Harmonikublaðið - 01.12.2003, Page 10

Harmonikublaðið - 01.12.2003, Page 10
Ferðasaga HARMONIKUBLAÐIÐ Vestmannaeyj afer ð Harmonikufélags Reykjavíkur Um borð í Herjólfi á leið til Eyja. Guðni Arnberg Þorsteinsson og Steindór Haarde. Harmonikufélag Reykja- víkur fór helgina 5.-7. september sl. í skemmti- ferð til Vestmannaeyja. Ferðin hafði verið ákveðin nokkrum mánuðum áður og gengið frá ferða og kostnaðaráætlun, þannig að allir vissu hvað til stóð og hvað var í boði. Menn höfðu vissar áhyggjur af að veð- ur gætu verið válynd á þessum tíma, en tveim dögum fyrir brottför höfðu 54 fé- lagar látið skrá sig í ferðina. Leggja átti af stað kl. 12 á föstudegin- um 5. september með ferjunni Herjólfi, sem er stórt og gott sjóskip og flytur far- þega og vörur til og frá Eyjum. Formaður félagsins sendi þátttakendum fréttabréf fyrir ferðina, þar sem hann lofaði venju- legu Vestmannaeyjaveðri, það er sól og blíðu. Kvöldið fyrir ferðina gerði afspyrnu suðvestan veður og leist ferðalöngum ekki á blikuna og hættu fjórir við ferðina á síðustu stundu. Um há- degi á föstudag voru allir mættir í Þorlákshöfn og var stigið um borð í Herjólf. Þá var enn talsverður strekk- ingur og sjógang- ur. Flestir tóku inn sjóveiki-pillur þar á meðal formaður- inn ,sem var þó gamall sjóari. For- maðurinn fékk að heyra að lítið væri að marka loforð hans um Vestmannaeyjaveðrið góða, en hann bað fólk að bíða, þar til komið væri til Eyjanna. Það skal að vísu játast að á þessum tímapunkti bar hann ugg í brjósti og hugsaði að nú væru góð ráð dýr. Ferð- in til Vestmannaeyja gekk vel en þó urðu nokkrir sjóveikir, þar á meðal lögfræðing- ur okkar Björn Óli, sem tók alltof margar sjóveikispillur, þannig að þær virkuðu öf- ugt og varð hann hvítari en nokkur snjór og kaldari en nokkurt lík. Þegar við komum til Eyja rann sjóveikin af fólkinu, enda skein sólin hátt á lofti og logn hafði skollið á eins og þruma úr heiðskíru lofti. Það skal játast hér að formaðurinn var mjög rogginn, þeg- ar hann gekk á land og sparaði ekki að núa salti í sár þeirra, sem höfðu ekki trúað orðum hans um góða Eyjaveðrið. Þegar allir höfðu safn- ast saman á bryggjunni var stigið upp í rútu, sem beið okkar og ók öllum á hótel, en gist var á þremur gististöðum. Þegar fólk hafði þvegið af sér seltuna og sjávar- rykið var farið f rútunni upp í Höllina til að borða kvöldverð. Höllin er nýlegt sam- komuhús Eyjanna í eigu Sigmars Georgs- sonar og eitt hið glæsilegasta, rúmar 500 manns í sæti. Þarna borðuðum við frá- bæran kvöldverð og skemmtum okkur fram eftir kvöldi við spil.söng og glens. Um kl. 22 var haldið úr Höllinni og fóru sumir heim en aðrir fóru á pöbba, hver heitir Lundinn og spiluðu félagar þar fyr- ir dansi fram yfir miðnætti. Laugardags- morgunn rann upp bjartur og fagur og fóru þeir árrisulu í gönguferð um bæinn, en kl. 11 átti að fara í siglingu umhverfis Eyjuna. Á slaginu 11 var lagt frá landi á snekkju, sem Sigmundur Einarsson, son- ur hins fræga prédikara Einars Gíslason- ar, var skipstjóri og eigandi að. Þetta var stórskemmtileg ferð, enda átti Sigmund- ur ekki langt að sækja frásagnarlistina og benti hann á fjöldann allan af örnefnum og sagði sögur þeim tengdum. Þegar komið var vestur fyrir Heimaey fór að leiða báru og fór þá að fara um í Höllinni í Eyjum. Fremst t.v. Guðrún Adda Ragnarsdóttir, Kjartan (ónsson, Hildur Petrea Friðriksdóttir, Lýður Benediktsson og Hákon Heimir Kristjánsson. Fremst t.h. Karlotta ). Helga-dóttir, Sveinn jóhannsson, Haraldur Arnljótsson, Örn Gissurarson og Nellý Sigurðar- dóttir. ŒHS''

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.