Harmoníkan - 31.05.1989, Side 21
Frá Danmörku
ElNS og mörgum er kunnugt hef ég
lagt gífurlega mikla vinnu í
harmonikumál allra norðurlandanna,
en síðast og ekki síst fyrir ísland. Vil
ég þá fyrst nefna harmonikumót sem
verður haldið hér á Jótlandi í Vide-
bæk, nú síðast í apríl. Eftir mínum
ráðleggingum varð Karl Jónatansson
fyrir valinu og kemur hann fram þar
tvö kvöld í röð. Með honum verður
sonur hans, Jónatan, sem er við nám
í Kaupmannahöfn og höfum við fyrir
löngu sent þeim báðum farseðlana
héðan. Formaður þeirra Videbæk
félaga, sem er mjög jákvæður ungur
maður kom í heimsókn til mín eina
helgi á dögunum, og þá var allt sem
varðar harmonikumál, bæði innan-
lands og utan, rækilega rætt. Sömu-
leiðis hefur samband milli þeirra og
Sigmund Dehli komist á, svo hann
kemur frá Noregi með hljómsveit
líka. Sigmund hefur beðið mig að
skrifa í blað þeirra norðmanna,
Það var verið að leggja veginn yfir
Holtavörðuheiði sumarið 1933. Verk-
stjóri var Ari Guðmundsson frá
Skálpastöðum í Lundareykjadal. Til
hans hringir Haraldur Ágústsson frá
Klettakoti á Skógarströnd. Falar hann
vinnu af Ara. „Talaðu við mig eftir
viku“, segir Ari. Að viku liðinni hring-
ir Haraldur í Ara og spyr um úrslit
bónar. „Þú ert ráðinn“, svarar Ari.
Vann Haraldur allt sumarið til hausts,
en þá voru tjöld tekin upp og vinnu
„Gammel Dans“ og það hef ég sam-
þykkt. Eins og fram kom í síðasta
blaði, er stærsta mótið hér í sumar
haldið í Bindslev hér á norður Jót-
landi og hefur tekist að fá Island með
í fyrsta skipti. Sigurður Guðmunds-
son formaður Harmónikufélags
Reykjavíkur kom til mín um páskana.
Fórum við í skoðunarferð um móts-
svæðið og yfir 30 manns voru þegar
komnir á skrá til þátttöku i umrædda
ferð. Áætlað er að um 20 manns verði
í hljómsveitinni. í þessa ferð hefur al-
menningi verið boðin þátttaka. Fánar
frá 5 þjóðlöndum verða nú í fyrsta
skipti dregnir að húni. Sigmund Dehli
kemur líka fram þar eins og í fyrra, en
í þetta skipti á skrá. Margar nýjar
hljómsveitir frá Svíþjóð hafa nú þeg-
ar tilkynnt þátttöku, sömuleiðis frá
Noregi. Ég myndi vilja giska á að
mótsgestir verði í allt um 20.000 tals-
ins. íslensk harmonikumúsik heyrist
hætt. Víkur Haraldur sér þá að Ara og
spyr hann: „Af hverju réðstu mig í
vor, bláókunnugan manninn?“ Ég
frétti að þú ættir harmoníku var svar-
ið.
Leifur Sveinsson.
Hermóður B. Alfreðsson.
nú líka í útvarpi í Noregi, t.d. Reynir
Jónasson með sinn Vikivaka.
Á meðan við höldum okkur við
Noreg langar mig að geta þess að Sig-
urður Guðmundsson sem er mjög
músíkalskur maður tók í takkanikku
með norskum gripum, meðan hann
var í heimsókn hjá mér og eftir 10
mínútur spiluðum við saman eins og
við hefðum aldrei gert annað!
Hér erum við að athuga með útgáfu
á nýju landsblaði.
Áhuginn fyrir íslandi er mikill
Eins og ég hef áður minnst á, á væri
best að halda landsmót á íslandi í júlí
til að fá þátttöku erlendis frá. En af
óþekktri ástæðu hefur það aldrei ver-
ið birt í „Harmoníkunni“.
Með vinsemd og virðingu.
Hermóður.
Stuðlatónar auglýsa!
Nú er aðeins ein Lars Ek hnappaharmoníka óseld. Einnig notuð 4.
kóra VICTORIA með cassotto, sænsk grip.
Ýmis skipti möguleg.
Útvegum margar gerðir af ítölskum og frönskum harmoníkum.
TOLLEFSEN snældan enn fyrirliggjandi.
STUÐLATÓNAR
Pósthólf 9009
Sími: 72478
Saga eftir Haraldi heitnum Ágústsyni í Keflavík (f. 1910— d. 1988).
Á Holtavörðuheiði
21