Harmonikublaðið - 01.09.2006, Side 14
Kristmann og eiginkona hans Sigurlaug
Stefánsdóttir.
Einu sinni var ég að spila á íþróttamóti
á Eiðum, þar kom þá Helgi Eyjólfsson frá
Borgarfirði sem var þekktur sem góður
nikkuspilari og spilaði líka á sína stóru
nikku. Mér þótti mjög gaman að heyra
hannspila og fannst hann afar góður. Þó
var Höskuldur Stefánsson besti spilarinn
á þessum árum. Ég átti svo ekki nikku í
11 ár, en hélst þá ekki við nikkulaus
lengur og fékk mér aftur hljóðfæri.
Harmonikufélag Héraðsbúa var
stofnað 1984, fannst þér það
breyta einhverju fyrir harmoniku-
unnendur á Héraði og fyrir þig?
)á það breytti miklu, menn fóru að æfa
og spita saman, það lifnaði við áhugi á
harmonikutónlist með föstum liðum á
dagskrá félagsins, árshátíðum, ágúst-
dansleikjum, lagakeppni og fl. Nú fengu
menn tækifæri til að spila. Ég fór sjálfur
að æfa meira eftir því sem tími gafst til,
oft á hverjum degi og fór fram í
spilamensku.
Ég spilaði í hljómsveit í nokkur ár
kringum 1990 hún hét KGB (Kristmann,
Gunnlaugur og Bjarki). Við spiluðu á
böllum og ýmsum uppákomum, allt frá
Þórshöfn til Hornafjarðar.
Hvernigfinnst þér málum
harmonikunnar komið í dag,
sérstaklega með tilliti tilyngri
kynslóðarinnar og hvernig á
að ná til hennar?
m Seinni árin hafa komið fram krakkar
vfða á landinu sem spila á nikku og
//, er það ánægjuleg þróun. Félagið
1 . okkar gaf nikkur í tónskólana og
nokkrir krakkar hafa byrjað að læra, m.a.
eitt af mínum barnabörnum.
Það þarf að gefa unga fólkinu tækifæri
til að æfa sig og koma fram með okkur
hinum eldri í félaginu t.d. á skemmti-
kvöldum, þar sem boðið er upp á dans-
tónlist. Ég hef engin önnur töfraráð en
reyna að fá unga fólkið með í skemmtileg
verkefni, hafa þau með. Leyfa þeim að
koma fram og spila t.d. á bötlum.
Égveit það Kristmann að þú
hefur samið lög, ertu enn
að semja?
Þau eru nú ekki mörg, bútar og bútar
koma í hugann sem ég gleymi svo jafnvel,
er aldrei ánægður með það sem ég geri.
Ég sendi samt lagið
Bær á Krossgötum í
afmælislagakeppni
Egilsstaða, sem ásamt
fleyri keppnislögum
kom út á diski.
Eins og margir
vita þá leita
margirtil þín
þegarvantar
harmonikuleikara
fyrir hinarýmsu
uppákomur og
dans, æfirðu þig á
hverjum degi og
lengi í einu?
Ekki á hverjum degi, en oftast nokkrum
sinnum í viku. Ég spila hjá eldri
borgunum, bæði fyrir söng og dansi.
Einnig inn á sjúkradeild einu sinni íviku.
Hef spilað á Sparidögum á hótel Örk og í
öllum ferðalögum eldri borgara er nikkan
þanin. Ég er varaformaður í félagi eldri
borgara á Héraði.
Eralltaf jafn gaman
að spila á nikkuna?
Já, já, alltaf jafn gaman, held því áfram,
þetta er hálft lífið, það er sál í nikkunni
og enginn spilar eins. Ef ég væri ungur í
dag, myndi ég reyna að læra nótur og ég
veldi harmonikuna.
Hafa börnin þín eða barnabörn
haldið uppi merki þínu
í spilamennsku?
Sonur minn spilaði um tima dálítið á
nikku og svo er sonarsonur í námi. Ég
gaf honum nikku til að æfa sig. Við
spiluðum í sömu sveit á landsmótinu á
Neskaupstað. Bræður mínir Egill og
Snorri spila báðir og við tökum saman
lagið þegarvið hittumst.
Halldórsson læknir frá Kóreksstaðagerði vinstra
Aðlokumvilégóskaharmonikufélögum
góðrar framtfðar.
Við þökkum Kristmanni og konu hans
fyrir góða kvöldstund og vonum að tónar
nikkunnar hljómi sem lengst, þeim
hjónum og öðrum til ánægju.
Hreinn og Jóhanna
Músíkalskir bræður: Snorri, Kristmann og Egill á góðri stundu.
Kristmann og Þór
megin á mynd.