Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.11.2004, Blaðsíða 15

Fréttir - Eyjafréttir - 18.11.2004, Blaðsíða 15
Fréttir / Fimmtudagur 18. nóvember 2004 15 Þ- Alyktanir á aðalfundi SASS: Samgöngur og heilbrigðis- mál fyiirferðarmikil Margir ályktanir voru sam- þykktar á aðalfundi SASS og voru samgöngur og heil- brigðismál áberandi. I einni þeirra segir að geðheil- brigðisþjónusta sé ein af gmnnstoðum heilbrigðiskerfisins og þurfi að vera aðgengileg fólki í heimabyggð. „Það er óviðunandi að þeir íbúar á Suðurlandi sem eiga við geðsjúkdóma að stríða þurfí að sækja alla geðþjónustu til Reykjavíkur. Geðheilbrigðisþjónusta er á verksviði ríkisins og því telur aðalfundur SASS, haldinn í Vestmannaeyjum 13. og 14. nóvember 2004, nauðsynlegt að komið verði upp skipulagðri geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu. Fundurinn skorar á þing- menn Suðurlands og Alþingi að setja fjármagn í uppbyggingu geðheil- brigðisþjónustu, íbúum Suðurlands til hagsbóta. Skapa þarf fötluðu fólki aðstæður til þess að geta verið virkir þátttakendur í samfélaginu og geta búið við sambærileg lífskjör og aðrir hópar samfé- lagsins. Aðgengi í víðri merkingu er lykillinn að slíkum aðstæðum. Tekur það m.a. til ferlimála, búsetumöguleika, aðgangs að menntun og störf- um, heilbrigðisþjónustu, tómstundum, menningu og afþreyingu.“ Þá er skorað á sveitarfélög á Suðurlandi að leggja sitt af mörkum til að gera fötluðu fólki mögulegt að njóta sömu tækifæra og aðrir íbúar. Skorað var enn og aftur á stjómvöld að tryggja til frambúðar stöðu sálfræðings við heilsugæslustöðvamar á Suðurlandi. „Sú óvissa sem árlega hefur ríkt um málið er með öllu óþolandi og löngu tímabært að festa þjónustuna til frambúðar,“ segir í ályktuninni. Atvinnumál og samgöngur Því var beint til stjómar Atvinnuþró- unarsjóðs Suðurlands að í tengslum við endurskoðun á starfsemi SASS fari fram endurskoðun á hlutverki og starfi Atvinnuþróunarsjóðs Suður- lands. Markmiðið með endurskoð- uninni er að samræma starfsemi sjóðsins, enn frekar en orðið er, þeirri þróun sem átt hefur sér stað undanfarin ár í stoðkerfi nýsköpunar og á lánamarkaði á Islandi. Samþykkt var ályktun um sam- göngumál sem byggð er á skýrslu Samgöngunefndar SASS : 1. Almennar aðgerðir A Framlög dl samgöngumála Samgöngur em einn mikilvægasti þátturinn í gmnngerð nútímasam- félags. Mikilvægi þeirra hefur vaxið gríðarlega á undanfömum ámm og ekkert lát virðist á þeirri þróun. Atvinnulífið hefur breyst vemlega og krefst þess að möguleikar á að fara á milli staða með skjótum og ömggum hætti séu fyrir hendi. Einnig er augljóst að góðar samgöngur hafa mikla þýðingu íyrir þróun byggðar í landinu og mikilvægt er að veija íjármunum til að bæta samgöngur til staða sem gegna mikilvægu efnahagslegu hlutverki fyrir þjóðfélagið í heild. Þá em úrbætur í samgöngumálum ekki síst mikilvægar til að tryggja aukið umferðaröryggi. Nefndin bendir á að samgönguframkvæmdir em, þegar á heildina er litið, hagvæmar íyrir þjóðfélagið og draga, þegar allt kemur til alls, úr rekstrarútgjöldum hins opinbera, fyrirtækja og almennings. Eðlileg ályktun af þessu er sú að nauðsynlegt sé og skynsamlegt að veita enn meira fjármagni til samgöngumála í framtíðinni og fullkomlega óskiljanlegt að draga þar saman seglin eins og nú stendur fyrir dymm. Því er hvatt til þess að framlög til samgöngumála verði stóraukin á næstu ámm. B Breytt vinnubrögð. Nefndin leggur til að öllu vinnuferli við ákvarðanir um framkvæmdir