Reykjavík - 20.10.2012, Blaðsíða 14
14 20. október 2012
Hólabrekkuskóli
kl. 14:00 / laugardagur
Fjáröflunarbingó fyrir
Special Olympics keppendur
Harpan tónlistarhús / laugardagur
Barnastúnd með Sinfóníunni
kl. 11:30 í Hörpuhorni
Óperan Il Trovatore kl. 20:00 í Eldborg
Gerðuberg kl. 15:00 / laugardagur
Tónleikar–Tónar og ljóð,
ný tónlist eftir Leif Gunnarsson
Gamla bíó kl. 20:00 / laugardagur
Útgáfutónleikar Thin Jim
Háskólabíó kl. 20:00 / laugardagur
Tónleikar – Mannakorn
Tjarnarbíó kl. 21:00 / laugardagur
Tónleikar – Hvanndalsbræður
Café Rosenberg / laugardagur
Tónleikar – Ljótu hálfvitarnir
Gamli gaukurinn
kl. 21:00/ laugardagur
Tónleikar–Járnstjarna
Gerðuberg kl. 13:15 / sunnudagur
Klassík í hádeginu–Shubert–Hinn eilífi
söngur
Listasafn Íslands
kl. 14:00 / sunnudagur
Sunnudagsleiðsögn með Sumarliða Ísleifs-
syni, sagnfræðingi
Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsi
kl. 15:00 / sunnudagur
Hreyfing augnabliksins–sýningarstjóra-
spjall Hafþórs Yngvasonar.
Harpa tónlistarhús
kl. 19:30 / sunnudagur
Tónleikar Kammermúsíkklúbbsins í
Norðuljósum
Hús þetta er Laugavegur 11 og var það reist árið 1868. Er þetta næst elsta húsið við
Laugaveg og eitt af elstu timburhúsum
Reykjavíkur. Fyrst átti húsið Símon Al-
exíusson og síðan Andrés Bjarnason
söðlasmiður. Árið 1913 komst húsið í
eigu bræðranna og athafnamannanna
Friðriks og Sturlu Jónssonar og árið
1920 byggðu þeir steinhús vestan við
húsið.
Í húsinu hafa ýmist verið veitinga-
staðir eða verslanir. Í kringum árið 1922
flutti Kristín Dalhstedt veitingakona
matsölu og kaffihús sitt, Fjallkonuna,
af Laugavegi 20b í húsakynnin við
Laugaveg 11. Var það veitingahús mjög
vinsælt og þótti líka vistlegt. Var Kristín
með veitingarekstur þar til ársins 1927
og næstu ár var ýmis veitingarekstur
í húsinu.
Á árunum 1932 til 1933 tók danskur
maður að nafni Olsen húsnæðið á leigu
og rak þar veitingastaðinn „White Star“.
Þótti sá staður vera alræmdur sukk-
staður og var þar dansað, drukkið og
slegist. Var staðnum lokað með vald-
boði í lok árs árið 1935 en þá var Olsen
orðinn gjaldþrota. Eftir að „White Star“
var lokað var innréttuð búð í húsnæð-
inu og var verslunin Stálhúsgögn þar
í mörg ár.
Í kringum árið 1950 innréttuðu
bræðurnir Silli og Valdi húsnæðið sem
veitingastað í amerískum nýtísku stíl
og var hann aldrei kallaður annað er
Laugavegur 11. Varð þessi staður mjög
frægur í bókmenntasögunni því þar
héldu til ungir listamenn og mennta-
menn. Má þar nefna meðal fastagesta
Ástu Sigurðardóttur, Thor Vilhjálms-
son, Elías Mar, Dag Sigurðarson og
Jökul Jakobsson. Lásu skáldin þar upp
úr verkum sínum og hélt Steinn Steinarr
uppi vörnum fyrir atómskáldin.
Í dag er veitingastaðurinn Ítalía rek-
inn í húsinu og verslunin Fjallakofinn
ásamt fleiri fyrirtækjum sem eru þar
til húsa.
Húsið var friðað að ytra byrði í mars
árið 2011.
Heimildir: Húsafriðunarnefnd og
greinasafn Morgunblaðsins.
- GLI
Röndótta súlan sem gjarnan hangir utan á rakarastofum er vel þekkt, en hvað hún táknar
er kannski ekki alveg eins þekkt.
Merkið má rekja aldir aftur í tím-
ann til þess þegar rakarar gerðu meira
en að skerða hár og skegg, heldur sáu
um margs konar tannlækningar og
aðrar lækningar, ekki síst blóðtökur.
Hvíti liturinn í spíralnum táknar
sárabindi sem vafin voru um stöng
sem sjúklingarnir héldu fast um á
meðan blóð var tekið, til að örva
blóðflæðið, rauði liturinn táknar
blóð og sá blái eitrað blóð.
