Reykjavík - 08.09.2012, Síða 2
2 8. september 2012
Reykjavík vikublað óskar eftir að komast í samband við borgar búa sem sjaldan eða
aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í blaðinu eða veita stutt viðtöl.
Vinsamlegast sendið okkur tölvu póst á ritstjorn@fotspor.is eða hringið í síma 698-6789.
Reykjavík vikublað 33 Tbl. 3. áRganguR 2012
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is.
auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykja vík. Auglýsingasími 578-1190, netfang: auglysingar@fotspor.is.
Ritstjóri: Haukur Holm, netfang: haukur@fotspor.is. Myndir: Ýmsir, netfang: ritstjorn@fotspor.is, sími: 698-6789.
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Upplag: 46.000 eintök. dreifing:
Reykjavík vikublaði eR dReift í 45.600 eintökum ókeypis í allaR íbúðiR í Reykjavík.
Viltu segja skoðun þína?
ReykjavíkuRgetRaunin
Svar á bls. 14
Mánudagurinn næsti er tileinkaður forvörnum gegn sjálfsvígum víða um heim og hér á Íslandi er hann einnig helgaður minn-ingu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
Í Reykjavík-vikublaði er fjallað um þessi mál og birtar greinar eftir fólk
sem þekkir vel til þessa viðkvæma málaflokks.
Það er kannski tímanna tákn og það er vel, að leyndarhjúpnum hefur
verið svipt af þessari hlið mannlífsins. Lengi vel voru sjálfsvíg eitthvað sem
ekki mátti ræða, tabú, eins og svo margt annað. Við sjáum það varðandi
ýmis ofurviðkvæm mál að þegar þau loks komast upp á yfirborðið, þá
áttum við okkur betur á vandanum og umfangi hans og verðum um leið
hæfari til að takast á við hann.
Á hverju ári falla 33 til 40 einstaklingar fyrir eigin hendi á Íslandi. Þetta
þýðir að tveir til þrír svipta sig lífi í hverjum einasta mánuði ársins hér á
landi. Þetta er há tala og mikill missir fyrir lítið samfélag. En missirinn er
auðvitað mestur fyrir þá sem næst standa þeim sem ákváðu að ljúka lífi sínu.
Allt að 600 manns reyna að fyrirfara sér árlega, en er sem betur fer bjargað.
Dauði ástvinar er alltaf sár harmur. En þegar ástvinur deyr fyrir eigin
hendi bætast fleiri tilfinningar við harminn. Fyrir utan sorgina bætast
við reiði og jafnvel sjálfsásökun um að hafa ekki áttað sig á ástandinu og
gripið inn í.
Öll viljum við að öllum líði vel og ekkert okkar vill að einhver lendi
svo úti á jaðri mannlífsins að hann sjái enga leið til baka. Verum vakandi
fyrir þeim sem standa okkur nærri. Líklega hafa fáir orðað þetta betur en
þjóðskáldið Einar Benediktsson í Einræðum Starkaðar.
Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veig heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Svo oft leyndist strengur í brjósti,sem brast
við biturt andsvar, gefið án saka.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka.
Góða helgi.
Leiðari
Aðgát skal höfð
í nærveru sálar
Hvað heitir þetta hús? Hestamenn telja sér
úthýst úr Heiðmörk
Deiliskipulag fyrir Heiðmörk er nú í kynningu, en henni lýkur 12. september. Stjórn hesta-
mannafélagsins Fáks hvetur alla hesta-
menn til að kynna sér deiliskipulagið
vel, því stjórnin telur að þar séu hesta-
menn settir til hliðar og áratuga hefð
hestamanna um notkun svæðisins til
útivistar sé ekki virt. Hestamenn séu
útilokaðir frá stórum hluta svæðisins
í skipulaginu. Eina heildstæða leiðin í
núverandi drögum sé um 20 kílómetrar
og því sé ljóst að skipulagsdrögin mæti
ekki almennri notkun hestamanna.
Stjórn Fáks skorar á alla sem eru
ósammála deiliskipulaginu að mót-
mæla, en þeir sem ekki mótmæla teljist
samþykkir. Tillagan verði samþykkt
óbreytt berist ekki mótmæli. Undir-
skriftarlistar liggja frammi í öllum
hestavörubúðum á höfuðborgarsvæð-
inu, segir stjórnin og bendir einnig á
að hægt sé að mótmæla með því að
senda tölvupóst.
Frestur til að gera athuga
semdir við skipulag vegna
nýs Landspítala framlengdur
Hátt í fimmhundruð athugasemdir hafa borist.
Fresturinn framlengdur til 20. september.
