Harmonikublaðið - 01.09.2006, Side 3
Harmonikublaðið
ISSN1670-200X
Ábyrgðarmaður: Hreinn Halldórsson
Faxatröd 6, 700 Egilsstödum
Sími 4711884, 866 5582
Netfang: fax6@simnet.is
og hreinn@egilsstadir.is
Prentvinnsla:
Héraðsprent, Egilsstödum
Netfang: print@heradsprent.is
Meðal efnis:
- Sumarhátíð í Svartaskógi
- Breiðumýrarhátíð
- Nú er lag ÍÁrnesi
- Harmonikufréttir úr Dalasýslu
- Svíþjóðarferð
Auglýsingaverð:
Baksíða í/isíða kr. 19.000
1/2 sída kr. 12.000
Innsídur 1/1 sída kr. 15.000
1/2 síða kr. 9.500
1/4 sída kr. 5.500
1/8 sída kr. 3.500
Smáauglýsingar kr. 2.000
Forsíðan:
Andri Snær og Bragi Fannar Þorsteinssynir
ásamt Aðalsteini ísfjörð þenja nikkurnar í
Svartaskógi um Verslunarmannahelgi 2006.
Mynd:Jónas Þórjóhannsson.
Efni í næsta blað, sem kemur út í desember,
þarfad berast fyrir lok nóvember.
V_________________________________________J
r
Harmonikublaðið
- september 2006
Gódir áskrifendur!
Vinsamlega leggid áskrift blaðsins,
kr. 1.500.- fyrir árið 2006 inn á reikning
nr. 0305 -13- 700,
Kt. 030349-3859
Mikilvægt er að nafn og/ eða kennitala
áskrifanda blaðsins komi fram þegar
greitt er.
V.
J
Frá ábyrgðarmanni
Sælt veri fólkið!
Ég vona að sumarið hafi verið farsælt
og sem flestir hafi notið útihátíðanna
og annarra skemmtana sem félögin
hafa haldið af myndarskap vítt um
land.
Útihátíðirnar hafa fyrir löngu sannað
tilverurétt sinn því fátt er betra fyrir
sálina en að dansa út í bjarta
sumarnóttina í góðu veðri og f fögru
umhverfi.
í þessu blaði er sagt frá nokkrum
þessara hátíða. Ein þeirra var haldin í
Svartaskógi af Harmonikufélagi Héraðs-
búa og tókst vel eftir því sem ég best
veit. Ég missti hins vegar af gleðinni því
á sama tíma var Unglingalandsmót
UMFÍ haldið á Laugum í Reykjadal. Þessi
íþróttamót hafa verið haldin á sama
tfma undanfarin árogvaxið að umfangi
og vinsældum enda vel að þeim staðið.
Unglingalandsmót SÍHU eru einnig
haldin en betur má gera, og þá er ekki
úr vegi að Ifta til skipulags UMFÍ sem
gefur sínu fólki ár til undirbúnings. Ég
lít svo á að haustið fyrir landsmót eigi
þátttakendur að fá upplýsingar um til
hvers er ætlast af þeim þannig að
veturinn nýtist sem best. Einnig þurfa
tónskólar að aðstoða nemendur sína
sem kostur er að ná settu marki og helst
að fylgja þeim eftir líkt og þjálfarar gera
ííþróttum.
Nú Ifður að aðalfundi SÍHU og þar
verður m.a. tekin fyrir útgáfa þessa
blaðs. Eins og staðan er og hefur
reyndar verið þá er ekki á vísan að róa
til að rekstur blaðsins gangi upp.
Áskrifendurerualltoffáirogauglýsingar
af skornum skammti. Þetta þýðir að
þeir sem gefa blaðið út geta í besta falli
reiknað með að sleppa og þá með því
að vinna í sjálfboðavinnu og etv. snapa
styrki til að borga ekki með sér. Til að
dæmið gangi upp má hugsa sér að
fjölga áskrifendum og ein leið til þess
er að aðildarfélög SÍHU greiði blaðið
fyrir sína félagsmenn. Viðkomandi
félagsmaður greiðir sfðan blaðið í
árgjaldi sínu til félagsins eða með
öðrum hætti sem félagið ákveður.
Enn eiga margir eftir að greiða áskrift
blaðsins og vona ég að menn bregðist
fljótt við og bregði sér á netið eða í
næsta banka.
Áætlað er að næsta blað komi út fyrri
hluta desember og hvet ég alla þá sem
þetta lesa að senda blaðinu efni sem
tengist harmonikunni á einhvern hátt.
Einnig væri gaman að fá lög í blaðið.
Mættu tengjast jólum. Efni í næsta blað
þarf að berast ábyrgðarmanni fyrir lok
nóvember á netfangið:
hreinn @egilsstadir.is
Nú er haustið skollið á með alla sína
litadýrð. Það er von mín að litbrigði
harmonikunnar nái til sem flestra í
haust og á komandi vetri.
Með góðri kveðju,
Hreinn Halldórsson
Létt og laggott á upplýsingaöld
Nokkur atriði sem undirstrika að þú lifir á upplýsingaöld:
- Þú hefur ekki lagt kapal með alvöru spilum árum saman.
- Þú ert með 15 númera lista yfir símanúmer hinna þriggja í fjölskyldunni.
- Þú sendir syni þinum tölvupóst sem segir: „það er kominn matur". Hann svarar með tölvupósti: „hvað er í matinn?“.
- Þú spjallar daglega við geðþekkan ungan pilt frá Suður-Afríku en hefur ekki rabbað við nágranna þinn í næsta húsi það sem af er árinu.
- Þú getur valið um það hvort þú færð kjúklingasúpuna með eða án Camfýlubakter.
- Þú hefur kannað hvort hárblásarinn þinn þoli ekki örugglega árið 2000.
- Amma þín hefur sent þér tölvupóst þar sem hún biður þig að senda sér JPG mynd af nýfædda barninu þínu svo hún geti notað hana
í skjáhvílu sem hún er að búa til.
- Þú rennir í hlað heima hjá þér og tekur upp GSM símann til að athuga hvort einhver sé heima.
- Ástæða þess að þú vanrækir tengslin við gamla vini þína er sú að þeir eru ekki með netfang.
- Alltaf þegar þú lýkur setningu með punkti skrifarðu óvart .is í staðinn fyrir einfaldan punkt.
- Að taka til í eldhúsinu er í þínum huga að henda tómu samlokupokunum úr aftursætinu í bílnum.
V