Harmonikublaðið - 01.12.2003, Qupperneq 3
HARMONIKUBLAÐIÐ
RITSTJÓRAPISTILL
ISSN 1670-200X
Ábyrgðarmaður :
Jóhannes Jónsson
Barrlundi 2 600 Akureyri
Sími 462 6432, 868 3774
Netfang: johild@simnet.is
Ritvinnsla:
Hildur Gunnarsdóttir
Prentvinnsla:
Alprent
Netfang: alprent@alprent.is
Meðal efnis
• Ómur frá
æskunnar dögum
• Rangæingar
heimsóttir
• Lag blaðsins
• Vestmannaeyjaferð
• Pistill frá
Húnvetningum
• Úr Svartaskógi
• Tónelsk fjölskylda
• Harry Hussey
Auglýsingaverð:
Baksíða 1/1 síða kr. 12.000
1/2 síða kr. 6.000
Innsíður 1/1 síða kr. 1 1.000
1/2 síða kr. 5.500
ii 1/4 sfða kr. 3.500
ii 1/8 sfða kr. 2.500
smáauglýsing kr. 1.500
Forsíðumynd:
Bragi Hlíðberg varð áttræður
þann 26. nóvembersl.
Harmonikublaðið árnar Braga
heilla í tilefni tímamótanna.
Frá rttstjóra
Ágætu lesendur!
Nú þegar þetta er skrifað hefur
myrkrið tekið völd á okkar norðlægu
slóðum, enda skemmstur sólargangur
handan við hornið og birtu sólar nýtur
vart yfir há daginn. Þegar myrkrið hefur
náð hámarki tekur við sá tími þegar sól
hækkar á lofti og jólahátíðin gengur í
garð með öllu sínu ljósaflóði og lýsir
upp skammdegið.
Ekki er að efa að skammdegismyrkrið
leggst misvel í harmonikufólk sem aðra,
þá er gott að taka nikkuna í fangið, leika
vals eða polka eða eitthvað annað hvað
það nú heitir, því það nærir sálina og
þeir sem ekki eiga nikku eiga ef til vill
góða harmonikutónlist að hlusta á.
Það er víst að margir harmonikuleik-
arar eru þessa dagana á fullu að leika á
sitt hljóðfæri við ýmis tækifæri, svo sem
á aðventutónleikum, litlu-jólum, í versl-
unum og víðar sér og öðrum til ánægju.
Fyrst ég minntist á harmonikutónlist
er ekki úr vegi að nefna að út er kominn
nýr diskur með hinum unga harmoniku-
leikara Matthíasi Kormákssyni og verður
spennandi að „berja hann eyrum", ef svo
má að orði komast. Þá er ekki úr vegi að
hvetja ykkur konur sem þegar hafið náð
góðum tökum á harmonikunni, að feta í
fótspor Matthíasar og leika inn á geisla-
disk, sem einleikarar eða fleiri saman,
því ég veit að til þess eruð þið fullfærar,
vantar bara að kíla á það. Ég vil vona að
þið harmonikukonur veltið þessu fyrir
ykkur í alvöru og ég þykist þess fullviss
að stjórn Sambands íslenskra Harmon-
ikuunnenda er tilbúin að styðja ykkur.
Eitt það ánægjulegasta sem fram-
undan er í starfi S.Í.H.U. er fyrirhugað
unglingamót sem haldið verður í Skaga-
firði í vor. Ætlunin með því er að gefa
ungum harmonikunemendum kost á að
dvelja saman eina helgi og njóta þess að
kynnast og spila saman á það hljóðfæri
sem þau hafa valið sér.
Að lokum sendir harmonikublaðið
öllum lesendum sínum og unnendum
harmonikunnar hugheilar jóla og nýárs-
kveðjur með von um gott samstarf á
nýju ári. J.J.
Fréttatilkynning!
Þau undur og stórmerki hafa gerst að fé- daginn 25.okt. - hálfgert „down"-ball
lag vort er áður hét Félag harmoniku- hvað aðsókn snertir, en allir ánægðir
unnenda á Selfossi og nágrenni heitir nú samt, nema e.t.v. gjaldkeri vor. Óli Th.
og hér eftir HARMONIKU-
FÉLAG SELFOSS, skamm-
stafað HFS.
Breyting þessi varð á að-
alfundi félagsins sunnu-
dagskvöldið 26.október;
samþykkt þar með átta at-
kvæðum gegn einu. Æfingar
hófust sunnudagskvöldið 2.
nóvember í Tryggvaskála.
Stjórnandi er Stefán Þor-
leifsson úr Þorlákshöfn.
Ball var í Básnum laugar-
Frá stofnfundi Félags harmonikuunnenda á Selfossi og
nágrenni fyrir 12 árum.