Harmonikublaðið - 01.09.2006, Síða 5
Pálmi Stefánsson
- Minning
Pálmi Stefánsson fæddist í Mjóanesi í
Vailahreppi 18 maí 1943. Hann lést á
Landspítalanum í Reykjavík 31. mars
2006. Foreldrar hans voru hjónin Stefán
Eyjólfsson bóndi í Mjóanesi og kona hans
Sveinbjörg Pétursdóttir húsmóðir. Syst-
kini Pálma eru: Reynir, Sigurlaug, Víðir
og Þuríður. Pálmi kvæntist 20. september
1964 Sigríði Flosadóttur frá Miðbæ í
Norðfirði, þau slitu samvistum 1988.
Börn þeirra eru: Björn Marinó, Stefán
Sveinn, Flosi og Þórunn María.
Sambýliskona Pálma var Þuríður
Margrét Haraldsdóttir frá Neskaupstað.
Pálmi ólst upp í Mjóanesi, gekk í
barnaskóla að Eyjólfsstöðum á Völlum en
eftir það lá leið hans í Alþýðuskólann á
Eiðum. Þar lauk hann gagnfræðaprófi
verknáms. Pálmi var á námssamningi hjá
Brúnás á Egilsstöðum, lærði þar
húsasmíði og lauk námi frá Iðnskólanum
í Neskaupstað í þeirri iðngrein.
1967-1968 flutti Pálmi með fjölskyldu
sfna f nýbyggt hús á Egilsstöðum og bjó
þar til ársins 1974 en þá flutti hann norður
á Sauðárkrók þar sem hann hafði ráðið sig
til Kaupfélags Skagfirðinga sem deildar-
stjóri trésmíðaverkstæðis KS. Þar starfaði
hann um sex ára skeið og sá um upp-
byggingu og viðhald fasteigna félagsins
fram til ársins 1980. Þá réði hann sig hjá
Trésmiðjunni Borg og vann þar í tvö ár.
1982 flutti fjölskyldan til Reykjavíkur en
þar starfaði hann við húsasmíði og sölu
fasteigna um árabil. Auk þess settist hann
afturá skólabekkflðnskólanum 1 Reykjavfk
og lauk þaðan meistaranámi í húsasmiði
með hæstu einkunn.
Árið 1998 flutti hann til sambýliskonu
sinnar í Danmörku en þau fluttu til
Reykjavíkur ári síðar. Árið 2000 lá leið
hans til Egilsstaða þar sem hann vann við
smíðar. Þau komu sér upp heimili í
Einbúablá 40 þar sem bjó til æviloka.
Pálmi hafið yndi af tónlist og leik á hin
ýmsu hljóðfæri. Einnig var hann virkur
félagi í Karlakórnum Drífanda. Hann var
ötull félagi í Harmonikufélagi Héraðsbúa
og kom meðal annars að starfi í stórsveit
félagsins og vann að sumarhátíðum sem
félagið hefur staðið fyrir í Svartaskógi.
Félagar í HFH þakka Pálma vel unnin
störf í þágu félagsins og votta aðstand-
endum hans samúð. Útför Pálma fór fram
frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 8 apríl
2006 og jarðsett var í Vallanes-
kirkjugarði.
Fyrir hönd stjórnar HFH
Gylfi Björnsson formaður.
Vigfús Sigurðsson
- Minning
fæddur 25. júní 1927, dáinn 18.
september 2005.
Fyrir hönd Harmonikufélags Rangæinga
langar mig að minnast með nokkrum
orðum Vigfúsar Sigurðssonar á Hellu.
Hann var einn af stofnendum félagsins
ogvirkur þátttakandi íþau rúm tuttugu ár
sem félagið hefur starfað. Hann spilaði
með hljómsveit félagsins allan tímann og
tók þátt í þeim atburðum er voru á
félagsins vegum. í ferðalögin okkar fór
hann og hafði gaman af, enda glöggur á
umhverfi sitt og hafsjór af fróðleik um
náttúruna. Hann var góður ferðafélagi og
létti okkur lund á ýmsan hátt. Frásagnar-
hæfileiki hans var einstakur og miðlaði
hann til okkar sögum um menn og
málefni. Einnigfuku oftvfsur þegartilefni
gafst til. Alltaf gætti hann þó þess að
enginn væri sár eftir.
Tryggur félagi var hann og orðheldinn
maður sem ætfð mátti treysta á ef hann
lofaði einhverju. Maður sem hélt sig ef til
vill aðeins til hlés en var til staðar ef með
þurfti. Aldrei heyrði ég hann hallmæla
nokkrum manni og það sem hann lagði
til málanna, með sinni hógværu glettni,
var alltaf á jákvæðu nótunum.
Tónlistin var honum í blóð borin og
söng hann meðal annars í kirkjukórum
um áratuga skeið. Síðustu árin f Árbæjar-
kirkju í Holtum.
Við kveðjum góðan félaga og vin og
þökkum fyrir okkur. Spilafélagarnir þakka
honum allar góðar stundir og minnast
samfylgdarinnar á vængjum tónanna í
tuttugu ár.
F.h. Harmonikufélags Rangæinga.
Sigrún Bjarnadóttir