Harmoníkan - 31.05.1989, Page 11

Harmoníkan - 31.05.1989, Page 11
Fra útvarpsstöð í Vancouver, þarna áég harmoníku af gerðinni Chiu Saroli Itali, u.þ.b. 35—37 motel úrvals hljóðfceri sem fyrrum var í eigu Lýðs Sigtryggssonar. Meðleikar- arnir eru, frá v. Curly Johnson, Roy Hashuld, Jonny Zapp, á söngkonunni hef ég ekki nafn. tónskáldi, fiðluleikara og músikráðu- naut útvarpsins. Það varð úr að við mættum í barna- tima útvarpsins, báðir með harmoníku og lékum þarna í beinni útsendingu dúettana góðu. Við vor- um fengnir aftur og aftur, urðum landsþekktir. Útvarpið var eini ljós- vaka fjölmiðillinn og mikið hlustað á þessum árum, kringum 1943. Fyrir klaufaskap fékk ég ekki áfram tíma hjá dananum en klóraði mig áfram sjálfur þangað til ég frétti af Braga Hlíðberg, ég hafði hlustað á hann á hljómleikum í Austurbæjarbíói. Þar áður var ég búinn að hlusta á Lýð Sig- tryggsson með sínum norska kennara Hartvig Kristofersen. Ég sá sem sagt að þarna var eitthvað að gerast. Fyrir utan þetta heyrði maður alltaf af og til í útvarpi Bjarna Böðvarsson leika með útvarpshljómsveitinni. Ég held hann hafi verið frumkvöðullinn í að blanda harmoníkunni með öðrum hljóðfærum. Mér finnst jaðra við að harmoníkan hafi verið of mikið ein- leikshljóðfæri, það má breytast. Ég baðst ásjár hjá Braga Hlíðberg og hann tók mig í tíma, þá var ég fjórtán — fimmtán ára. Um þetta leiti er ég farinn að spila það mikið að ég spila í þriggja manna gömludansagrúþþu suður í Hafnarfirði með Jenna Jóns lagahöfundi og Jóhanni Eymunds- syni. Við spiluðum í tvo vetur í Al- þýðuhúsinu oft tvö kvöld í viku. Kröf- ur dansgesta voru gífurlegar um að takturinn væri hárréttur, þetta voru þéttsetin böll. Svo fór Bragi til Ameríku að fullnuma sig eitthvað meira. Þá dreif ég mig í tónlistarskól- ann; í klarinettuleik hjá kennara ætt- uðum frá Húsavík að nafni Egill Jónsson. Hafði áður fengið tilsögn í sellóleik. Þegar Bragi kom aftur frá Ameríku fékk ég að vera áfram. Hann vissi að ég hefði ofsalegan áhuga og hann út- vegaði mér nótur og hvaðeina. Á þess- um árum er ég farinn að koma fram á fullu sem sólisti sérstaklega niður í gamla Sjálfstæðishúsinu við Austur- völl, þá voru haldnar reviur sem voru mjög vinsælar og gengu lengi. Har- aldur Á. Sigurðsson kynnti mig sér- staklega og ég kom fram sem sérstakt númer sminkaður og uppáklæddur. Hann lét alltaf salinn hlægja, það var létt að koma fram þarna, maður öðl- aðist mikla reynslu — komst til dæmis alveg yfir sviðsskrekkinn. Þetta voru glæsilegar skemmtanir 3—4 sinnum í viku fyrir troðfullu húsi. Það komu fram dansarar, leikarar og söngvarar. Ég heyrði fyrst Sigurð Ólafsson koma fram þarna. Mér var sagt að hljóm- sveit Aage Lorange sem lék fyrir dans- inum hafi verið heilt ár á kaupi að undirbúa dagskrá fyrir þetta. Ég var í þessu meira og minna í tvö ár, stund- um kom Bragi Hlíðberg í minn stað og Jan Moravék, hann gerði skemmtileg- ar kúnstir utan að leika á harmoníku, hann lék á fjöldann allan af hljóðfær- um líka. Eftir þetta lá leiðin til Akureyrar þar sem ég fór að spila á Hótel Norð- urland með fleiri mönnum og eftir það alla leið til Kaupmannahafnar. Maður fór þarna út með eina sokka, jakka og harmoníku, lenti strax í að spila á bjórkrá með gítarleikara sem líka söng, gott tímabil, fast kaup og svoleiðis. Aftur lá leiðin til íslands og þá tók við tilhugalífið, og stuttu seinna var ég farinn að spila með hljómsveit Svavars Gests í Breiðfirð- ingabúð. Við fórum meðal annars til Vestmannaeyja að spila þar á vorver- tíð í þrjár til fjórar vikur fyrir sjóar- ana, mér fannst mjög gaman að upp- lifa þetta. Ég spilaði með Svavari þar til að ég fór til Vancouver í Kanada ár- ið 1952 m.a. til að læra meira. Kanada heillar Til að byrja með gekk ekki vel, maður rak sig á vegg í flestu. Ég byrj- aði í allskonar stritvinnu til að hafa ofan í okkur og á. Við áttum orðið eitt barn ég og konan mín. Ég hitti alla- vega músíkkanta þarna, loks auglýsti ég mig og í nokkur kvöld komu þarna ýmsir og prufuðu mig sundur og sam- an. Þetta voru allra þjóða kvikindi, ungverjar, rússar, þjóðverjar, kanada- menn og englendingar. Einu komst ég þá að, allir voru með allægsta kaup sem ég hafði heyrt um á æfinni. Þeir urðu mjög hissa þegar ég tók ekki bara fyrsta tilboði. Á öðrum degi kom til mín mjög skrautlegur náungi, stór og sterkur í „western cowboy“ útliti frá toppi til táar. Hann lét mig spila með sér í erfiðum tóntegundum, það gekk einhvernveginn og hann réð mig. Launin voru 60 dollarar á viku sem var það mesta sem komið hafði fram að þessu. Vorum sex vikur í þessari tónleikaferð. Jú við fimmmenning- arnir spiluðum fjögur til fimm kvöld vikunnar í B.C. og Alberta fylki. Hljómsveitarstjórinn var þekktur maður sem hafði verið með kunna tónlistamenn á sínum snærum. Það er nefnilega galdurinn þarna að vera nógu þekktur, annað gengur ekki. Ég hefði aldrei getað gert neitt einn, hefði ekki fengið múlasna til að hlusta á mig. Er ég kom til Vancouver aftur fór ég í fiskvinnu og var að spila eitt og eitt kvöld með hinum og þessum, tók því sem að höndum bar. Allt í einu vill cowboyinn fá mig aftur með sér til Kalgarí, ég hafði fest kaup á húsi en ég bara slaufaði því. í Kalgarí átti að vera mögulegt að komast í mjög góða út- varpsstöð til að auglýsa okkur upp. 11

x

Harmoníkan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.