Vestfirðir - 09.11.2012, Page 11

Vestfirðir - 09.11.2012, Page 11
VATNSFJÖRÐUR Í ÍSAFIRÐI Þættir úr sögu höfuðbóls og kirkjustaðar Guðrún Ása Grímsdóttir tók saman Í þessu undirstöðuriti, sem ætti að vera ofarlega á lista hjá öllu áhugafólki um sögu Íslands, er fjallað um einn þekktasta sögustað frá upphafi byggðar í landinu og allt fram á okkar daga. Þess er gætt að almenningur geti haft af henni full not ásamt fræðimönnum, en höfundur tekur mið af nýjustu fornleifarannsóknum á staðnum og öllum tiltækum rituðum heimildum, bæði prentuðum og óprentuðum. Saga Vatnsfjarðar er saga Íslands í smækkaðri mynd. Þar hafa búið margir af merkustu Íslendingum fyrr og síðar og staðurinn skipar mikilvægan sess í Íslandssögunni. Síra Baldur Vilhelmsson er síðasti ábúandi og prestur sem við sögu kemur í Vatnsfjarðarbók og situr hann staðinn enn á friðstóli ásamt eiginkonu sinni Ólafíu Salvarsdóttur. Í ritnefnd verksins eru þeir prófessorarnir Torfi H. Tuliníus, sem er ritstjóri og Már Jónsson ásamt síra Baldri sem átti frumkvæði að verkinu. Bókin er komin í allar helstu bókaverslanir landsins og til sölu á www.vestfirska.is netversluninni. www.vestfirska.is

x

Vestfirðir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.