Harmoníkan - 30.05.1996, Blaðsíða 15

Harmoníkan - 30.05.1996, Blaðsíða 15
myndað af mannslunganu, en hitt er myndað með belg. Skyldleiki harm- oníkunnar við portative er fólginn í því að hljóðfærin eru fest með ólum við hljóðfæraleikarann, og í báðum tilfellum er vinstri hðnd notuð til að stjóma belgn- um. Regal og harmoníkan eru tengd að því leyti að bæði eru með tónfjaðrir, en í regal er slegið á þær en í harmoníkunni sveiflast þær af loftstraumi. Bæði hafa áþekk hljómborð og belg. Tónlist sem leikin er á bæði regal og portative er að- eins framkvæmd með hægri hendi á meðan báðar hendur eru notaðar við harmoníkuleik. Harmoníkan, portative og regal eru öll með belg og hægt er að ferðast með þau öll og bera með sér, og eins og oft vill verða er margt líkt með skyldum. Hér endar samlíking þeirra og við skoðum enn frekar skyldleikann við cheng. Ef við lítum fram hjá því hvaðan loftið kemur, þá er niðurstaðan sú að hljóðið myndast eingöngu af sveiflandi tónfjöður. Hljóð- ið er mismunandi eftir gerð tónfjaðra, sem allar búa yfir eigin fegurð. Þegar t.d. evrópskir orgelsmiðir á 18. öld, hljómfræðingar og eðlisfræðingar heyrðu í þessari frábæru tónfjöður, urðu þeir augljóslega töfraðir, því á markaðinn flæddu margar gerðir hljóðfæra með tón- fjöður snemma á 19. öldinni. Þessi hljóð- færi voru af ýmsum stærðum og gerðum. Sum voru lítil sem blásið var í eins og t.d. „blásturs-harmoníka" (blow accord- ion), munnharpa, aeolina og symphon- ion. Önnur voru með belg eins og t.d. harmoníka, bandoneon, og konsertína, og önnur enn stærri sem staðsett voru á ákveðnum stöðum eins og „seraphine", harmóníum og melodeon. Sumar heimildir greina frá því að Cyrillus Damian frá Vín hafi árið 1829 fundið upp harmoníkuna. En staðreynd- in er önnur því að það er viðurkennd skoðun að fyrstu harmoníkuna hafi Friedrich Buschmann frá Berlín smíðað árið 1822 og var nefnt Handaoline. Fyrsta harmoníkan var eins og svo marg- ar aðrar nýjungar, klunnaleg, þung og með frekar ljótan hljóm. Vegna hinna óviðjafnanlegu hljómasetningu á bössun- um fyrir vinstri hendi var hún nefnd „Accordion" (harmoníka) af fyrmefndum Damian. Þessi ófágaða frumgerð harm- oníkunnar var aflöng í laginu og með fjórar nótur í bassa. Hver hnappur var tengdur tveim tónfjöðrum sem mynduðu áttund í díatónískum tónstiga. Hnappam- ir voru þannig tengdir að þeir gátu fylgt eftir ríkjandi tóntegund. Þegar síðar var bætt við tónum sem fylltu krómatíska tónstigann, jukust möguleikarnir á að spila fjölbreyttari tónlist og samhljóma. í byrjun vann harmoníkan á sama hátt og munnharpa, það er að segja að einn tónn heyrðist þegar belgurinn var dreginn út og annar þegar honum var þrýst saman þótt stutt væri á sama hnappinn. Þessi gerð harmoníku var og er enn þekkt sem eintóna harmoníka. Þetta kerfi hefur hinsvegar verið þróað og í dag heyrist sami tónninn í hvora áttina sem belgur- inn er hreyfður. Samtíma hljóðfæri harmoníkunnar var konsertína. Þetta hljóðfæri var fundið upp af Sir Charles Wheatstone 1829 og var fyrst kallað Symphonion með belgi. Það fékk viðurkenningu