Harmoníkan - 31.05.1989, Page 8

Harmoníkan - 31.05.1989, Page 8
Frá œfingu á kaffistofunni haustið 1986. Vestan af fjörðum Harmoníkufélag Vestfjarða var stofnað formlega í nóvember 1986. Aðdragandi þeirrar stofnunar var þá orðinn nokkur. Harmoníkuleikar- ar höfðu hist og rætt málin, en fullur skriður komst þó fyrst á þetta þegar haldinn var dansleikur að gömlum sið í svonefndu Turnhúsi í Neðstakaup- stað á ísafirði. Turnhúsið er yfir 200 ára gamalt og var notað sem pakkhús fyrr á árum, en hefur nú verið gert upp og hýsir sjóminjasafn. Þegar haldið var upp á 200 ára af- mæli ísafjarðarkaupstaðar sumarið 1986 var fyrrgreindur dansleikur haldinn í Turnhúsinu og þangað boð- aðir harmoníkuleikarar sem tiltækir kynnu að vera. Þátttaka varð mjög góð, á annan tug nikkara mætti á staðinn og það var dansað bæði úti og inni fram á nótt. Eftir þetta hittust harmoníkuleik- arar aftur og stofnuðu Harmoníku- félag Vestfjarða í nóvember 1986. Á þeim tveimur árum sem félagið hefur starfað hefur myndast kjarni um 15 harmonikuleikara sem halda hópinn og hittast að jafnaði einu sinni í viku yfir vetrartímann og taka lagið. Samkomustaðurinn er á kaffistofu í Skipasmíðastöð Marselíusar Bern- harðssonar, rúmgott pláss með góð- um anda; skipamyndir á veggjum og ævinlega kaffi á könnunni. Síðan hafa félagarnir leikið víða í nafni félagsins, ýmist fleiri eða færri hverju sinni. Það hefur verið leikið á útihátiðum, samkomum og við hin og þessi tækifæri. Efnt hefur verið til dansleikja í samráði við gömludansa- klúbbinn hér, og þá einkum leiknir gömlu dansarnir í bland með sigildum gullaldarslögurum. Þá hefur verið fastur liður að leika fyrir eldri borgara hér í bæ og hafa viðtökur þar verið einstaklega góðar, eins og reyndar viðast hvar þar sem leikið hefur verið. Tónlistarskóla ísafjarðar var ritað bréf á síðasta vetri og farið fram á að skólinn kannaði möguleika á að taka upp kennslu í harmoníkuleik. Undirtektir skólans voru mjög góð- ar og kom skólastjórinn, Sigríður Ragnarsdóttir á fund stjórnar nú í september og ræddi málin. Er afráðið að hefja kennslu í harmoníkuleik eftir næstu mánaða- mót. Harmoníkufélagið hefur í hyggju að kaupa eina eða tvær harmoníkur af unglingastærð og færa skólanum að gjöf af þessu tilefni. Þá hefur verið ákveðið að félögum mun gefast tækifæri til að læra og æfa nótnalestur á vegum skólans, hvort heldur er sem einstaklingum eða í hópkennslu. Fram til þessa hefur lítið verið æft á skipulegan hátt eftir nótum, en meira byggt á þeirri kunnáttu og hefð- um sem félagarnir hafa byggt störf sín á fram til þessa. Því verður að sjálfsögðu haldið áfram, en jafnframteru að hefjast æf- ingar á tví- og þrírödduðum verkum. Ein af stofnendunum Messíana Marsellíusdóttir mun leiðbeina í þess- um efnum, en hún mun einnig annast kennslu í Tónlistarskólanum þegar hún hefst eftir áramótin. Félagar í Harmoníkufélagi Vest- fjarða eru nær 50 talsins, og eru dreifðir um Vestfirðina vestanverða. Því miður hefur ekki náðst til þeirra allra, sem virkra félaga, þar sem æf- ingar eru eingöngu á veturna og sam- Jón Sigurpá/sson, safnvörður í Neðstakaupstað hefur plokkað bass- ann með okkur auk þess sem Gunnar Hólm hefur leikið á trommur, en því miður vantar mynd af honum. 8

x

Harmoníkan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.