Frestur til að gera athugasemdir við deiliskipulag vegna nýs Landspítala rann út 4. september
síðastliðinn. Fjöldi athugasemda barst
enn þegar fresturinn var að renna út
var ákveðið að framlengja þennan frest
til 20. september.
Samkvæmt upplýsingum frá Reykja-
víkurborg í vikunni voru athugasemd-
irnar orðnar 450 talsins, þar af voru 240
samhljóða frá mismunandi aðilum. þar
eru gerðar athugasemdir við áformin
í heild sinni, byggingarmagnið, um-
ferðina sem fylgir, umhverfisáhrifin
og mengunina.
Fyrrverandi borgarstjóri
hefur skipt um skoðun og
vill nú að hætt verði við
framkvæmdina
Steinunn Valdís Óskarsdóttir fyrrver-
andi borgarstjóri sagði á Facebooksíðu
sinni í vikunni að hún hafi áður verið
fylgjandi byggingu sjúkrahúss á lóð-
inni, en sé það ekki lengur.
„Mér er hins vegar ljúft og skylt að
upplýsa að ég hef skipt um skoðun
enda forsendur breyttar og fólk á að
geta viðurkennt að það hafi á ein-
hverjum tíma haft rangt fyrir sér. Ég
skora hér með á þá sem ráða málum
nú að hætta við þetta, það er aldrei of
seint! Svo verð ég nú að segja að mér
finnast borgaryfirvöld seilast nokkuð
langt með að segja að þeir sem ekki
gera athugasemdir séu þar með búnir
að samþykkja tillögurnar“.
Borgarstjórinn fyrrverandi er
beðinn á Facebook um að skýra hvaða
forsendur hafi breyst sem valdi sinna-
skiptunum.
„Því miður er staðsetning þessa spít-
ala líkt og trúarbrögð hjá mörgum og
þau trúarbrögð byggja á nálægð við
H.Í. og miðborgina. Þegar ákvörðun
var tekin var m.a. talað um að það
væri góð forsenda fyrir uppbyggingu
miðborgar því þangað vantaði fólk,
atvinnutækifæri og mannlíf. Þá var
Laugavegurinn að hopa sem versl-
unargata, fyrirtæki önnur að hverfa
og menn töldu að innspýting fólks á
svæðið myndi glæða miðborgina lífi.
Fólk færi að versla eftir vinnu etc. Á
þessum ríflega 12 árum síðan þessi um-
ræða var í algleymi hefur mikið breyst
og miðborgin og þetta svæði tekið
miklum breytingum - nú ef eitthvað
er hafa menn áhyggjur af flæði fólk
og umferðar vestur í borgina. Einnig
má nefna forsenduna um mikilvægi
nálægðar við H.Í. sem margir efast um
að skipti öllu máli í dag. Forsendur hafa
líka breyst varðandi stærð og magn og
þegar maður sér teikningarnar í plani
á svæðinu þá er þetta yfirgengilega
mikið. Vissulega er búið að setja í þetta
fjármuni og það er ekki eitthvað sem
er tekið aftur. Fyrst og fremst er það
þó kostnaður við vinnu hönnuða, arki-
tekta og sérfræðinga en engin steypa
enn. Svo eru það fjárhagsforsendur!
Hver á að fjármagna dæmið árið 2013?
Lífeyrissjóðirnir? Mikilvægi góðrar að-
stöðu fyrir starfsfólk er seint ofmetin
en starfskjör, tækjakostur og vinnuálag
eru líka þættir sem skipta máli, eins
og margt starfsfólk geirans hefur bent
á,“ segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir
fyrrverandi borgarstjóri.
Öldungaráð
stofnað í
Reykjavík
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt að stofnað verði sérstakt öldungaráð
í borginni. Það verði skipað eldri
borgunum og hlutverk þess verði
að fjalla reglulega um málefni eldri
borgara og verða borgarstjórn til
ráðgjafar um þau. Þá er ráðinu ætlað
að hafa víðtækt samráð við félög og
samtök eldri borgara í Reykjavík sem
og aðra þá er láta þessi málefni til
sín taka.
Gert er ráð fyrir að öldungaráðið
fundi að minnsta kosti einu sinni
á ári með borgarfulltrúum og full-
trúum í velferðarráði um málefni
eldri borgara. Skrifstofu borgarstjóra
var falið að móta tillögur um hlut-
verk, tilgang og skipan ráðsins og
skal í því starfi haft samráð við Félag
eldri borgara í Reykjavík.
Ábyrgð á mörgum veigamiklum
þáttum er varða eldri borgara flyst
um þessar mundir frá ríki til sveitar-
félaga.
Hér má sjá hvernig gert er ráð fyrir að nýr Landspítali líti út
Hestamenn telja sér úthýst úr Heið-
mörk með nýju skipulagi og hvetja
til mótmæla.