sem almenn- ingshljóðfæri í júní 1833, og í desember sama ár fékk það nýtt nafn - konsertína. Konsertína varð fljótlega virt hljóðfæri á tónleikum og mörg tónverk voru samin sérstaklega fyrir hana, sem fjöldi lista- manna fluttu á tónleikum sínum. í sannleika sagt, náði harmoníkan ekki miklum frama í upphafi, þó svo að mað- ur að nafni Bouton frá París hafi sett á hana píanóhljómborð árið 1852, náði hún ekki vinsældum fyrr en á tuttugustu öld- inni. Eftir að evrópskir hljóðfærafram- leiðendur heyrðu í harmoníkunni, ákváðu þeir hver fyrir sig að hefja framleiðslu á henni. Utkoman varð sú, að margar mis- munandi gerðir af hljómborðum urðu til eins og t.d. hollenskt, franskt, belgískt, þýskt, ítalskt og rússneskt. Þýska gerðin af harmoníku, einnig kunn sem melodeon, hafði allt að fjórar skiptingar, tvo bassa og eina 10 nótna röð í hægri hendi. Síðar var hún framleidd með 19 nótum í tveim röðum fyrir hægri hendi og fjórum bössum. Eldri ítalskar gerðir voru með fjóra bassa og eina röð í diskant með 10 nótum, eða tvær nótnaraðir í diskant og 8 bassa. Þessi gerð hafði engar skiptingar. Bæði þýsku og ítölsku gerðirnar voru einnig l'ram- leiddar í krómatískum tónstiga, og út frá þeim þróaðist krómatíska harmoníkan. Arið 1882 kom fram nýtt hljómborð fyrir píanóið, fundið upp af Poul von Janko. Þetta hljómborð var með 6 raðir stuttra nótna, sem var komið fyrir lítið eitt yfir hverja aðra í tröppuformi. Allar líkur eru á því að þarna sé komin fyrir- mynd sú sem evrópskir harmoníkusmiðir útfærðu að eigin höfði, og sem ensku- mælandi þjóðir nefna „chromatic", á þeim harmoníkum sem eru með hnappa- borð og krómatískan tónstiga. Ef litið er til fyrstu hljóðfæranna, var talið að innsetning tónfjaðranna hafi ver- ið í fullu samræmi við tíðarandann, sem átti að vera annaðhvort þíður eða skær. Hljómurinn var tónfræðingum fagnaðar- efni og gerðu þeir góðan róm að heppi- legri útfærslu á „innverki" harmoníkunn- ar. Þessi sérstaki tónstigi sem þurfti að vera í þeim, var á þeim tíma eðlilegur og hefðbundinn í tónlist, og tíðkaðist löngu fyrir tíma harmoníkunnar. Rétt fyrir 1850 setti Vínarbúi að nafni Walter, fyrstu krómatísku tónana í harmoníkuna, en að því er virðist án breytilegra tóna og skipt- inga. Það er staðfest að Belginn Armand Loriaux hafi árið 1892 verið fyrstur til að setja mismunandi tóna í harmoníkuna. Það er sennilega um svipað leyti sem krómatísk hljómborð nútímans koma fyrst fram í Evrópu. Önnur gerð hljóm- borða voru hnappar sem var raðað með jöfnu millibili, á mismunandi vegu en í sömu hæð sem er mjög frábrugðið píanó- borðinu. Eldri gerðir af krómatískum hnappaborðum voru með þrjár raðir í dis- kant. í dag eru hnappaharmoníkur með allt að 120 hnappa í diskant í fimm röð- um og spanna 5 áttundir - fjórða og fimmta röð eru endurtekning á fyrstu og annarri röð til hægðarauka. Bassahluti harmoníkunnar var þróað- ur frá grunntóna bassaröð og dúr-hljóma- röð. óðrum röðum var síðan bætt við uns þetta venjulega bassaborð okkar varð til, 15

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.