í samgöngumálum verði breytt. I fyrsta lagi telur nefndin að þingmenn eigi ekki að koma jafn mikið að ákvörðunum um einstakar samgönguframkvæmdir eins og nú er. Niður- staðan er iðulega sú að litlum fjármunum er skipt á of margar fram- kvæmdir. Það er skoðun nefndarinnar að þingmenn eigi að einbeita sér að löggjafarstarfinu þar sem fer fram heildarstefnumótun í samgöngu- málum og einnig að gerð fjárlaga, þar sem ákveðið er hve miklum fjár- munum skal varið til samgöngu- framkvæmda hveiju sinni, en ákvarðanir um hvemig þeim skuli varið, verði í höndum fagaðila. í öðru lagi þá telur nefndin æskilegt að beina kröftunum að færri og þá stærri framkvæmdum í einu en nú er gert. Nefndin telur nokkuð ljóst að með því að dreifa fjármagni á margar, smáar framkvæmdir samtímis, þá nýtist fjármunimir illa þegar á heildina er Iitið. I þriðja lagi bendir nefndin á að óskynsamlegt sé að skipta ffamlögum til samgöngumála eftir kjördæmum og eðlilegra væri að horfa á landið í heild og beina fjármunum í þær ffamkvæmdir sem eru brýnastar hverju sinni. Samráð við sveitarfélög Nefndin leggur áherslu á að við töku ákvarðana verði haft náið samráð við sveitarfélögin sem í hlut eiga bæði vegna þess að ákvarðanimar varða íbúa þeirra mestu og einnig vegna staðþekkingar sem þar er fyrir hendi. í því sambandi gagnrýnir nefndin harðlega skipan starfshóps á vegum umhverfisráðuneytis og samgöngu- ráðuneytis sem á að gera tiilögur um hvaða vegir og slóðar í óbyggðum eigi að teljast til vega, án nokkurs samráðs við viðkomandi sveitarfélög sem fara með skipulagsmálin. Eðlilegt hefði verið að sveitarfélögin hefðu tilnefnt fulltrúa í þennan starfshóp. Að áliti nefndarinnar væri skynsamfegt að fela Vegagerðinni og sambærilegum stofnunum ákvörðunarvaldið, sem tækju slíkar ákvarðanir á faglegum gmndvelli. Hver sem niðurstaðan yrði er ljóst að setja yrði ákveðinn ramma og skilyrði um slíkt ákvörðunartökuferli og að eftirlit yrði haft með því að faglega verði staðið að. Vegna þeirra sjónarmiða sem hér hafa verið rakin leggur nefndin til að öll vinnubrögð við áætlanir, ákvarð- anir og framkvæmdir við sam- göngumannvirki verði tekin til gagn- gerðrar endurskoðunar. D Auknar rannsóknir Þegar samgöngunefnd SASS hóf störf íyrir tveimur áram kom nefndarmönnum mjög á óvart að umferðarmælingar og líkön byggð á þeim virtust í skötulíki. Ur því mun hafa verið bætt að nokkra. Um algjört grandvallaratriði er að ræða ef taka á ákvarðanir á faglegum forsendum þannig að fjáfestingar nýtist sem best. Þá er einnig mjög mikilvægt að gera nauðsynlegar rannsóknir þegar velja þarf á milli mismunandi kosta. Það á t.d. við um samgöngur til Vestmannaeyja. Þar koma nokkrir kostir til greina, þ.e. jarðgöng, ferjuhöfn í Bakkafjöra eða styrking núverandi samgönguleiða. Þegar um jafn dýrar aðgerðir er að ræða er nauðsynlegt að ítarlegar rannsóknir séu gerðar áður en ákvarðanir era teknar. Sama gildir um hugsanlegjarðgöngígegnum Reynisfjall. Þá bendir nefndin á að rétt væri að rannsaka áhrif þess á vegakerfið að landflutningar hafa tekið við af flutningum á sjó. Einnig er bent á nauðsyn þess að gera framtíðaráætlanir um uppbyggingu um- ferðarmannvirkja í ljósi þeirra upplýsinga og rannsókna sem fyrir liggja. I þessu sambandi er t.d. bent á spá um fjölgun erlendra ferðamanna þar sem gert er ráð fyrir að árið 2020 verði þeir á bilinu 600 þúsund til 1 milljón, en nú koma um 300 þúsund ferðamenn til landsins. Þessa spá þarf að taka með í reikninginn við