Fréttir - Eyjafréttir - 18.11.2004, Page 11
10
Fréttir / Fimmtudagur 18. nóvember 2004 m Fl’Óttíl' / Fimmtudagur 18. nóvember2004
“Ep-
11
Nýr meirihluti í bæjarstjórn: Sjálfstæðismenn og Vestmannaeyjalistinn í eina sæng undir merkjum friðar og framfara
Arj^ar Sigurmundsson oddviti sjálfstæðismanna:
Akváðum að
slíðra sverðin
-og láta hagsmuni Vestmanna-
eyjabæjar vera númer eitt, tvö og þrjú
Amar Sigurmundsson oddviti
Sjálfstæðisflokksins tekur við
sem formaður bæjarráðs á
næsta fundi en hann skrifaði
undir samstarfssamninginn
„Friður-framfarir" fyrir hönd
D-lista. Hann segir að sam-
starfið leggist ágætlega í sig.
„Ég tel að staðan hafi einfaldlega
verið orðin þannig að báðir aðilar sáu
að það varð ekki lengra haldið á
þessari braut. Þama varð
trúnaðarbrestur og bæjarstjóm og
bæjarfélagið þurfti á allt öðru að
halda en þessu,“ sagði Amar í viðtali
við Fréttir.
Hann sagði að oddvitar sjálfstæðis-
manna og Vestmannaeyjalista hafi
rætt saman eftir
bæjarstjómarfundinn fimmtudaginn
4. nóvember þar sem upplýst var um
viljayfirlýsingu Andrésar
Sigmundssonar um kaup á
Fiskiðjuhúsinu.
„Eins og fram kom í ijölmiðlum
hitti ég Lúðvík Bergvinsson á þriðju-
deginum eftir fundinn. Ég óskaði eftir
þeim fundi til að ræða þá stöðu sem
upp var komin í bæjarstjóminni og
hvemig hægt væri að bregðast við.
Við ræddum stuttlega saman um við-
brögð, en ekki um nýjan meirihluta.“
Amar hélt áfram að lýsa atburðum
vikunnar. „Það var síðan fundur í
bæjarráði á fimmtudag en þá var ekki
hægt að taka umræðu um viljayfir-
lýsingu Andrésar og þann trún-
aðarbrest sem orðið hafði vegna þess
að þáverandi formaður bæjarráðs,
Andrés Sigmundsson neitaði að yfir-
gefa fundarherbergið á meðan
umræðan færi fram. Þá var einfald-
lega samþykkt að fresta fundi.“
Skýrðist rétt fyrfr fund 1
hvað stefndi
Aftur var boðað til fundar sólarhring
síðar og segir Amar að það hafi ekki
verið ljóst fyrr en um það bil sem
fundur var að heíjast í hvað stefndi.
„Þá fór að skýrast að þetta meiri-
hlutasamstarf var búið. Fundurinn
stóð í hálftíma og strax og þeim fundi
lauk var ákveðið að ég og Lúðvík
myndum hittast síðar um kvöldið."
Það gerðu þeir og rúmum tveimur
klukkustundum síðar lá fyrir undir-
ritaður samningur oddvitanna um
nýtt meirihlutasamstarf. Amar segir
að þegar svona langt er liðið á kjör-
tímabilið sé orðið ljóst í hvaða
framkvæmdir verði farið og því hafi
þetta tekið skamman tíma.
„Það er auðvitað þannig að það er
langt liðið á kjörtímabilið og ég var
Fjölmörg mál sem
menn vilja setja á
oddinn miðast ekki við
kjörtímabil. Við þurfum
ekki að líta til annars en
hvaða leið verður farin í
samgöngumálum. Það
er ekki mál sem við
klárum á þessu
kjörtímabili frekar en
mörg önnur stærri. Við
segjum einfaldlega að
okkar samstarf hvílir á
þeim grunni að menn
séu að horfa til
framtíðar.
búinn að mynda mér ákveðnar skoð-
anir í huganum og líklega hefur
Lúðvík einnig verið búinn að því. Ég
hafði rætt það í mínum hóp, ef þessi
staða kæmi upp hvað það væri sem
þyrfti að setja á oddinn. Þegar við
settumst niður á föstudagskvöld þá
var þetta nokkum veginn
helmingaskipt. Þetta em fjögur sjö
manna ráð og svo kemur bæjarráð og
hafnarstjóm."
