Harmonikublaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 5
HARMONIKUBLAÐIÐ
Fróðleikur
Pistill frá Guðmundi Helga á Akranesi
Gleðilegt sumar ágætu harmonikuunn-
endur. Maður þekkir mann og annan og
það gerðist einmitt í gær að maður bað
mann og annan og það endaði hjá mér,
þar sem í einfeldni minni sagði ég já eins
og svo oft áður ef ég er beðin. En að
þessu sinni að skrifa smá pistil í Harmon-
ikublaðið. Ég ákvað að reyna og tek af-
leiðingunum.
Fréttir af Harmonikuunnendum á
Vesturlandi eru góðar, spilarar hafa kom-
ið saman einu sinni í viku til æfinga í all-
an vetur og gera enn og haldin hafa verið
þessir hefðbundnu dansleikir sem hafa
verið frekar illa sóttir, en á meðan spilar-
ar geta skiptst á að spila og dansa við
eiginkonurnar þá verður að halda áfram
og hafa gaman af félagsskapnum.
Það var svo í byrjun apríl að Þórir )ó-
hannsson hringdi frá Blönduósi og tjáði
okkur að þeir í Félagi Harmonikuunn-
enda í Húnavatnssýslum yrðu með hag-
yrðingakvöld síðasta vetrardag, nú sem
endranær og væru í því tilefni með gesta-
spilara. Hann fór þess á leit við okkur
hvort við gætum tekið það hlutverk að
okkur í þetta sinn. Það er svo skemmst frá
því að segja að við ákváðum að slá til, þó
harmonikusveitin gæti ekki farið öll
vegna ýmissa frávika. Það var byrjað að
æfa og svo var haldið norður á hinum
síðasta degi vetrar í góðu veðri, og kom-
ið til Blönduóss um kvöldmatarleytið, þá
vorum við leidd að sumarbústað á tjald-
stæðinu sem var í alla staði dásamleg
vistarvera, sem við hefðum öll viljað vera
lengur í en við gátum. Ekki fannst
Blönduósingum nægjanlegt að hýsa
gesti sína, því þeir komu með smurbrauð
og fínerí á bökkum í bústaðinn svo nærri
lak út af ílátunum. Og ekki urðu veiting-
arnar minni er í félagsheimilið kom, þar
var okkur boðið í eldhús þar sem borðin
svignuðu undan veisluföngum. Með
þessu er ég að segja að móttökurnar sem
við fengum voru þvílíkt glæsilegar og frá-
bærar að ekki var hægt að gera betur.
Megi þeir hafa okkar bestu þakkir fyrir.
Hagyrðingakvöldið var skemmtilegt og
dansleikurinn á eftirvargóður, margt fólk
og glaðlegt. Eftir dansleikinn var gengið
til náða, og vorum við Snorri Jónsson
búnir að taka frá fyrir okkur herbergi sem
við ætluðum að deila með konum okkar,
en Jón Heiðar Magnússon og Lárus
Skúlason ætluðu að sofa í stofunni.
Nema þegar á að fara að sofa segir Lárus
mjög hæverskur, nei við |ón getum ekki
sofið saman. Svo það verður úr að ég
undirritaður og frú skiptum við þá og þeir
fara í herbergið sem við ætluðum okkur,
en þar voru tvær kojur. Þetta var Lárus
ánægður með og nú svaf annar hvor of-
aná hinum. Segir nú ekki meira af þvf par-
inu fyrr en um morguninn, þá kemur )ón
Heiðar fram og dæs-
ir og segist aldrei
sofa hjá Lárusi aftur,
hann hafi bara ekki
sofnaðfyrren kl. átta
um morguninn.
Hvers vegna? (Góð
spurning)
Þá var komið að
því að vita hvað við
tækjum fyrir viðvikið.
Nú þar sem við erum
flestir eða höfum
verið sveitamenn,
fannst okkur sann-
gjarnasti greiðslumiðillinn „Greiði á móti
greiða" Því 7. aprfl s.l. varð Félag harmon-
ikuunnenda Vesturlands 25 ára og ákveð-
ið í því tiiefni að halda afmælisdansleik í
Ásgarði í Glæsibæ 8. maí. Og þar sem
spilarar í Vesturlandssveitinni eru f færri
kantinum væri kærkomið að fá hjálpar-
sveit, ef þeir gætu komið því við.
Norðanmenn létu ekki sitt eftir liggja,
8. maí mætti í Ásgarði fönguieg sveit
harmonikuleikara frá Félagi harmoniku-
unnenda í Húnavatnssýslum með gull-
molann Svein Jóhannsson trommuleik-
ara. Og það get ég sagt (þó ég segi sjálf-
ur frá, eins og maðurinn sagði) að báðar
hljómsveitirnar sem spiluðu bæði sitt í
hvoru lagi og saman, stóðu sig með prýði
og sóma. Og megi norðanmenn hafa
bestu þakkir fyrir sitt framlag. Þessi dans-
leikur taldi nálægt 200 manns og voru
dansgestir ótrúlega duglegir að dansa.
Ég vil svo þakka öllum harmonikuunn-
endum fyrir veturinn og vonast til að sjá
sem flesta á útileguhátíðinni í Fannahlíð
17. júlí í sumar. Bestu kveðjur til allra
Guðm. Helgi Jensson
Akranesi.
Þessi mynd var tekin í bústaðnum á Blönduósi af okkur Vestlend-
ingum.
Þessi mynd er tekin út í danssal í Ásgarði í Glæsibæ.
Þarna eru í Ásgarði í Glæsibæ saman hluti af spilurum frá Harmoniku-
unnendum á Vesturlandi og Húnavatnssýslum.