uppbyggingu samgangna til helstu ferðamannastaða á landinu. Lagt er til að mun meiri fjármunum verði varið á næstu áram til rannsókna í samgöngumálum og við áætlanagerð verði höfð hliðsjón af ítarlegum umferðarspám. Áherslur 1 samgöngum á Suðuriandi Nefndin leggur til að lögð verði megináhersla á eftirfarandi sam- gönguumbætur á Suðurlandi á næstu áram: a. Endurbætur Suðurlandsvegar á milli Selfoss og Reykjavíkur, aukið Ijármagn til samgöngumannvirkja á Suðurlandi, uppbygging tengi- og safnvega og samgöngur til Vest- mannaeyja. ,,Á undanfömum áram, hafa úrbæmr á samgöngum til Vest- mannaeyja verið mjög til umljöllunar. Ýmsirkostir hafa verið ræddir, m.a. hafa farið fram framrannsóknir á möguleikum og hagkvæmni jarðganga. Niðurstöður jarðfræðirann- sókna benda til að jarðgöng séu raunhæfur kostur en óljóst hvort hagkvæmni sé til staðar. Þó hefur verið bent á greinilegar misfellur í þeim hagkvæmniathugunum sem gerðar hafa verið og sem skipta sköpum um hvort skynsamlegt sé að ráðast í framkvæmdir. Því er brýnt að gera viðamikla hagkvæmniathugun til að fá úr þessu skorið. Óviðunandi ástand ríkir nú í samgöngum við Vestmannaeyjar. Nauðsynlegt er að gera úrbætur í þeim efnum nú þegar. Styrkja þarf strax bæði flugsamgöngur og ferjusiglingar með ijölgun ferða. Jafnframt þarf að gera rannsóknir á varanlegum úrbótum, bæði á möguleikum oghag-kvæmni jarðganga sem og á byggingu feijuhafnar í Bakkaljöra. Lögð er rík áhersla á að íjármunir verði tryggðir þegar á næsta ári til þessara rannsókna," segir skýrslunni. AFLAKLÓ: Arnþór Sigurðsson, Addi Jelló, er aflamaður ársins hjá SJÓVE. Innanfélagsmót SJÓVE: Arnþór stóð uppi sem aflamaður ársins Fyrir skömmu fór fram innanfélags- og firmakeppni SJÓVE og vora þátttakendur um 20. Alls drógu keppendur 2651 kg og var Jóhannes Sigurðsson aflahæstur með 205 kg. Þá fékkst líka úr því skorið hver er aflamaður ársins og hann er Amþór Sigurðsson. Aflahæsti nýliðinn er Davíð Hlynsson, Guðrún Snæbjöms- dóttir hlaut Borgarhólsbikarinn og aflaskipstjóri ársins er Kjartan Már ívarsson. Þau era mörg verðlaunin sem era í boði í sjóstangveiðinni þar sem veittar era viðurkenningar fyrir fjölda fiska, stærsta fiskinn í hverri tegund, mestan heildarafla auk þess sem aflahæstu sveitir og bátar fá verðlaun. Kári Vigfússon dró stærsta þorskinn, keiluna og karfann, var þorskurinn hátt í tíu kfló og var stærsti fiskur mótsins. Ævar Þórisson dró stærstu ýsuna, Einar Birgir Einarsson stærsta ufsann, Sævar Þórsson stærstu lýsuna og Páll Pálsson stærstu lönguna. Sævar Þórsson var með flesta fiska, 136, Páll Pálsson 119 og Jóhannes Sigurðsson 118. Kári var með stærsta fiskinn 9,3 kg þorsk, Guðbjartur Gissurarson dró 8,9 kg þorsk og Páll Pálsson var með 7,1 kg þorsk. Jóhannes Sigurðsson var aflahæstur með 205 kg, Sævar Þórsson kom næstur með 200 kg og Páll Pálsson þriðji með 191 kg. Kári, Amþór og Ámi Karl Ingason vora allir með sex tegundir. Aflahæsti báturinn var Frú Magnhildur með 689 kg. eða 172 kg GUÐRÚN Snæbjörnsdóttir hlaut Borgarhólsbikarinn. á stöng, næst kom Sporður með 663 kg eða 166 kg á stöng og Mardís var í þriðja sæti með 450 kg eða 166 kg á stöng. I aflahæstu sveitinni vora Jóhannes Sigurðsson, Einar Birgir Einarsson og Ævar Þórisson og drógu þeir 192 kg. I aflahæstu sveitinni voru Jóhannes Sigurðsson, Einar Birgir Einarsson og Ævar Þórisson og drógu þeir 192 kg. Hér eru Einar Birgir og Jóhannes með bikarasafnið. b-

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.