Ekki háð dutdungum eins
manns
Skiptin verða þannig að Sjálfstæðis-
flokkurinn fékk formennsku í
bæjarráði og tvo af þremur fulltrúum.
,,Ég lagði ríka áherslu á það að for-
mennskan í bæjarráði félli í hlut
D-listans. Við fömm einnig með
formennsku í skólamálaráði til 1.
júní 2005 og í menningar- og
tómstundaráði. Mér finnst þetta sýna
að menn ætli sér að vinna af
heilindum," sagði hann og bætti við
að hann hefði fulla trú á að svo verði.
„Það verður staðið við stóm fram-
kvæmdimar sem nú þegar hafa verið
samþykktar, það er að segja menn-
ingarhúsið og nýjan leikskóla á
Sólalóðinni."
Amar segir að menn hafi ákveðið
að slíðra sverðin og láta hagsmuni
Vestmannaeyjabæjar verða númer
eitt, tvö og þrjú. „Við myndum
sterkan meirihluta og emm ekki
lengur háðir duttlungum eins
bæjarfulltrúa sem hefur líf meirihluta
bæjarstjómar í hendi sér í hverju
m£i,“ sagði hann og bætti við að það
hafi aldrei komið til greina af þeirra
hálfu að semja aftur við Andrés
Sigmundsson um myndun
meirihluta.
Amar tók undir þau orð að þama
sé nokkuð sögulegur meirihluti.
„Þetta er alveg nýtt, hér í Eyjum að
minnsta kosti. Það er mjög óalgengt
að myndaður sé meirihluti sex bæjar-
fulltrúa af sjö.“
Amar segist hvergi smeykur við
þetta samstarf. „Það em báðir aðilar
brenndir og vilja leggja sig fram við
að vinna af miklum heilindum. Við
viljum ekki mgga bátnum, heldur
vinna saman.“
Þrjú mál á oddinn
Þrjú mál standa upp úr að mati
Arnars. „Það em fjármál
sveitarfélagsins, samgöngu- og
atvinnumál. Það er staðreynd að
rekstur bæjarsjóðs er þungur og gildir
það um flest sveitarfélög á landinu.
Þegar kemur að samgöngumálum þá
er meiri möguleiki á að ná árangri
þegar við myndum svona sterkan
meirihluta. Nú þegar er búið að
tryggja íjármagn í rannsóknir vegna
jarðganga og er það vel.“
Amar sem kjörinn var í bæjarráð á
þriðjudag og tekur við formennsku
þar telur að það verði eitt af fyrstu
verkum nýs bæjarráðs að vinna að
íjárhagsáætlun íyrir árið 2005.
„Samgöngumálin skipta miklu, það
þarf að skerpa á flugsamgöngum sem
og samgöngum á sjó. Við emm
óánægð með það að ferðum Heijólfs
hefur ekki haldið áfram að fjölga.
Einnig þarf að ræða samskiptin við
Samskip og Vegagerðina. Þetta em
hlutir sem ég hef trú á að við tökum
fljótlega upp aftur. Þessir hlutir hafa
verið til endurskoðunar en við
munum taka upp viðræður á nýjum
forsendum, með sterkum meirihluta."
Allir vildu nýjan leikskóla
Tvær stórframkvæmdir em uppi á
borðinu hjá nýjum meirihluta en þar
hafa fylkingamar ekki verið sammála
hingað til. Nýr leikskóli verður
byggður á Sólalóðinni, sex deilda en
sjálfstæðismenn vildu hafa hann ijög-
urra deilda með möguleika á
stækkun. Eins vildi Sjálfstæðis-
flokkurinn bjóða verkið út á
almennum markaði en
Vestmannaeyjalistinn hafði
samþykkt að fela Fasteign hf.
byggingu skólans og það yrði því í
þeirra verkahring að bjóða það út.
