Harmoníkan - 31.05.1989, Qupperneq 17
Góugleði
h.uy.
í Fannahlíð
ElNS og allir muna hefur verið hið
mesta vetraríki síðastliðinn vetur, oft
kolófært víða um land dögum saman.
H.U.V. létu vetur konung ekki aftra sér
frá að halda góufagnað þann 25.
febrúar í Fannahlíð sem ekki er langt
frá Grundartanga. Þennan dag var
besta veður en þó nokkuð hvasst svo
víða dró í skafla. Mér og konu minni
var boðið uppeftir og var það okkur
mikil ánægja að þiggja það. Við sigld-
um Faxaflóann með Akraþorginni
uppeftir en hugðumst aka heim.
Fannahlíð er lítið snoturt samkomu-
hús sem stóð vel undir nafni þetta
kvöld, umgirt fönn á alla vegu með
snjófjúki á gluggum eins og sést á
jólapóstkortum, mjög rómantískt.
Ekki var fjölmennt enda víða ófært á
hinu stóra félagssvæði H.U.V. en þvi
meira fjör og mikið dansað.
Formaður félagsins Gunnar Gauti
Jón Heiðar Magnússon frá Akranesi,
fjörugur dansspilari, bakatil se'st í Han-
nes Baldursson.
Frá vinstri: Geir Guðlaugsson frá
Kjaransstöðum, Guðmundur Samú-
elsson Akranesi, Snorri Jónsson
Akranesi, og Óðinn Helgason Akra-
nesi.
Gunnarsson fór með gamanmál og
boðið var upp á fjölbreyttan matseðil.
Þegar skemmtunin var úti um þrjú-
leytið hugðumst við eins og áður var
sagt aka heim en leiðin hafði lokast
á fleiri en einum stað. Okkur var hoð-
in gisting hjá Guðmundi Samúelssyni
og frú um nóttina og lengdist dvölin
dálítið við það. Minnisríkt og
skemmtilegt. Hafið þökk.
H.H.
Molar
„Rock-gítarleikarinn“ Eric Clap-
ton er að leggja upp í tónleikaferð og
eins og margir heimsfrægir skemmti-
kraftar gera. Þá er hann með upphit-
unarhljómsveit sem leikur í upphafi
tónleikanna. Fyrir valinu í þessa ferð
var zydekohljómsveit sem nefnist
„Buchwheat“ eftir harmoníkuleikar-
anum sem þar leikur. Það er víst að
þarna fær harmoníkan óvænt marga
hlustendur.
Sænski harmoníkuleikarinn Hans
Muthas lést fyrir nokkrum mánuðum
aðeins 42 ára. Það er ekki víst að það
séu margir íslendingar sem kannst við
nafnið en einhvern tíma var í harmon-
ikuþætti ríkisútvarpsins leikið af
hljómplötu með honum. Hann var vel
þekktur í sínu heimalandi og eins víð-
ar um skandinavíu.
17