Harmonikublaðið - 01.09.2006, Page 10

Harmonikublaðið - 01.09.2006, Page 10
Harmonikufréttir úr Dalasýslu TónlistarskóliDalasýsluvarstofnaður árið 1976 og hefur starfað af miklum krafti síðan. Þar hafa margir stundað nám um styttri eða lengri tíma. Fyrsti skólstjóri skólans var Guðmundur Ómar Óskarsson, þar næst kom Kjartan Eggertsson og núverandi landsmót hefur talið um og yfir 20 manns. Nikkólína hefur sfðst liðin ár veitt verðlaun þeim nemendum íTónlistar- skóla Dalasýslu, sem hafa sýnt mestar framfarir í harmonikuleik. Úr Tónlistarskóla Dalasýslu. skólastjóri er Halldór Þ. Þórðarson. Kennt er á öll algengustu hljóðfærin og reynt að koma til móts við óskir nemenda eins og kostur er. Nú á haustönn stunda um 50 nemendur nám við skólann, en það sem vekur athygli er að nemendur í harmonikuleik eru 11 talsins eða um 25% og eru það þæði fullorðnir og börn.m.a.tókSteinunnMatthfasdóttir sig til og fór í harmonikunám með börnum sínum Matthíasi Karli og Sunnu Björk. Harmonikuáhugi hefur lengi verið mikill í Dölunum og er það ekki sfst að þakka Harmonikufélaginu Nikkó- línu sem var stofnað árið 1981 og hefur starfað óslitið síðan undir stjórn Halldórs Þ. Þórðarsonar. Nikkólína hefur tekið þátt í flestum lands- mótum SÍHU síðan félagið var stofnað og hópurinn sem hefur mætt á síðustu 4 Eins og flestum er kunnugt.var haldið landsmót ungmenna í harmonikuleik í Eyjafirði í maí s.l. og þar tóku þátt 3 ungar stúlkur úr Dalasýslu undir stjórn kennara sfns Halldórs Þ. Þórðarsonar. En það voru þær Árný Björk Brynjólfsdóttir, Kolbrún Rut Sæmundsdóttir og Sóley Rós Þórðardóttir. Aðspurðar sögðu þær að það hefði verið mjög gaman á Hrafnagili, þærhefðu kynnstöðrum krökkum sem eru að læra að spila, hlustað á snillinga sem eru mjög ftinkir spila flott lög, þær hefðu farið á dansnámskeið með foreldrum sínum, fræðst um hvernig harmon- ikan er uppbyggð og fengið að sjá hvernighúner aðinnanogsvohefðu allir fengið að lokum 1 nótu úr harmoniku að gjöf. Einnig var farið í heimsókn í jólahúsið og þar fengu allir jólapakka með smá glaðningi. Þær voru ekki í vafa um að þær vildu taka þátt í svona móti aftur og nú verða örugglega fleiri til f að slást í hópinn. Tónlistarskóli Dalasýslu getur verið stoltur af þessumharmonikuleikurumogöðrumnemendum sínum sem ekki verður fjallað um hér, ogvonandi að foreldrar og forráðamenn barna verði hér eftir sem hingað til duglegir að hvetja börn ogunglinga til hvers konar tónlistarnáms, því það er marg sannað að aginn og einbeitingin sem náminu fylgir hjálpar til í öðrum námsgreinum og lífsbaráttunni yfirleitt. Melkorka Benediktsdóttir Nikkuspilarinn vaska, Elísabet Ásdís Kristjánsdóttir.

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.