„Það má segja að það hafi náðst að
hálfu leyti samkomulag um leik-
skólann. Allir vildu byggja skólann
en menn höfðu mismunandi áherslur.
Bæjarstjóm hefur samþykkt
byggingu sex deilda leikskóla og því
verður ekki breytt. Aftur á móti
verður farið yfir þessi mál, hvemig
bygging þetta verður og með hvaða
hætti útboð fer fram.“
Gott jafnvægi 1 bæjarráði
Aðspurður hvers vegna Sjálfstæðis-
flokkurinn lagði slíka megináherslu á
ARNAR og LÚÐVIK: Sögulegar sættir urðu í bæjarstjórn Vestmannaeyja á þriðjudag þegar nýr meirihluti
Vestmannaeyjalista og Sjólfstæðisflokks tók við völdum. Er þetta þriðji meirihlutinn ó kjörtímabilinu sem samt er aðeins
rétt rúmlega hólfnað. Allir möguleikar meirihlutasamstarfs hafa því verið reyndir en aldrei hefur eins sterkur meirihluti
setið við völd. Oddvitar flokkanna voru ekki lengi að nó saman og mynduðu nýjan meirihluta ó innan við tveimur tímum.
Baklandið styður sht fólk í bæjarsf jórn og almennt virðist mikill meðbyr með nýjum meirihluta í Vestmannaeyjabæ.
Oddvitornir eni bjartsýnir ó framhaldið og útiloka ekki óframhaldandi somstarf eftir næstu kosningar.
að fá formennsku í bæjarráði og tvo
fulltrúa segir Amar að ein ástæðan
fyrir því hafi verið sú að Sjálf-
stæðisflokkurinn sé stærri flokkur en
Vestmannaeyjalistinn. „I annan stað
þá teljum við það gott fyrir bæjarráð.
Sumar mannaráðningar í stjómunar-
stöður hjá bænum á síðasta ári skildu
eftir sig sár. Við teljum að með þessu
náum við góðu jafnvægi í bæjarráði
en Vestmannaeyjalistinn hefur einn
fulltrúa en tvo varamenn. Auðvitað
lítum við svo á að bæjarráð með
þremur fulltrúum vinni sem ein
heild.“
Skólamálin verða á könnu Sjálf-
stæðisflokks en yfir helmingur
útgjalda bæjarsjóðs fer beint til
fræðslumála. „Ég var formaður
skólamálaráðs á sínum tíma og fannst
það í senn spennandi og kreíjandi
verkefni. Ég tel það hafa verið góðan
kost að sveitarfélögin tækju yfir
rekstur gmnnskólanna. Þjónustan
hefur aukist, meiri nærþjónusta er og
um leið betri þjónusta. Þetta kostar
peninga og hluti af vanda sem
sveitarfélögin standa ffammi fyrir er
að þetta hefur reynst mun dýrara en
gert var ráð fyrir.“
Unnið er að skýrslu um skólamál í
Vestmannaeyjum um þessar mundir
á vegum menntamálaráðuneytisins
og segir Amar að nýr meirihluti muni
einfaldlega bíða eftir þeirri skýrslu
áður en næstu skref verða ákveðin.
„Skólastarf í Eyjum er með blóma en
það má alltaf gera betur, bæði faglega
sem og rekstrarlega. Menn hafa verið
að skoða þetta en munu fara sér
hægt.“ Miklar deilur urðu um
breytingu á skipuriti sem fyrrverandi
meirihluti réðst í. Þar deildi
Sjálfstæðisflokkurinn hart á
Vestmannaeyjalistann. „Við breytum
ekki skipuriti bæjarins. Það er ekki
nema ársgamalt. Við tókum þátt í að
móta það skipurit og þó við hefðum
verið ósammála um þær
mannabreytingar sem urðu þá viljum
við gefa skipuritinu tíma til að sanna
sig. Skipuritið hefur að mörgu leyti
reynst vel en það má alltaf gera
betur.“
Ekkl samið til 2010
Að lokum var Amar spurður út í
hvort flokkamir séu búnir að semja
sín á milli um meirihlutasamstarf til
2010. „Nei, þetta er auðvitað ekki
þannig. Fjölmörg mál sem menn vilja
setja á oddinn miðast ekki við
kjörtímabil. Við þurfum ekki að líta
til annars en hvaða leið verður farin í
samgöngumálum. Það er ekki mál
sem við klárum á þessu kjörtímabili
frekar en mörg önnur stærri. Við
segjum einfaldlega að okkar samstarf
hvílir á þeim gmnni að menn séu að
horfa til framtíðar. Skapist þær
forsendur að þetta samstarf gangi
afskaplega vel og það birtast fleiri
framboð fyrir næstu kosningar eins
og alltaf getur gerst þá eru menn
tilbúnir að skoða framhald þessa
framboðs til að koma í veg fyrir aðra
eins stöðu og hefur verið á þessu
kjörtímabili."
