Fréttir - Eyjafréttir - 18.11.2004, Blaðsíða 2
2
Fréttir / Fimmtudagur 18. nóvember 2004
Viska skrifar
undir sam-
starfssamning
Þann 12. nóvember sl. var undir-
ritaður samstarfssamningur milli
Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og
símenntunarmiðstöðva innan Kvasis,
samtaka fræðslu- og símenntunarmið-
stöðva á landsbyggðinni, en þær eru:
Farskólinn - miðstöð símenntunar
Norðurlandi Vestra, Fræðslumiðstöð
Vestfjarða, Fræþing - Fræðslumiðstöð
Þingeyinga, Fræðslunet Auslurlands,
Fræðslunet Suðurlands, Miðstöð sí-
menntunar á Suðumesjum, Símennt-
unarmiðstöð Eyjafjarðar, Símennt-
unarmiðstöðin á Vesturlandi, Viska -
fræðslu- og símenntunarmiðstöð
Vestmannaeyja.
Meginmarkmiðið með samstafmu
er að stuðla að því að fólk á vinnu-
markaði með litla grunnmenntun, fólk
sem horfið hefur frá námi án þess að
ljúka prófí frá framhaldsskóla,
innflytjendur og aðrir sambærilegir
hópar fái betri tækifæri til að afla sér
menntunar eða bæta stöðu sína á
vinnumarkaði. Þetta mikilvæga verk-
efni verður unnið í samstarfi við
fyrirtæki og stofnanir með það að
markmiði að styrkja samkeppnis-
hæfni samstarfsaðilanna. Aðrir sam-
starfsaðilar Fræðslumiðstöðvarinnar
geta orðið þeir sem vinna að eða
bjóða upp á ffæðslu íyrir markhópinn
innan eða utan hefðbundinna
menntastofnana. Til að árangur verði
sem bestur munu aðilar samningsins
byggja upp sameiginlegt gæðakerfi
með það að markmiði að votta gæði.
Mark Schulte
lék allan
leikinn með
Crewe
Mark Schulte lék allan leikinn með
varaliði Crewe en Schulte hefur verið
til reynslu hjá enska 1. deildarliðinu.
Crewe og ÍBV eiga í góðu samstarfi
en ÍBV hefur notið góðs af því
undanfarin tvö ár þar sem þeir Ian
Jeffs, Matt Gamer og Tom Betts hafa
komið til Eyja frá Crewe.
Upphaflega stóð til að Schulte yrði
hjá Crewe í viku og myndi svo færa
sig yfir til Belgíu til þarlendra liða en
stjóri Crewe, Dario Gradi vildi halda
Bandaríkjamanninum lengur hjá sér.
Varaliðsleikurinn gegn Notts County
endaði 2:0 fyrir Crewe.
Schulte er samt sem áður samn-
ingsbundinn ÍBV, skrifaði undir eins
árs samning við IBV á dögunum.
Bæjarstjórnarfundurinn á þriðjudaginn:
Andrés segir að Lúðvík hafí
slitið vinstra samstarfinu
Guðrún og Stefán harma ósannar árásir
HELGI Ólafsson er í liði Taflfélags Vestmannaeyja.
✓
Islandsmótið í skák um helgina:
Taflfélag Vm stefnir á
toppbaráttu í 1. deild
Segja má að til uppgjörs hafi komið
milli fyrrum samstarífsaðila í bæjar-
stjóm, annars vegar Andrésar
Sigmundssonar og fulltrúa Vest-
mannaeyjalistans.
Svohljóðandi bókun barst frá
Andrési Sigmundssyni, bæjarfulltrúa:
„Vestmannaeyjalistinn undir Lúðvíks
Bergvinssonar hefur slitið vinstra
samstarfinu við Framsóknarflokkinn í
bæjarstjóm Vestmannaeyja með
tilvísan til trúnaðarbrests við undir-
ritaðan. I sjálfu sér er ekkert við það
að athuga að stjómmálamaður á borð
við Lúðvík Bergvinsson skipti um
skoðun frá vinstri til hægri, en á hinn
bóginn er ólíðandi að það sé gert með
upplognum tilefnum og með því að
vega að mannorði annarra manna.
