Harmoníkan - 31.05.1989, Side 20

Harmoníkan - 31.05.1989, Side 20
MINNING Jóhannes Pétursson J ÓHANNES Pétursson er látinn, að- eins 63 ára, hann lést á heimili sínu í Garðabæ 11. apríl síðastliðinn. Und- anfarin ár átti hann við veikindi að stríða, en bar þau með miklum hetju- skap og kvartaði aldrei, eyddi heldur umræðunni um þau væri hann inntur eftir. Jói P. eins og hann var kallaður meðal harmoníkufólks var sterkur persónuleiki með alla skapaða hluti á hreinu og hafði unun af góðum sam- ræðum, var tónlistamaður af lífi og sál, kunni þá list að skemmta fólki, hann lék með danshljómsveitum í ára- tugi, enda afbragðs harmoníkuleik- ari. Ég kynntist Jóa fyrir um 15 árum en þá var ég nýfluttur í Garðabæ, leið- ir okkar láu æ oftar saman, bæði í sambandi við harmoníkuna og á heimilum okkar. Jóhannes var með afbriggðum hugmyndaríkur og verk- hagur, ég kynntist oft síðar að Jói leysti ýmis vandaverk sem flestum hefði ekki dreymt að væri mögulegt. í sambandi við viðgerðir á harmon- íkum kom hann nokkuð við sögu einkum og sér í lagi rafmagnsbúnað. Jói P. var í Félagi harmoníkuunn- enda í Reykjavík, um tíma í hljóm- sveit félagsins, m.a. þegar F.H.U.R. var boðið að koma fram í Grieg höll- inni í Bergen 1987. Það var ósjaldan að hann kom fram á skemmtunum félagsins. Ekki vitum við um nema eitt lag hljóðritað með Jóa, en það er rússneska lagið Toska á plötunni „Á ferð með harmoníkuunnendum“. Jóhannes var fæddur í Reykjavík 1. nóvember 1926 og ólst þar upp, stund- Minning John Molinari I febrúar s.l. lést hinn heimsfrægi harmonikuleikari John Molinari eftir baráttu við krabbamein. Molinari kom nokkrum sinnum til Islands, fyrst fyrir milligöngu tónlistar- og út- varpsmannsins Svavars Gests, en seinna á eigin vegum. Hérlendis hélt hann tónleika víða og spilaði meðal annars í útvarpið og er það mál manna sem á hann hlýddu að aldrei hafi annar eins harmonikuleikari spil- að á Islandi, svo mikil var hrifning þeirra. Hvort það er sannleikur er svo annað mál, en margir sem fóru á tón- leika hjá honum eru enn að vitna í þá og eitt er víst að áhugi fyrir harmonik- unni jókst til muna hérlendis við þess- ar heimsóknir. I harmonikuþætti 30. John Molinari. apríl sl. ræddi Högni Jónsson um Molinari og var þátturinn helgaður minningu hans með því að leika ein- göngu lög með honum, einnig vék hann m.a. að vináttu Molinaris og Braga Hliðbergs en hún hafði staðið í mörg ár. Hvort nokkuð af því sem flutt var í þættinum voru hljóðritanir útvarpsins var ekki tekið fram, sem við vonandi fáum að hlusta á ef þær eru til í safni útvarpsins. Þ.Þ. HITTUMST í GALTALÆK Jóhannes Pétursson. aði tónlistarnám, starfaði við bíla- smíði og bilaviðgerðir, nam loft- skeytafræði í Englandi, lauk prófi frá London Telegraph Training College 1947. Hann hóf störf hjá Landsíma Islands, fyrst á bílaverkstæði en vorið 1948 við fjarskiptastöðina í Gufunesi, fyrst sem loftskeytamaður og símrit- ari en síðast sem yfirvarðstjóri. Jó- hannes giftist 1960 Hrafnhildi Hall- dórsdóttir húsmæðrakennara frá Hafnarfirði, þau eignuðust fjögur börn. Þau eru Hildur, fædd 1961, tón- menntakennari Þorleikur fæddur 1962, við nám í verkfræði í Dan- mörku, Halla Margrét, fædd 1965, íþróttakennari og Ólafía Ása, fædd 1971, við nám í menntaskóla. Jóhannes Pétursson var til moldar borinn frá Þjóðkirkjunni í Hafnar- firði 19. apríl, við athöfnina lék félagi hans Bragi Hlíðberg á harmoníku. Við vottum eiginkonu börnum og aðstandendum öllum dýpstu samúð. H.H. Barmmerki Höfum látið útbúa þessi barmmerki fyrir íslenska harmoníkuunnendur — ATH að fánalitirnir í merkinu eru í LIT. Verð aðeins kr. 150.- Hringið eða skrifið HARMONÍKAN tímarit harmoníkuunnendans 20

x

Harmoníkan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.