei, ekki aldeilis. Hef unnið eins og
hundur í slori og grút í frystihúsinu
og rækjuverksmiðjunni meðan þeim
tókst að halda þessum atvinnutækjum
gangandi. Svo málaði ég hús í 10 ár eða
lengur, gerði hreint fyrir fólk og margt
fleira. Ég hef ekki, góði minn, verið
með göt á vösunum fyrir þá peninga
sem ég hef fengið fyrir það að syn-
gja.En ég hef kannski glatt einhverja
gegnum lífið á þessum vettvangi með
söngnum, og það er þá bara gott.“
-Ertu sáttur við þitt lífshlaup þegar þú
lítur til baka?
,,Já, já, og verið minnar gæfu smiður.
Hljómsveitin hætti vegna þess að
meðlimir hennar voru farnir að
tvístrast, þá var eg 29 ára. Ég fór suður
að syngja með hljómsveit Jóns Sigurðs-
sonar bankamanns og var þar nokkrar
vikur í senn. Ég fór þá heim á Bíldudal
til þess að anda að mér þessu sjávarlofti
hér sem á sér engan líka. Fyrir sun-
nan kynntist ég mönnum eins Hauki
Morthens, Ragnari Bjarnasyni, Sigfúsi
Halldórssyni, Svavari Gests og fleirum.
Það var skemmtilegur tími.“
-Það liggur sá orðrómur á Bíldudal að
þar haldist engin atvinnustarfsemi eða
fyrirtæki gangandi til lengri tíma, allt
leggi upp laupana, frystihúsið gjald-
þrota og fleira sem ekki er til þess
fallið að draga fólk vestur til búsetu.
Er þetta satt, á þessi umræða við rök
að styðjast?
,,Helmingurinn af því sem er sagt og
hefur verið sagt um Bíldudal er hrein
lygi! Hvaða fyrirtæki á voru landi hafa
ekki verið að hætta, snúa tánum upp?
Hefur þetta gáfaða hyski sem stjórnar
öllu hér á landi ekki verið að loka öllu
sem hægt er með góðu móti. Lands-
bankinn á að heita ríkisbanki en er nú
horfinn frá Bíldudal, Pósturinn er að
draga stórlega saman sína þjónustu,
er að hætta á Bíldudal, það einfald-
lega gengur ekki að einkareka alla
skapaða hluti hér á landi. Auðvitað
átti ríkisvaldið að sjá um reksturinn
á Póstinum, og vera með samrekstur
á póstgumsinu með bankanum. Það
er þvílíkt kjaftæði að það sé verið að
spara með þessu. Bíldudalur hefur
fengið mörg þung högg gegnum tíðina
í atvinnulífinu, og ég sé ekki að það sé
neitt verið að draga úr því. Hvar eru
þessir höfðingjar sem sitja á Alþingi
fyrir okkur? Eini þingmaðurinn sem
hefur verið með mótbárur, en nafni
minn Jón Bjarnason og einhver kona
á Alþingi sem ég veit engin deildi á.
Höfuðborgarsvæðið er að mergsjúga
allt landið, það er ekki flókið.
Prímadonnurnar í Landsbankanum
á Patreksfirði koma í klukkutíma einu
sinni í viku til að þjóna okkur Bíldæl-
ingum, það dugir okkar pent.”
-Hvernig á að þínu mati að snúa
þessari óheillaþróun við sem felst í
fækkun íbúa á Vestfjörðum?
„Vegirnir fyrir vestan eru fyrir
löngu orðnir antik, sumir bara eins
og hestaslóðir og tæplega það, og ég
sé ekki að það verði þar nein breyting
á. Það vill enginn ferðast um þessar
hestakerruslóðir sem eru kallaðar
vegir. Hvaða hafa þessir snillingar
sem stjórna landinu oft fært göng um
Hrafnseyrarheiði aftur fyrir í forgangs-
röðinni áratugum saman?. Allt í einu
varð svo gífurlega mikilvægt að byrja
á jarðgöngum gegnum Vaðlaheiði fyrir
norðan, þau eru ekki mikilvæg en það
eru Hrafnseyrarheiðargöngin. Við á
Bíldudal þurfum að sækja þjónustu
á norðurhluta Vestfjarða yfir heiði
sem teppist í fyrstu snjóum. Kannski
Vaðlaheiði hafi verið teppt í tvo til
þrjá daga á síðasta ári. Göng milli
Arnarfjarðar og Dýrafjarðar eru líka
nauðsynleg fyrir þá vestur við Djúp,
þeir fá viðskipti og svæðið verður meira
eitt atvinnusvæði. Það kæmi hljóð úr
horni ef Reykvíkingar fengu svona
þjónustu!
Nú er komin stór verksmiðja á
Bíldudal sem ekki er að vinna fisk,
Hafkalk, og veitir mörgum vinnu og
það er alveg bullandi útflutningur á
framleiðslunni, mikill markaður. Það
er auðvitað ánægjulegt. Við Vest-
firðingar þurfum hins vegar að gera
betur og fá fleiri svona karla á þing eins
og Ólaf heitinn Þórðarson í Súgunda-
firði og Matthías Bjarnason á Ísafirði
sem hugsuðu um okkur smælingjana,”
segir Jón Kr. Ólafsson á Bíldudal.
Gistihús Keavíkur (Bed&Breakfast Keavik Airport)
Valhallarbraut 761 - 235 Reykjanesbæ
Sími 426 5000 - gistihus@internet.is
Frítt - Geymsla á bíl
Frítt - Ferðir til og frá ugvelli
Frítt - Þráðlaust internet
Stór og þægileg herbergi
Morgunmatur innifalinn
Gervihnattasjónvarp
Baðherbergi í öllum herbergjum
Ódýr bílaþrif
frá 1 til 6 manna herbergi
Ertu að fara til útlanda?
Afhverju ekki að losna við stress og læti og gista hjá okkur nóttina fyrir eða eftir
ug? Við geymum bílinn fyrir þig frítt, skutlum þér á ugvöllinn og sækjum þig
aftur. Oft er það ódýrara en bílageymslugjaldið á Leifsstöð.
Hafðu endilega samband...
www.bbkeavik.com
Jón Kr. ólafsson söngvari á tónleikum honum til heiðurs á sjötugsafmæli hans.