Staðreyndin er sú að Lúðvík hafði
undirbúið vandlega aðförina að undir-
rituðum enda var hann þegar eða 10
mínútum eftir að fundi bæjarráðs lauk
þann 12. nóvember sl. búinn að
mynda meirihluta með Sjálfstæðis-
fiokknum, gefa því samstarfi nafn og
skipa í nefndir. Það er ekki annað að
sjá af þeim atburðum sem orðið hafa
síðustu daga í Eyjum heldur en þeir
kumpánar, Lúðvík og leiðtogi Sjálf-
stæðisflokksins, hafi hannað atburða-
rásina frá upphafi til enda. Þar með
hefur Lúðvík stöðvað samvinnu
félagshyggjuaflanna í Vestmanna-
eyjum, rofið meirihlutasamstarf sem
verið hefur „með miklum ágætum"
eins og hann hefur orðað það sjálfur.
Þegar meirihluti V-listans og
Framsóknarflokks tók til starfa varð
STEFÁN er ekki sáttur við fyrrum
samherja.
strax ljóst að nú skyldu verkin tala.
Ráðist var beint að rótum stöðnunar
og flokkræðis sem hafði haft lamandi
áhrif á bæjarfélagið undangenginn
áratug. Stjómkerfið var stokkað upp
og í starf bæjarstjóra var ráðinn
fagmaður með víðtæka reynslu af
stjómun og rekstri. Reynslan hefur
sýnt að nýjum bæjarstjóra varð treyst
til að stýra bæjarfélaginu með hags-
muni allra bæjarbúa að leiðarljósi en
ekki aðeins þeirra sem bám réttu
flokksskírteinin.
Það er öllum ljóst að meirihluti
Framsóknarflokksins og V-lista hefur
hleypt nýju lífi í bæjarmálin, hvemig
sem á það er litið. Opin stjómsýsla,
vönduð og fagleg vinnubrögð og
hagur bæjarbúa allra hafður að
leiðarljósi.
Meirihluti bæjarstjómar er nú fer ífá
er vinnu- og kraftmesti meirihluti er
verið hefur j Vestmannaeyjum í
langan tíma. f tíð þessa meirihluta
hefur tekist að lækka skuldir bæjarins.
Skipulagsbreytingar á yfirstjóm
bæjarins sem og í bæjarkerfinu sem
skila sér með hagkvæmari rekstri.
Félagsmálin og þjónusta við íbúa
bæjarins hefur stöðugt batnað.
Fyrirhuguð er nýbygging á sex deilda
leikskóla og svona mætti lengi telja.
Að stöðva þá þróun er þegar var hafin
í Vestmannaeyjum er alfarið á ábyrgð
bæjarfulltrúans og þingmanns Sam-
fylkingarinnar Lúðvíks Bergvins-
sonar.
Ákvörðun Lúðvíks um að slíta
meirihlutasamstarfinu og leiða
harðsvímð hægriöfl aftur til valda í
Eyjum em vonbrigði sem særir allt
vinstra- og félagshyggjufólk í Vest-
mannaeyjum. Samstarf hvort sem það
er í þátíð eða nútíð sem byggt er á
óheilindum er fyrirfram dæmt til að
mistakast.“
Bókun Guðrúnar og Stefáns
Svohljóðandi bókun barst frá Stefáni
Jónassyni og Guðrúnu Erlingsdóttur:
Við undirritaðir bæjarfulltrúar Vest-
mannaeyjalistans hörmum þær
ósönnu og ósmekklegu ásakanir sem
bomar hafa verið á Lúðvík Berg-
vinsson bæjarfulltrúa Vestmanaeyja-
listans, enda eiga þær sér enga stoð í
raunveruleikanum. Bæjarfulltrúar
Vestmannaeyjalistans unnu af fullum
heilindum í samstarfi við Andrés
Sigmundsson, allir sem einn.
Guðrún Erlingsdóttir og Stefán
Jónasson bœjarfidltrúar
Vestmannaeyjalistans
Um helgina fer fram fyrri umferð
íslandsmótsins í skák og sendir
Taflfélag Vestmannaeyja þrjú lið til
keppni, eitt í I. deild og tvö í 4. deild
en seinni umferðin verður svo tefld í
mars á næsta ári.
Mikill uppgangur hefur verið í starfi
TV undanfarið og í fyrra var liðið í
fyrsta sinn í efstu deild og endaði
Islandsmótið þá í fjórða sæti en
Magnús Matthíasson, formaður TV
sagði í samtali við Fréttir að stefnan
væri sett á betri árangur í ár.
