Harmonikublaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 7

Harmonikublaðið - 01.12.2003, Blaðsíða 7
HARMONIKUBLAÐIÐ Lagahöfundur Lag blaðsins: Bragi Harmonikusnillingur íslands varð áttræður 26. nóvember. Þessum titli hefur Bragi haldið í hugum harmonikuunnenda hátt í sjötíu ár enda var hann ekki gamall þegar hann sigr- aði í fyrstu keppni sem hér var haldin í harmonikuleik. Hann var aðeins 14 ára þegar hann hélt sína debut tónleika í Gamla Bíó þar lék hann konsertprógram sem hver snill- ingur gat verið hreykin af. Nú gæti maður haldið að Bragi Hlíðberg hafi verið leidd- ur í gegnum þessa frumraun af eldra fólki, en svo var ekki. Sjálfur fór hann og samdi um leigu á bíóinu kanski fyrir ferm- ingarpeningana, lét prenta efnisskrá og auglýsti. „Það er margt skrýtið í harmon- ikuleysinu", sagði Meistari Kjarval, en það sannaðist ekki á Braga, hann átti þó í töluverðum vandræðum með hljóðfæri; varð að skifta á norskum gripum fyrir sænsk og loks byrja að nýju og þá á pí- anóharmoniku þegar hnappanikkur feng- ust ekki hér á landi vegna stríðsins. Leið Braga lá svo til Bandaríkjanna þar sem hann hélt áfram námi sínu og náði heimsárangri á hljóðfæri sitt. Við íslend- ingar vorum hisvegar ekki alveg reiðu- búnir að taka á móti stórsnillingi í harm- onikuleik, samt fékk hann stórgóðar mót- tökur á hljómleikum sem hann hélt eftir heimkomuna. Um tvítugt lá leið mín til fiðlu og gítar- kennarans góðkunna Sigurðar Briem. Með í för var fyrrum nemandi hans, upp- rennandi gítargúrú Gunnar H. Jónsson. Ætlun mín var að komast í nám hjá Sigurði á hnappaharmoniku, sem þá var að mestu aflögð hér á landi. í fyrstu var Sigurður afar tregur til og taldi sig ófær- an að veita tilsögn á harmoniku. En svo bætti hann við og ljúft bros færðist yfir andlitið „Það var hjá mér harmonikudrengur fyrir mörgum árum Bragi fiét fiann og var son- ur fians Ións Hlíðberg, þessi drengur var svo hæfileikaríkur að aldrei þurfi að segja honum neitl nema einu sinni, þá kunni hann það og gerði æfinlega réll. Þessi drengur var mikið efni í tónlistarsnilling". Ég gleymdi ekki aðdáun Sigurðar á „harmonikudrengnum" Braga, en hafði ekki heyrt hann eða séð og það liðu mörg ár þar til sú stund rann upp. Það varð í Oddfelllow húsinu kvöld eitt á Hlíðberg áranna hafi verið í andaslitrunum hér á íslandi, Rokkið og Bíti- arnir sáu til þess með góðri hjálp Ríkisút- varpsins, en skyndilega var þögnin rofin, út kom breið- skífa hjá SG hljómplötum með sjálfum meistara Braga Hlíðberg að leika klass- íska harmonikustandarda. Um þetta leiti átti ég í bréfasambandi við þekktan Bandarískan áhugamann um harmonik- Á ierð og flugi með F.H.U.R kom út fyrir fimm árum og hefur að geyma leik hljómsveitar félagsins undir stjórn Þorvaldar Björnssonar. Meðal laga á diskinum F.H.U.R. marsinn, Hreðavatnsvalsinn og Tangóasyrpa. Ómissandi diskur í safnið. Verð kr. 1.500,- Pöntunarsímar: 568 6422 / 894 2322 sjötta áratugnum sem ég heyrði hann leika lög m.a. eftir Frosini og Deiro, og varð ekki fyrir vonbrigðum því túlkun og tækni var slík. Og enn líða ár næst sá ég Braga á tónleikum spila jazz eins og hann aldrei gerði annað. Á þessum árum má segja að harmonika gullnu una.sem hét Edvard Chavez. Ég sendi honum plötuna, og fékk um hæl þúsund- þakka bréf og beiðni um heimilisfang Braga! Hann fór með plötuna til Carles Magnante sem var lengi frægasti harm- onikuleikari Bandaríkjanna og sagði hann hafa orðið stórhrifinn. Ég hef oft spurt sjálfan mig hvort Bragi Hlíðberg hefði ekki orðið heimsfrægur harmonikuleikari hefði hann valið að búa í útlöndum. Salvatore di Gesualdo kvað uppúr með það að Bragi væri með svo hreinan og góðan stíl að einstakt væyi. Þess hafa íslenskir harmonikuunnendur fengið að njóta síðustu árin. H.J. QV

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.