svenni @ eyjafrettir. is
Lúðvík Bergvinsson, oddviti
Vestmannaeyjalistans og
þingmaður, hefur setið í
bæjarstjórn í tvö og hálft ár.
Hann er að upplifa þriðja
meirihlutasamstarfið í
bæjarstjórninni á kjör-
tímabilinu.
Aðspurður um hvemig það leggst í
hann að fara að starfa með Sjálf-
stæðisflokknum segir hann. „Það eru
ekki aðrir valkostir. Það var enginn
trúnaður lengur til staðar í gamla
meirihlutanum. Við verðum því að
ganga til þessa verks með jákvæðu
hugarfari. Mynda verður nauðsyn-
legan trúnað milli flokkanna. Takist
það og gangi samstarfið vel gemm
við bæjarfélaginu ekki meira gagn
með störfum okkar."
Yfir níutíu prósent
stuðningur við meirihlutann
Margar deilumar hafa verið milli
þessara flokka síðustu ár og þung orð
fallið úr herbúðum beggja. Hvemig
telur Lúðvík að það gangi að mynda
traust? „Sennilega hafa ekki fallið
þyngri orð í garð nokkurs en þess
sem hér situr. Ef hann getur unnið úr
þessu, hef ég ekki áhyggjur af
öðrum.“
Lúðvík sagði að þegar sú staða
kom upp að ekki var lengra komist
með fyrrverandi meirihluta, hafi
menn staðið frammi fyrir stöðu sem
varð að vinna úr. Mikill stuðningur
var innan raða beggja flokka við þetta
meirihlutasamstarf. Það kom Lúðvík
ekki á óvart. „Mér skilst að yfir níutíu
prósent stuðningur hafi verið innan
beggja þessara flokka við þessa
hugmynd eftir því sem ég kemst
næst. Það á ekki að þurfa að koma á
óvart í ljósi þess sem á undan var
gengið."
Ágreiningur ekki rist djúpt
Lúðvík segir að allar ákvarðanimar
sem teknar hafa verið í bæjarstjóm
standi, það sé á hreinu. „Við eigum
eftir að útfæra okkar verkefnaáætlun
frekar eins og kemur ffam í samn-
ingnum. Það em 18 mánuðir eftir af
kjörtímabilinu og þá verður að nýta
vel.“
Lúðvík segir að sumar deilur í
bæjarstjóm hafi verið búnar til. ,£g
þori að fullyrða að við aðrar aðstæður
hefði til að mynda umræða um
leikskóla, Fasteign hf. og fleiri mál
farið í annan farveg en raunin varð á.