Því hefur einnig
verið haldið fram að til-
urð sívalningsins þrílita
megi rekja til þess að
blóðug sárabindin hafi
verið bundin við súlu
til þerris, en vindurinn
vafið þeim utan um
súluna.
Reyndar mun svona
sívalningur tákna allt
aðra starfsemi sumsstaðar í Asíu,
en um slíka starfsemi verður ekki
fjallað hér.
Meðal heimilda: Signs & symbols
HVAÐ ER AÐ STOPPA ÞIG
FRAMUNDAN ER VETUR OG FÁTT MIKILVÆGARA EN AÐ HEMLAR SÉU Í FULLKOMNU LAGI
Í OKTÓBER OG NÓVEMBER BJÓÐUM VIÐ ÞÉR AÐ KOMA MEÐ BÍLINN OG VIÐ YFIRFÖRUM HEMLAKERFIÐ
MJÖG NÁKVÆMLEGA. MEÐ TILVITNUN Í AUGLÝSINGUNA BJÓÐUM VIð 15% AFSLÁTT AF ÖLLUM HEMLAVARAHLUTUM FYRIR
MERCEDES-BENZ, AUDI, VOLKSWAGEN OG SKODA BÍLA. KOMDU TIL OKKAR, ÞAÐ ER ÖRUGGARA.
ÞVÍ ÖRYGGI Í UMFERÐINNI SKIPTIR MÁLI
BÍLA-DOKTORINN,
VARAHLUTAVERSLUN
SKÚTUVOGI 13
104 REYKJAVÍK
SÍMI 552-5757 Sjá nánar á vefsíðu okkar: www.doktorinn.is
Bíla-Doktorinn ehf flytur einnig inn frá Þýskalandi flesta varahluti fyrir VW, Skoda,
Audi og Mercedes-Benz sem eru TÜV gæðavottaðar vörur , framleiddar fyrir
ströngustu kröfur notenda þar í landi. Þessa varahluti erum við að bjóða á ótrúlega
hagstæðuverði. Ekki velja bara einhverja hemlahluti. Veldu gæðahluti til að stöðva
þig og bílinn þinn
ERNA
Skipholti 3 - Sími: 552 0775
www.erna. is
Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA
Fyrir orrustuna um Milvian brú yfir Tíberfljót, 28. október
312 fyrir réttum 1700 árum, sá
Konstantín mikli teikn krossins
á himni og orðin “in hoc signo
vinces” “Undir þessu tákni muntu
sigra”. Árið 313 er Konstantín var
orðinn keisari veitti hann kristnum
mönnum trúfrelsi eftir langvarandi
ofsóknir.
Menin eru smíðuð á Íslandi eftir hugmynd
Dr Gunnars Jónssonar og fást silfurhúðuð á 3.500,-
úr silfri: 5.900,- (með demanti: 11.500,-) og
úr 14k gulli á 49.500,- (með demanti: 55.000,-).
IN HOC SIGNO VINCES
(Undir þessu tákni muntu sigra)
Helgin í Reykjavík
20.– 21. október 2012
ReykjavíkuRgetRaunin – svaR
Rakari
Hvað vill
pöpullinn
upp á dekk?
Reykvíkingur er svo hugsi yfir öllu fólkinu sem hefur skoðun
á því hvernig stjórnarskrá á að vera
og ekki bara það, heldur ætlar líka að
láta þá skoðun sína í ljós. Hvað hefur
fólk eiginlega með það að gera hvaða
grundvallarreglur gilda í samfé-
laginu? Eins og það sé eitthvað fyrir
Jón og Gunnu að ákveða það. Veit
fólk ekki að það er þing í landinu
og að þar sitja þingmenn sem fólkið
ákvað að ættu að ráða? Eru þessir
þingmenn ekki eldklárir og strang-
heiðarlegir og fullfærir um að ákveða
fyrir okkur hin hvernig þetta á allt
saman að vera? Reykvíkingur veit
ekki betur. Þó svo að fólk haldi að
eitthvað verði betra ef hlutirnir væru
svona eða hinsegin. Þó svo að fólk
hafi einhverjar skoðanir, hvað er það
að vilja upp á dekk? Það væri svona
álíka og að pöpullinn færi að segja
aðalsstéttinni fyrir verkum eða hvað
honum finnst. Hvað varðar aðalinn
um skoðanir pöpulsins? Við höfum
að vísu ekki aðal hér á Íslandi eins
og í sumum siðmenntuðum löndum,
en við höfum alþingismenn. Getum
við ekki bara kallað þá aðal, sérstak-
lega þingmenn ákveðinna flokka?
Ætlum við virkilega að segja þeim
hvað okkur finnst, hvernig reglur
við viljum að gildi? Fyrr má nú vera
heimtufrekjan í sumu fólki!
ReykvíkinguR
tákn og MeRki