„Við stefnum á toppbaráttuna í ár,
engin spuming enda tel ég okkur vera
með sterka sveit í ár. Fyrstan ber að
nefna Helga Ólafsson sem teflir nú í
fyrsta sinn fyrir okkur Eyjamenn á
íslandsmótinu síðan hann gekk í raðir
okkar. Þá era í sveitinni Bjöm Ivar
Karlsson, danski stórmeistarinn Hen-
rik Danielsen, Frakkinn Igor Nataf,
Stefán Páll Sigurjónsson, Páll Agnar
Þórarinsson og auk þeirra tveir til þrír
sem á eftir að velja.“
Alls era umferðimar sjö í íslands-
mótinu en átta lið skipa efstu þrjár
deildimar. í fyrri umferðinni eru
tefldar fjórar umferðir og um helgina
mun TV tefla gegn Taflfélagi Garða-
bæjar, a- og b-sveit Skákfélags
Akureyrar og a-sveit Hellis. í síðari
umferðinni mætir TV svo a- og b-
sveit Taflfélags Reykjavíkur og svo
b-sveit Hellis.
Telft verður í húsakynnum
Menntaskólans í Hamrahlíð og er
búist við um 400 manns við tafl-
borðin. Þá eiga flestir von á hörku-
spennandi keppni í 1. deild þar sem
Hrókurinn, sem hafði yfirburði yfir
önnur taflfélög, hefur lagt upp
laupana.
Honda eru auðvitað bestu bflar í heimi
segir Gunnar Darri Adólfsson í Bragganum sem er með umboð fyrir Honda og Peugeot bfla
Bragginn bauð upp á nýja bíla á
hlægilegu verði á laugardaginn en
Bragginn er með umboð fyrir Honda
og Peugeot bíla.
Þama var verið að bjóða upp á
reynsluakstursbíla en Gunnar Darri
Adólfsson, eigandi Braggans hefur
verið með umboðið í tæp sjö ár. ,Úg
byrjaði með þessa bíla 1998 en af
fullri alvöra tveimur áram seinna."
Darri, eins og hann er kallaður
segir að talsverð umferð hafi verið
hjá þeim á laugardaginn. „Við eram
þegar búnir að athenda fjóra bíla og
tveir til þrír verða afhendr til
viðbótar þannig að við eram mjög
ánægðir með helgina."
Bragginn hefur undanfarin ár
verið með nýbreytni hér í Eyjum en
þeir eiga alltaf bíla til á lager. „Þetta
er eitthvað sem vantaði algjörlega í
Eyjum. Það sést kannski best á
tjölda Honda-bifreiða hér í Eyjum
sem í dag er mun meiri en áður en
viðbyrjuðum. Þá var hægt að telja
Honda bíla á fingram annarrar
handar en í dag eru þeir rúmlega eitt
hundrað. Svo era Honda bílamir
auðvitað bestu bílamir í heimi,"
sagði Darri og glottir.
„Honda Accord var t.d. valinn
áreiðanlegasti bílinn enda era þeir
rómaðir fyrir áreiðanleika, mjög lága
bilanatíðni og hagkvæmni í rekstri."
Þeir hjá Bragganum leggja mikla
áherslu á að þar séu fagmenn á ferð,
hvort sem er í réttingum og sprautun
eða bílasölu. „Við veitum líka góða
þjónustu, ef fólk kaupir bíl hjá okkur
í dag þá getur það alltaf leitað til
okkar ef eitthvað kemur upp á og þá
þarf ekki að senda bílinn til Reykja-
víkur í viðgerð. Það gerist líka æ
oftar að hingað kemur fólk, skoðar
bfl og kaupir hann svo daginn eftir.
Þannig er nútíminn, þú verður
einfaldlega að vera með bfla á lager
til þess að veita eðlilega þjónustu."
DARRI er stoltur af Hondunni.
FRÉTTIR
(Itgdiuuli: Kyjiisýn clil'. 480ÍJ78-054Í) - Ypstnmnnnoyjiim. Hitstjóri: Ómar (íanlarsson.
Blaðaineim: Sigui'sveinn Þórðarson, Gnðlýörg Signrgeirsdóttir. íþróttir: Júlíus Ingason.
Ábyrgðarmenn: OmarGarðarsson & Gisli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjasvn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47.
Símai'. 481 1300 & 481 Till). Mvndriti: 481-1393. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjafrettir.is.
Veffang http/Avww.eyjafrettir.is
FHETTI lt koma út aíla liinnitudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig i lausasölu á Kletti,
Tvistinnm, Toppnum, Vöruval, Herjólfi, ílughafnarveisluninni, Kríinunni, Isjakanum,
Bónnsvídeó, verslun 11-11, Skýlinu i Friðarhöfn og i Jolla i Hafnarfirði og afgreiðslu
Hejrólfs í I>orlákshöfiL FHÉ'ITI li eni prentaðar í 3000 eintökuui. FHÉTI’I H em aðilar að
Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaðiL Eftirþrpntun, hljóðritnn, notkiin ljósmynda og
annaðeróheimilt nema heimilda sé getið.