Reykjavík


Reykjavík - 08.09.2012, Síða 6

Reykjavík - 08.09.2012, Síða 6
8. september 20126 www.reykjavikblad.is www.hafnarfjordurblad.is ■ www.reykjanesblad.is www.vesturlandblad.is ■ www.akureyrivikublad.is www.selfossblad.is MatuR · Kjúklingur í sataysósu · Svínakjöt í ostrusósu · Núðlur með grænmeti · Djúpsteiktar rækjur með súrsætri sósu Hlakkað til (jóla) Andrea Guðmundsdóttir mat­ gæðingur í Listaháskóla Íslands býður lesendum Reykjavíkur upp á forvitnilegar uppskriftir frá öllum heimshornum. Nú þegar að berjatíminn hefur náð hámarki, þá datt mér í hug að bæta við einni uppskrift til þess að nýta berin á skemmtilegan hátt. Um daginn var ég með nokkrar uppskriftir að sultum, en hér kemur ein til þess að búa til jólasnaps sem gott er að dreypa á á jólum (sem og suma aðra daga), einnig læt ég fylgja með uppskrift að vatnsdeigsbollum sem henta afar vel með snapsinum góða. Jólasnaps Uppskriftin að jólasnapsinum er mjög einföld: Fyrst af öllu finnur maður til góða krukku, næstum fyllir hana af rifsberjum, síðan bætir maður við góðum skammti af sykri og að því loknu fyllir maður upp með hvítu rommi. Lokar síðan krukkunni vel. Henni er síðan velt varlega af og til og látin standa í hillu í eldhúsinu. Í lok nóvember síar maður berin frá og hellir vökvanum á flösku, lokar henni vel og geymir í ísskáp til jóla, eða að minnsta kosti aðeins fram á aðventuna. Jólasnapsinn er síðan borinn fram kaldur úr ísskápnum. Þetta er aðeins ein útgáfa af snaps- inum, en rétt er að nefna að nota má ýmis önnur ber, ekki síst bláber eða krækiber. Einnig má nota margs konar vínanda líka, til dæmis vodka. En rifsberin gefa mjög fallegan jólalit. Vatnsdeigsbollur 3 dl vatn 75 gr smjör/smjörlíki 2 ½ dl hveiti 3 egg Vatn og smjör er sett í pott og suðan látin koma upp. Hveitið sett út í og hrært vel með trésleif þangað til deigið er orðið laust við pottinn ( ½ til 1 mín.). Potturinn er tekinn af eldavélinni og deigið kælt aðeins. Sett í hrærivélar- skál og eggjunum, einu í senn hrært saman við. Deiginu er sprautað úr sprautupoka eða sett með skeið á bökunarplötuna. Bakað við 225 gr hita í ca. 15-20 mín. Forðast skal að opna ofninn á meðan. Hægt er að nota annað hvort sæta fyllingu eða ósæta í bollurnar. Gott er að fylla bollurnar með sultu og þeyttum rjóma og setja glassúr ofan á. Einnig er gómsætt að hræra ost og sýrðan rjóma saman og setja í bollurnar, þá er betra að hafa bollurnar minni. Eins er hægt að gera aflangar kökur úr deiginu. Hægt er að frysta vatnsdeigs- bollurnar með eða án fyllingar. Síðan síðla á aðfangadagskvöld nálgast maður flöskuna góðu, hellir í staupin, setur jólaplötu með Fats Domino á fóninn og hugsar til síð- sumardagsins í bláberjabrekkunni góðu. Góða skemmtun. Ísland Dalvegi 4 - 201 Kópavogur Hamraborg 14 - 200 Kópavogur Sími: 564 4700 Opnunartími Dalvegi: Mánudaga til föstudaga frá 6:00 til 18:00 laugardaga frá 6:00 til 17:00 sunnudaga frá 7:00 til 17:00 Hugsaðu um heilsuna og veldu heilkorn Hjartabrauð Þitt hjartans mál...í hvert mál...

x

Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.