Harmoníkan - 31.05.1989, Side 3

Harmoníkan - 31.05.1989, Side 3
Útgefendur og áb.menn: Hilmar Hjartarson Ásbúð 17, Garðabæ, sími 91-656385 Þorsteinn Þorsteinsson Torfu- felli 17,111 R.vík, sími 91-71673 Forsíðumyndin: Frá vinstri: Guðmundur Samúels- son, Sveinn Jóhannsson eða „Denni“ var í E.F. kvintettinum á sínum tíma sem þá var ein vinsæl- asta hljómsveit landsins, Stein- unn Pálsdóttir og Hannes Bald- ursson jafnframt stjórnandi harmoníkuhljómsveitar H.U.V. Blaðið kemur út þrisvar á ári. í október, endaðan febrúar og í end- aðan maí. Gíróreikn. nr. 61090-9. Auglýsingaverð: 1/1 síða kr. 9.300 1/2 síða kr. 6.200 1/4 síða kr. 3.900 1/8 síða kr. 2.300 Smáauglýsingar (1,5 dálksentimetri) kr. 650 + kr. 120 fyrir hvern auka dálksentimetra. prenttækni Ágæti lesandi Þó að veturinn hafi verið ýms- um erfiður er ekki þar með sagt að hann hafi verið slæmur fyrir harmonikuna í heild sinni. Fyrir utan hljómplötur og hljóðbönd sem hafa verið sett á markað lið- ins vetrar þá hafa margir harmon- ikuunnendur fengið að spreyta sig á saumastofudansleik sem hefur verið á dagskrá í ríkisútvarpinu frá því í janúar. En það er ýmis- legt framundan og nefna má í því sambandi ferðalög innanlands og utan og eru frændur okkar á hin- um norðurlöndunum farnir að gefa okkur gaum og farnir að auglýsa í blaðinu okkar eins og sést hefur t.d. frá „TITANO- FESTIVALEN“ og „BASSER- ALLE“ í Noregi. Þá eru alltaf einhverjar heimsóknir á milli fél- aga og mættu þær aukast til muna til þess að harmoníkuunn- endur kynnist betur. Ef að félög hefðu það á stefnuskrá sinni að vera með tónleika í einhverri mynd í lok starfsárs, þá væri hægt að bjóða öðru félagi að taka þátt í þeim og þá er komið eitthvað til að keppa að, ekki endilega til að vera betri en hinn aðilinn heldur til að „gera sitt besta“ og auka Hilmar Hjartarson. hróður sins félags. En það eru ekki bara félögin sem þurfa að vera sífellt á verði gagnvart efni og öðru sem varðar hag blaðsins. Framundan eru breytingar á lögum sem varða afkomu margra blaða og tímarita en þegar þetta er ritað er ekki enn búið að ganga frá þessum lögum en sumt máls- metandi fólk óttast stórlega um framhald á því fjölbreyttu úrvali tímarita sem er á markaðnum í dag. Við þurfum því að athuga okk- ar gang og sennilega verða ein- hverjar breytingar á blaðinu, en hverjar þær verða vitum við ekki enn. Fyrir nokkru sendum við for- mönnum allra félaga bréf þar sem sænski harmoníkuleikarinn Lars Ek bauðst til að koma og halda námskeið en beðið var um skrif- legt svar fyrir ákveðinn tíma. Aðeins þrír höfðu fyrir því að svara bréflega en of seint. Raunar kom það ekki að sök í þessu tilfelli þar sem ekkert varð af námskeið- inu vegna lítillar þátttöku, en svar sem berst eftir eindaga hlýtur að berast of seint þó svo að hringt sé og tilkynnt að svar sé á leiðinni í pósti. En þrátt fyrir allt þá voru Þorsteinn Þorsteinsson. þeir það samviskusamir að svara bréfinu, en því miður voru aðrir sem ekki fannst það pappírsins virði að svara. Það gefast allir upp á því að gera eitthvað sem þarfn- ast skipulagningar ef alltaf þarf að hafa eindaga á tilkynningu um aðild eða þátttöku miklu fyrr en nauðsynlegt er, aðeins vegna þess að það eru alltaf einhverjir sem láta vita of seint og virðast hafa það fyrir reglu frekar en undan- tekningu. Það er ekki þar með sagt að við þurfum að gleypa við öllu sem að okkur er rétt, en ef við höfum einhvern áhuga fyrir því sem er verið að gera í hverju sinni þá verðum við að bregðast rétt við og á réttum tíma. Nú þurfa for- menn harmoníkufélaganna að koma sér saman um hvort svona námskeið er æskilegt og eins hvernig ber að standa að slíku ef það telst vænlegt og eins til hvers eða hverra á að leita. Auðvitað er sjálfsagt að ræða slíkt innan S.Í.H.U. en þar er hinn rétti grundvöllur til að ræða slík mál. Við skulum njóta sumarsins og koma tvíelfd til vetrarstarfsins. En þangað til GLEÐILEGT SUMAR. Þ.Þ. 3

x

Harmoníkan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.