Á hinn bóginn má aldrei gera lítið úr
hlutverki minnihluta. Það er
mikilvægt að einhver dragi fram galla
á hugmyndum og ákvörðunum sem
teknar em og veiti gott aðhald. Ég tel
þó ekki að ágreiningurinn hafi rist
jafn djúpt milli meiri- og minnihluta
og hann leit út íyrir að gera.“
Opnum á nýja
stjórnunarhætti
Um leið og ný bæjarstjóm tók við á
Lúðvík Bergvinsson oddviti Vestmannaeyjalistans:
Er bjartsýnn
á framhaldið
-Tel ekki að ágreiningurinn hafi rist jafn
djúpt og hann leit út fyrir að gera
þriðjudag var brotið í blað í stjóm-
málasögu Vestmannaeyja. Aldrei
áður hafa vinstri menn annars vegar
og Sjálfstæðisflokkurinn hins vegar
myndað meirihluta í bæjarstjóm
Vestmannaeyja. Á þessum tíma-
mótum telur Lúðvík rétt að hugleiða
þá spumingu hvort hefðbundnar
hugmyndir um skipan meiri- og
minnihluta í bæjarstjóm séu rétta og
besta stjómunaraðferðin fyrir
sveitarfélög. „Ég er ekki viss um að
hefðbundið skak, meiri- og minni-
hluti sé að skila sveitarfélögum þeirri
umræðu og ákvörðunum sem ætlunin
er að hún geri. Nú þegar verkalýðs-
hreyfmg og atvinnurekendur hafa náð
saman um hveijir séu sameiginlegir
hagsmunir þeirra, hljóta fleiri að
verða að skoða sitt skipu- og vinnu-
lag. Ekkert er eilíft. Menn verða að
vera tilbúnir að skoða alla hluti.
Þessari spumingu er velt upp í
samstarfsamningi V- og D - lista.
Við opnum á það þó sú staða kunni
að koma upp eftir næstu kosningar að
annar aðilinn fái hreinan meirihluta
sé ekki útilokað að samstarfið haldi
áfram. Það ræðst þó alfarið af því
hvemig til tekst nú. Við emm því að
opna á nýja hugsun. Hvort hún svo
gangi eftir mun tíminn einn leiða í
ljós, en hitt er ljóst að fyrirtæki sem
starfaði á þann hátt sem pólitíkin
gerir á stundum væri ekki hægt að
ábyrgjast að ætti sér langa lífdaga
fyrir höndum.“
Vestmannaeyingar
kraftmikið fólk
Aðspurður um hvaða mál og hvaða
verkefni er brýnust er ljóst að
samgöngumál em ofarlega í huga
Lúðvíks sem einnig nefnir atvinnu-
og menningarmál um stærstu málin í
bæjarstjóm. „Kjaminn er sá að
Vestmannaeyingar em kraftmikið
fólk. Pólitíkin endurómar aðeins þau
einkenni. Við verðum að virkja
þennan kraft til góðra verka.“
Lúðvík segir að fyrsta skrefið á
næsta ári verði að reyna að fjölga
ferðum Heijólfs. Þá verður að ljúka
rannsóknum vegna hugsanlegrar
jarðgangagerðar og í Bakkafjöm
þannig að næsta haust liggi fyrir
ákvörðun um framtíðaráætlun fyrir
samgöngur við Eyjar. Þá er ljóst að
bygging menningarhúss og leikskóla
mun taka talsverðan tíma, auk þess
sem Fasteign hf. mun ráðast í miklar
endurbætur á þeim eignum sem
félagið hefur keypt. Það er því
ýmislegt framundan."
Lúðvík bendir á Fasteign og segir
það dæmi um félag sem hafi trú á
samfélaginu. „Það væri ekki að
fjárfesta hér fyrir tólf hundmð
milljónir nema þeir hafi trú á
Við höfum farið í
gegnum erfitt tímabil.
Kannski var það
nauðsynlegt. Það hefur
farið umræða um
hvernig hafi mátt snúa
við þeirri þróun, sem
ýmsir hafa kallað
stöðnun. M.a. hafa
menn deilt um leiðir og
hugmyndafræði. Ég hef
haft ákveðna sýn á það.
Meðan ýmsir hafa viljað
sitja við endann á færi-
bandinu og bíða hef ég
talið vænlegra að reyna
að leysa úr læðingi
þann kraft sem í
samfélaginu býr. Aðrir
hafa verið mér
ósammála og viljað
bíða áfram
samfélaginu. Þá vill félagið skoða
möguleika á að fjármagna gerð
jarðganga milli lands og Eyja.“
Hann segir helsta gallann í hugum
margra vera óvissu um samgöngur og
ef hægt væri að leysa það mál varan-
lega væri hægt að nýta mun betur þá
möguleika sem em fyrir hendi í
Eyjum til frekari atvinnu- og
menningarsköpunar.
