Harmoníkan - 30.05.1996, Blaðsíða 22

Harmoníkan - 30.05.1996, Blaðsíða 22
SAGA ÚR GÚTTÓ Fyrir nokkrum áratugum (síðan) fóru mektarhjón í Reykjavík á gömlu dansana í gamla Gúttó. Eins og við munum var Gúttó afgamalt hús og eins og í mörgum húsum álíka gömlum, var það innréttað þannig að allstaðar mátti ganga á milli herbergjanna; það mátti í raun ganga í hring um húsið, úr einu herbergi í annað. Nú, dansinn stóð sem hæst og hver einasti gestur á gólfinu, þar á meðal hjón- in fyrrnefndu. Sem þau voru nú að dansa þarna af miklu fjöri, varð maðurinn þess allt í einu var, að komin var stóreflis saumspretta á buxurnar hans. Með önd- ina í hálsinum stundi hann þessu upp við konuna sína. Henni brá hvergi, en kippti bóndanum fram á gang með sér. - Ég er með nál og enda. Geri við þetta eins og skot. Komdu hérna inn með mér sagði hún og tók stefnuna á kvennaklósettið. - Ertu frá þér, ég fer ekki þarna inn, sagði hann. - Láttu ekki svona. Þú ferð víst hérna inn, sagði hún og dröslaði honum á undan sér inn á kvennaprívatið. - Úr buxunum með þig, sagði hún. - Úr bux- unum hérna inni. Nei takk! - Úr buxunum segi ég ! Hann fór úr buxunum og hún þreif þær og hófst strax handa að gera við saumsprettuna. Sem hún kepptist við saumaskapinn, með hann standandi yfir sér í jakka, í skyrtu og með bindi, en berleggjaðan, var allt í einu rjálað við klósettdymar. Hann, við það að fá taugaáfall, hvíslaði eins hátt og heðangreindir aðilar á V/estfjörðum styrkja útgáfu _______þessa afmælisblaðs HARMOhÍKUhhAR ísafja rða rKa u psta ðu r Bolungarvíkurkaupstaður Súðavíkurhreppur Harmoníkufélag Vestfjarða ísafjarðarleið Mjólkursamlag ísfirðinga íshúsfélag ísfirðinga OITufélag útvegsmanna hann þorði og gat; - Þa, þa, það er ein- hver að koma! Hún lét sér hvergi bregða, en stökk á fætur, þreif í handlegginn á honum, svipti opnum dyrum þar nærri, ýtti honum hvatlega útfyrir og skellti á eftir honum. Hún var ekki fyrr búin að láta aftur dyrnar, er hún heyrði hann hrópa í angist mikilli; - Opnaðu Jósefína ég er inni í danssalnum. Afmæliskveðja Til Harmoníkunnar, frá Ann- Marie og Lars Ek. Við óskum ykkur til hamingju með 10 ára afmæli íslenska harm- oníkublaðsins Harmoníkunnar. Við óskum ykkur gæfu í framtíð- inni og þökkum fyrir liðin ár. Við hugsum til ykkar og allra vina okkar á Islandi og sendum með texsta við lagið Twilight on Is- land. Ann-Marie og Lars Ek, Svíþjóð. Afmæliskveðj a Á 10 ára afmæli Harm- oníkunnar árnar S.Í.H.U. blaðinu heilla og þakkar það brautryðj- endastarf sem ritstjórarnir hafa unnið. Erfitt er að gera sér í hug- arlund hvernig harmoníkuáhuga- fólk og samtök þess S.Í.H.U. hefðu farið að ef ekki hefði verið fyrir hendi vettvangur eins og blaðið Hannonikan. Hins vegar er áhyggjuefni hve fáir áskrifendur eru að blaðinu, það er ekki vansa- laust fyrir okkur lesendur blaðs- ins ef áskrifendum fjölgar ekki á sarna tíma og blaðið stækkar og er sífellt metnaðarfyllra og vand- aðra. Við eigum að gefa blaðinu þá afmælisgjöf að fjölga áskrifend- um um helming. Það er auðvelt ef við leggjumst á eitt, hvert okkar útvegar einn nýjan áskrifanda. Með þessu sýnum við í verki að við metum það sem þeir hafa verið að gera fyrir okkur, Hilmar og Þorsteinn, á þessum 10 árum. Fyrir hönd stjórnar S.I.H. U. Asgeir S. Sigurðsson formaður 22

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.