Harmonikublaðið - 01.09.2006, Qupperneq 13

Harmonikublaðið - 01.09.2006, Qupperneq 13
Kristmann Jónsson - Keypti fyrstu nikkuna 13 ára gamall Kristmann Jónsson, Egilsstöðum hefur verið einn af virkari félögum í H.F.H. frá stofnun þess 1984. Til að fá nánari fréttir af manninum heimsóttu undirrituð Kristmann og frú eina kvöldstund og er árangurinn eftirfarandi. Ætt þín og uppruni Ég er fæddur i4.maí 1929 á Hjaltastað, í Hjaltastaðaþinghá en flutti 6 ára að Grænuhiíð í sömu sveit. Foreldrar mínir voru Guðný Þórólfsdóttir, frá Húsey af Long ætt og Jón ísleifsson .Við vorum 7 syskinin. Ég er kvæntur Sigurlaugu Stefánsdóttur frá Ártúni og hófum við búskap í Grænuhlíð 1952,1971 fluttum við í Eiða, en 1997 í Egilsstaði þar sem við búum í dag. Með búskapnum stundaði ég skólaaksturogseinni árin rútuakstur. Við hjónineigum 8 börn, 22 barnabörn og 8 langömmu börn, þannig að fjölskyldan þarf orðið nokkuð stóra rútu. Æskuárin Ég byrjaði í barnaskóla 10 ára, 6 vikur fyrst árið og aldrei meira en tvo mánuði á vetri. Skólinn var farskóli, til skiptis á bæjunum í sveitinni. Gekk alltaf að heiman, 3-4 km. til dæmis þegar skólinn var á Hrollaugsstöðum voru 6 km hvora leið. Ég fór 17 ára í Héraðsskólann á Laugarvatni, langaði að sjá meira en Héraðið og var þar í tvo vetur. Ekki var komið heimallan veturinn. Farið varýmist með skipum eða rútum og einu sinni, flaug ég frá Reyðarfirði til Reykjavíkur. Þannig að tvo til 3 daga tók að komast að heiman í skólann. 10-20 Austfirðingar voru á Laugarvatni. Þar var einnig á þessum árum Ásgeir Sverrisson harmonikuleikari. Ég var byrjaður að spila á nikku og var með hljóðfæri með mér, 3ja kóra Hohner. Fyrstu sporin með nikkunni og böllin Mamma spilaði á tvöfalda hnappanikku þannig að tónlistin var í ættinni. Á heimilinu var til orgel sem við systkinin rifumst um að spila á. Ég keypti litla nikku 13 ára gamall, hún var notuð og kostaði 20 kr. Líklega um það bil 20.000 kr. í dag. Ég fikraði mig svo sjálfur áfram, spilaði alltafeftireyranu, lærðit.d. lögúrútvarpi en fékk enga tilsögn, þó vorum við systkinin eitthvað að grúska í þessu saman. Ég og Þór Halldórsson, læknir frá Kóreksstaðagerði, spiluðum líka stundum saman. Ég spilaði fyrst í afmæli í sveitinni og síðan frá fermingaraldri fyrir dansi t.d. á ungmennafélagsfundum og þorrablótum sem voru helstu skemmtanirnar. Dansleikir voru haldnir í Fríkirkjunni á Ketilsstöðumog spilaði ég þar nokkrum sinnum. 19 ára spilaði ég líka íTungunni t.d. á barnaböllum kvenfélagsins. Fór ríðandi með nikkuna og svo var ég stundum sóttur á bát yfir fljótið. Einu sinni lagði égá stað gangandi með nikkunaá bakinu til að spila á Þorrablóti í Sleðbrjót, í Jökulsárhlíð. Þetta er ca. 5 tíma gangur, veðrir versnaði svo á meðan égvará leiðinni að blótinu varfrestað til næsta dags. En þetta var gaman og einhverjar krónur fékk ég fyrir. Á þessum árum var ég bara einn að spila. 13

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.