Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.11.2004, Síða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 18.11.2004, Síða 14
14 Fréttir / Fimmtudagur 18. nóvember2004 Vel heppnaður aðalfundur SASS: Stuðningur við umbætur í samgöngumálum Vestmannaeyja FUNDINN, sem haldinn var í Höllinni, sóttu 53 fulltrúar auk gesta alls staðar af á Suðurlandi. GUÐRÚN fundarstjóri og Þorvarður framkvæmdastjóri voru ánægð með framkvæmd aöalfundarins. ELLIÐI er í stjórn SASS og Arnar var annar fundarstjóranna. Aðalfundur Samtaka sunn- lenskra sveitarfélaga, SASS, var haldinn í Vestmanna- eyjum um helgina. Fundinn, sem haldinn var í Höllinni, sóttu 53 fulltrúar auk gesta alls staðar af ó Suðurlandi. Meðal helstu mála voru skýrsla Skólaskrifstofu Suður- lands, starfsskýrsla Heilbrigð- iseftirlits Suðurlands, tillaga um endurskoðun á samstarfi sunnlenskra sveitarfélaga, skýrsla samgöngunefndar SASS, skýrsla starfshóps um heilbrigðismál og sérdeild á Suðurlandi fyrir börn með geð- og hegðunarraskanir. í stjóm SASS sitja ellefu sveitar- stjómarmenn og fulltrúar Vestmanna- eyja em Elliði Vignisson og Guðrún Erlingsdóttir sem var fundarstjóri ásamt Amari Sigurmundssyni. Guð- rún sagði að fundurinn hefði heppnast mjög vel og gestimir hafi verið mjög ánægðir með aðstöðuna í Höllinni, gistinguna, matinn og allt skipulag. Að loknu skemmtikvöldi á laugar- daginn sem var í umsjá heimamanna stigu fundargestir dans fram undir miðnætti og að honum loknum kíktu aðalfundargestir á nótt safnanna. „Af málum sem snúa að Vestmanneyjum ber samgöngumálin hæst,“ sagði Guðrún í samtali við Fréttir. „Það var samþykkt að úthlutun vegafjár verði tekin úr höndum þingmanna. í skýrslu samgöngunefndar er lýst yfir stuðn- ingi við umbætur í samgöngum til Vestmannaeyja og því ber að fagna. Þá kom fram að undirbúningur að stofnun meðferðarheimilis á Suður- landi fyrir böm með hegðunarraskanir er langt kominn. Þá voru ítrekaðar kröfur um að sálfræðingar verði starfandi við heilsugæslustöðvar, líka í Vestmannaeyjum." Þorvarður Hjaltason, framkvæmda- stjóri SASS, tók í sama streng og Guðrún um að fundurinn hafi heppnast mjög vel. „Ég held ég tali fyrir munn allra fundarmanna þegar ég segi að öll framkvæmd hafi verið mjög til fyrirmyndar. Þetta var líka friðsamur fundur þar sem eitt stærsta málið var stofnun sérdeildar fyrir böm með geð- og hegðunarraskanir. Það mál er loks í höfn og þó Vest- mannaeyjar standi ekki að stofnuninni reikna ég með að þeir komi inn á seinni stigum," sagði Þorvarður. Vegafé úr höndum þingmanna Samgöngunefnd starfaði á fundinum og skilaði áliti á fundinum og lagði hún til að öllu vinnuferli við ákvarð- anir um framkvæmdir í sam- göngumálum verði breytt. I fýrsta lagi telur nefndin að þingmenn eigi ekki að koma jafn mikið að ákvörðunum um einstakar samgönguframkvæmdir eins og nú er. Niðurstaðan er iðulega sú að litlum fjármunum er skipt á of margar framkvæmdir. Það er skoðun nefndarinnar að þingmenn eigi að einbeita sér að löggjafarstarfinu þar sem fer fram heildarstefnumótun í samgöngu- málum og einnig að gerð fjárlaga þar sem ákveðið er hve miklum fjár- munum skal