Harmonikublaðið - 01.09.2006, Síða 8
Stefán Bragason orti að sama tilefni:
Harmonikum hamast á
hrekkursviti afbrúnum.
Gaman væri svo að sjá
suma klúka að frúnum.
Stjórnandi var Jónas Þór Jóhannsson
sem meðalannars lasupp úrskólaljóðum
það sem menn hafa ort um megrunarkúra,
eftirfarandi Ijóð:
Ég ætlaði í megrun - og þó,
ístrunni koma í lóg
en snarlega hætti
og á mig svo bætti.
Afmér verður aldrei nóg.
Ég hætti að hugsa um spikið,
nú held ég mér vel fyrir vikið.
Þið sjáið það hér
að sætur ég er.
Afmér verður aldrei ofmikið.
Þess ber að geta að Jónas hefur séð um
hagyrðingamótin og stjórnað þeim frá
upphafi og farist það vel úr hendi svo
vægt sé til orða tekið. Harmonikuleikarar
sem fram komu voru bræðurnir Andri
Snær og Bragi Fannar Þorsteinssynir frá
Höfn.ungirogefnilegirharmonikuleikarar
sem vöktu athygli mótshaldara á
landsmóti unglinga sem haldið var á
Akureyri f vor og hefur verið fjallað um
Jóhannes Kristjánsson eftirherma blessar lýðinn
á sinn einstaka hátt. Mynd: jónas Þór.
áður í blaðinu. Sömuleiðis lék Aðalsteinn
ísfjörð sem löngu er landsþekktur
harmonikuleikari og hefurverið á öllum
sumarhátfðunum f Svartaskógi frá
upphafi. Einnig
skemmti Jóhannes
Kristjánsson eftir-
herma við frábærar
undirtektir.Aðskemmt-
un lokinni á laugar-
daginn var dregið í
happdrætti. Gerð
vartilraun við útdrátt
vinninga þar sem
hagyrðingurinn Jón
Bjarki hlaut vinning
og var honum sagt
að vinningurinn væri
ein nótt með formanni HFH, Gylfa
Björnssyni. Að þvftilefni orti Jón:
Kasti réði kylfa,
kynlöngun tók að þverra.
Ég græddi nótt með Gylfa
það gat tæpast orðið verra.
Laugardagurinn endaði með hlaðborði
Hótels Svartaskógar en að kvöldverði
loknum dunaði dansinn fram á nótt.
Það eru góðar horfur á því að HFH haldi
þessar skemmtanir með líku sniði næstu
árin og auðvitað hvetjum við ykkur öll til
að koma og skemmta ykkur á
Austurlandi.
Jón Sigfússon
HagyrSingar. Frá vinstri: Kristján Magnússon, Björn Hafþór
Guðmundsson, jón Bjarki Stefánsson, Stefán Bragason og Kristjana
Björnsdóttir. Mynd: Jónas Þór.
H ARMONI KUSýN IN G
Lionssalnum Sóltúni 20 Reykjavík laugard. 7. október kl. 14 - 18.
Harmonikur í miklu úrvali, verð frá 29.000 kr.
Harmonikudiskar
Harmonikunótur
Harmonikupokar
Harmonikuólar
Sími 660 1648 / 462 7374
í Reykjavík 824 7610
ÁJiELIUm /8 BORSINl /
cl7úíf:a&a
d^TÍ^Ía
ZBRO S8TTB EUfí POLVERINI
8