„Við höfum farið í gegnum erfitt
tímabil. Kannski var það nauðsyn-
legt. Það hefur farið umræða um
hvemig hafi mátt snúa við þeirri
þróun, sem ýmsir hafa kallað
stöðnun. M.a. hafa menn deilt um
leiðir og hugmyndafræði. Ég hef haft
ákveðna sýn á það. Meðan ýmsir
hafa viljað sitja við endann á færi-
bandinu og bíða hef ég talið vænlegra
að reyna að leysa úr læðingi þann
kraft sem í samfélaginu býr. Aðrir
hafa verið mér ósammála og viljað
bíða áfram“
Lúðvík benti á að árið 1900 hafi
hér verið 600 manns. „Það mfaldaðist
þegar mest varð 1973. Það gerðist
einfaldlega vegna þess að hér vom
tækifæri sem menn vora tilbúnir að
nýta. Það dró til sín fólk, hvaðanæva
að. Það er það sem við þurfum að
gera nú, nýta tækifæri sem em til
staðar. Þauemvíða. Þaðmát.d.
benda á að ekkert íþróttafélag á
landinu hefur viðlíka veltu einsog
ÍBV. Það er mikilvægt að átta sig á
hinu jákvæða í umhverfinu og reyna
að byggja frekar upp í stað þess að
rífa niður. Ég taldi afar mikilvægt
þegar nýr meirihluti tók við á sínum
tíma að reyna að hreyfa við hlutum,
fá fólk til þess að hugsa hlutina upp á
nýtt. Það má segja að eitt okkar helsta
markmið hafi verið að hrista örlítið
upp í samfélaginu. Það má segja að
að mörgu leyti hafi það tekist."
Kjörtímabilið
Lúðvík rifjaði upp kosningamar og
kjörtímabilið. „í kosningunum féll
meirihlutinn. Þær hugmyndir sem
framsóknarmaðurinn hafði um
sjálfan sig eftir kosningamar vom
þess eðlis að við í V-listanum gátum
ekki hugsað okkur að koma að því.
Þegar það svo kom á daginn að lítið
sem ekkert gerðist fyrsta árið eftir
kosningar fór að losna um þann
meirihluta. Þá kemur upp sú staða að
fulltrúi Framsóknarflokks vill slíta
samstarfinu við Sjálfstæðisflokkinn.
Við töldum okkur skylt að taka við
keflinu og reyna að gera betur. Ég
held að ég geti sagt með sanni að
mjög margt sem síðasti meirihluti
gerði hafi verið mjög gott. Hann var á
hinn bóginn kominn á endastöð eftir
að trúnaðarbrestur varð. Þegar
trúnaðarbrestur verður innan ríkjandi
meirihluta þjónar það ekki hags-
munum bæjarbúa að halda áfram.
Það var því mitt mat að þetta væri
búið.“
Lúðvík segir það nýs meirhluta að
fylgja eftir nýrri stöðu og frum-
kvæðið komi frá Eyjamönnum
„Sjálfum þykir mér breyting hafa
orðið á hugarfari fólks ffá kosning-
unum 2002. Mér finnst fólk hafa
meira fmmkvæði nú og frekar tilbúið
að reyna nýja hluti. Fólk virðist
einnig vera að vinna sig út úr þeirri
hugmyndafræði að ætíð eigi
einhverjir aðrir að koma færandi
hendi. Það er einfaldlega þannig að
það nennir enginn að sinna fólki sem
nennir ekki að sinna sér sjálft en um
leið og fmmkvæðið er fyrir hendi
fylgja aðrir hlutir í kjölfarið. Því er
mikilvægt að Vestmannaeyingar taki
málin í sínar hendur einsog gerðist
um daginn þegar við boðuðum
kosningar um það hvort bærinn ætti
að kosta rannsóknir vegna
hugsanlegra jarðganga. Það skilaði
sér, þó það sé einsog það hafi
gleymst í tíðindum undanfarinna
vikna, en ég er bjartsýnn á
framhaldið.
svenni@eyjafrettir.is