varið til samgöngu- framkvæmda hverju sinni, en ákvarðanir um hvemig þeim skuli varið verði í höndum fagaðila. I öðru lagi þá telur nefndin æskilegt að beina kröftunum að færri og þá stærri framkvæmdum í einu en nú er gert. Nefndin telur nokkuð ljóst að með því að dreifa fjármagni á margar, smáar framkvæmdir samtímis, þá nýtist íjánnunimir illa þegar á heildina er litið. I þriðja lagi bendir nefndin á að óskynsamlegt sé að skipta fram- lögum til samgöngumála eftir kjördæmum og eðlilegra væri að horfa á landið í heild og beina fjármunum í þær framkvæmdir sem eru brýnastar hveiju sinni. Bættar samgöngur við Vestmannaeyja Einn kaflinn fjallar um samgöngur við Vestmannaeyjar og hljóðar þannig en fyrirsögnin er Bættar samgöngur við Vestmannaeyjar: „Samtök sunn- lenskra sveitarfélaga leggja til að gerðar verði nauðsynlegar rannsóknir á úrbótum á samgöngum til Vestmannaeyja og gert verði ráð fyrir fjármunum í því skyni. Mikilvægt er að gera slíkar rannsóknir áður en teknar verða ákvarðanir um kostnaðarsamar framkvæmdir, hvort sem um jarðgöng eða ferjuhöfn er að ræða. Stoðir byggðar í Vest- mannaeyjum hafa veikst á undan- fömum ámm og ljóst að úrbætur í samgöngumálum em mikilvægasta einstaka atriðið til að spoma gegn þeirri þróun. Efnahagsleg þýðing þessa fyrir allt þjóðfélagið er einnig mjög mikil þar sem Vestmannaeyjar em enn sem fyrr einn mikilvægasti útgerðarstaður landsins." I skýrslunni segir að það hafi komið nefndinni á óvart að umferðar- mælingar og líkön byggð á þeim virtust í skötulíki. „Það á t.d. við um samgöngur til Vestmannaeyja. Þar koma nokkrir kostir til greina, þ.e. jarðgöng, ferjuhöfn í Bakkafjöm eða styrking núverandi samgönguleiða. Þegar um jafn dýrar aðgerðir er að ræða er nauðsynlegt að ítarlegar rann- sóknir séu gerðar áður en ákvarðanir em teknar." Þá er bent á framrannsóknir á möguleikum og hagkvæmni jarð- ganga milli lands og Eyja. „Niður- stöður jarðfræðirannsókna benda til að jarðgöng séu raunhæfur kostur en óljóst hvort hagkvæmni sé til staðar. Þó hefur verið bent á greinilegar misfellur í þeim hagkvæmniathug- unum sem gerðar hafa verið og sem skipta sköpum um hvort skynsamlegt sé að ráðast í framkvæmdir. Því er brýnt að gera viðamikla hagkvæmni- athugun til að fá úr þessu skorið. Einnig var litið til ástandsins í dag og niðurstaða nefndarinnar er að óviðunandi ástand ríkir nú í sam- göngum við Vestmannaeyjar. „Nauð- synlegt er að gera úrbætur í þeim efnum nú þegar. Styrkja þarf strax bæði flugsamgöngur og ferjusiglingar með fjölgun ferða. Jafnframt þarf að gera rannsóknir á varanlegum úrbót- um, bæði á möguleikum og hag- kvæmni jarðganga sem og á byggingu ferjuhafnar í Bakkafjöm. Lögð er rík áhersla á að fjármunir verði tryggðir þegar á næsta ári til þessara rann- sókna." I skýrslunni er líka að finna álykt- anir um flugvelli og hafnir. „Nauðsynlegt er að flugvellimir í Vestmannaeyjum og Bakka séu ávallt búnir í samræmi við ýtmstu kröfur vegna þess hve flugsamgöngur eru mikilvægar fyrir Vestmannaeyinga. Engir íbúar landsins eiga jafn mikið undir góðum fiugsamgöngum."

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.