Reykjavík - 08.09.2012, Qupperneq 10
10 8. september 2012
Deiliskipulag fyrir Einholt
og nágrenni til kynningar
Nú stendur yfir kynning á til-lögu að nýju deiliskipulagi fyrir reitinn sem afmarkast
af Einholti, Stórholti, Þverholti og Há-
teigsvegi.Á þessum reit hyggst Búseti
byggja rúmlega 200 íbúðir.
Frestur til að gera athugasemdir
er til 20. september næstkomandi
og skulu þær sendar í tölvupósti á
skipulag@reykjavik.is.
Samkvæmt upplýsingum frá
Reykjavíkurborg verða athugasemdir
og ábendingar notaðar sem innlegg í
áframhaldandi vinnu. Eftir að unnið
hefur verið úr athugasemdum verður
tillagan auglýst og gefst þá hags-
munaaðilum tækifæri til að koma
athugasemdum sínum á framfæri í
annað sinn. Fresturinn verður sex vikur.
Einkarekið Apótek
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
ERNA
Skipholti 3 - Sími: 552 0775
www.erna. is
Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA
Fyrir orrustuna um Milvian brú yfir Tíberfljót, 28. október
312 fyrir réttum 1700 árum, sá
Konstantín mikli teikn krossins
á himni og orðin “in hoc signo
vinces” “Undir þessu tákni muntu
sigra”. Árið 313 er Konstantín var
orðinn keisari veitti hann kristnum
mönnum trúfrelsi eftir langvarandi
ofsóknir.
Menin eru smíðuð á Íslandi eftir hugmynd
Dr Gunnars Jónssonar og fást silfurhúðuð á 3.500,-
úr silfri: 5.900,- (með demanti: 11.500,-) og
úr 14k gulli á 49.500,- (með demanti: 55.000,-).
IN HOC SIGNO VINCES
(Undir þessu tákni muntu sigra)
Gervihnattadiskar
Diskar til að taka á móti sjón-varssendingum í gegn um gervihnetti eru kynlegar
skepnur og fer um þá tvennum sögum.
Sumir líta á þá sem þarfaþing, gleði-
gjafa og til húsprýði meðan aðrir hafa
horn í síðu þeirra og telja þá skaðræði
og húslýti, svona eins og skeggbrodda í
andliti fagurrar konu. Í samspili manna
og diska eru ólgandi tilfinningar og
skammt er í öfgar á báða bóga. Diskar
leysa miklar tilfinningar úr læðingi og
deilur vegna þeirra verða oft harðvít-
ugar.
Ásýnd húss.
Húslýti. Hræsýning.
Það er ljóst að stórir diskar og einnig
smærri diskar utan á húsum og
svölum eru fallnir til að spilla útliti
húsa. Allt ytra byrði fjöleignahúss er
í sameign og þar með er útlit þess og
ásýnd. Allir íbúðareigendur eiga rétt á
að eiga hlut að ákvörðun um það. Þess
vegna mega eigendur ekki vera með
neitt hangandi úr gluggum, sínum og
á svölum sem veldur óprýði, sóðaskap
og viðbjóði með venjulegu fólki. Menn
mega ekki nota svalir sínar til hvers
sem er, s.s. hundaklóset, dúfnabú og
til að geyma drasl sem er til óprýði
og óþæginda fyrir sambýlinga. Menn
mega ekki nota svalir sem fiskhjalla
og hengja utan á þær eða húsið blóð-
drifna framliðna fugla til marks um
veiðigetu og karlmennsku sína, eins
og dæmi eru um.
Sameiginlegir diskar.
Sameiginlega diska má ekki setja upp
fyrr en málið hefur hlotið formlega
afgreiðslu innan húsfélagsins. Það
er meginregla að uppsetning venju-
legra diska sé háð því að aukinn
meirihluti(2/3) sé því meðmæltur. En
ef diskur er stærri, meira áberandi og til
meiri lýta en það, er áskilið samþykki
allra eigenda. Á hinn bóginn myndi
einfaldur meirihluti yfirleitt duga þegar
útlitsmengun er engin eða hverfandi.
Einkadiskar.
Það eru fyrst og fremst einkadiskar á
fjöleignarhúsum sem eru deiluefni. Í
sumum tilvikum eru diskar settir utan
á svalahandrið íbúða eða á hús innan
seilingar frá svölum en í öðrum til-
vikum eru diskar innan svala og ná lítið
eða ekkert upp fyrir svalahandriðið.
Ávallt eru líkur á því að einkadiskur
sé háður samþykki allra. Það byggist á
því að þá er verið að veita viðkomandi
eiganda aukinn eða sérstakan rétt um-
fram aðra og slíkt er almennt forboðið
nem allir samþykki.
Byggingarleyfi.
Ef diskur, hvort heldur einkadiskur eða
sameignlegur diskur, kemur til með að
breyta eða hafa áhrif á útlit og ásýnd
fjöleignarhúss þá er meginreglan sú
að afla verður samþykkis byggingar-
yfirvalda.
Disklingar á svölum.
Þegar um er að tefla pena einkadiska
á svölum snýr það meira að hagnýt-
ingu séreignar. Það er meginregla að
eigandi eigi einn rétt á að ráða yfir og
hagnýta séreign sína. Beri lítið á diski
og hann ekki til óprýði er vafasamt
aðrir eigendur eigi íhlutunarrétt, hvað
þá neitunarvald. Það er varla ástæða til
að amast við því þótt krúttlegur disk-
lingur lúri í leyni bak við svalahandrið.
Sama er að segja ef hann gægist pent
og sakleysislega upp fyrir handriðið
svona eins og grill og aðrar leyfilegar
tilfæringar á svölum.
Ef diskur hefur engin eða sáralítil
áhrif á ásýnd húss, þá hvorki meiðir
hann né raskar lögvörðum hagsmunum
annarra eigenda. Sem sagt. Ef ekki er
um húslýti eða ásýndarspjöll, þá er
íbúðareiganda yfirleitt heimilt að setja
upp og hafa smágerðan disk á svölunum
og þarf ekki að fá samþykki fyrir því.
Höfundur er
Sig urð ur Helgi Guð jóns son hrl.
for mað ur Hús eig enda fé lags ins