Harmonikublaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 14

Harmonikublaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 14
Frá Harmonikufélagi Selfoss Kátir kappará degi harmonikunnará Selfossi. Helgi, Grétar, Stefán Ármann og Þórður Á tónleikum íFannahlíð, frá vinstri: Gunnþór, Frímann, Baldur, Sig- urður, Guðmundur og Þórður. Fyriraftan stendur Eysteinn með bassann og fremstur erstjórnandinn Helgi Maður er manns gaman. Spilað úti íblíðunni í Laugarási um verslunarmannahelgina Æpng íTryggvaskála haustið 2008 Harmonikufélag Selfoss var nokkuð áberandi á síðastliðnu starfsári frá október 2008 til september 2009. Æfingar voru vikulega fram í maíen vegna töluverðrar spilamennsku í sumar þá voru þó nokkrar aukaæfingar teknar og ekki endað fyrr en í september. Þetta hafði góð áhrif á félagana því allirvoru í góðri spilaþjálfun, þegaræfingarbyrjuðu afturíoktóber. Helgi E. Kristjánsson hefur stjórnað þessum æfingum um nokkurt skeið og verður áfram með okkur í vetur. Hann hefur einnig útsett flest lögin sem hljómsveitin spilar f nokkrum röddum og tekist veltil. Um miðjan desembervaropið hús ÍTryggvaskála þar sem harmonikuspilarar léku við hvurn sinn fingur og gestir fengu sér kaffi og ástarpunga. Góð aðsókn var að þessari skemmtun og fólk ánægt með framtakið. Eins og áður sagði var mikið spilað og dansleikir haldnir íTryggvaskála, Básnum f Ölfusi og í Iðufelli Laugarási, en þar voru HFS félagar einnig um verslunarmannahelgina og spiluðu fyrir dansi tvö kvöld f röð. Síðustu dagana fyrir jól voru spiluð jólalög í nokkrum fyr- irtækjum á Selfossi. Selfossþorrablótið er orðið stór menn- ingarveisla ÍÁrborg og þar spiluðu tveir félaganna á harmonikur f 5 manna hljómsveit fyrir dansi og var mikil ánægja með þeirra framlag. Hjördís Geirs hélt upp á 50 ára farsælan söngferil á árinu og með henni spiluðu Þórður og Baldur ásamt fleirum á ýmsum stöðum á Suðurlandi og í Ráðhúsinu í Reykjavík á Menningarnótt. Þar spilaði einnig hljómsveit HFS ein 7 lög og fékk gott og langvarandi klapp fyrir. Menn voru að vonum nokkuð ánægðir eftir þá spiiamennsku. Á degi harmonikunnar 2. maí fékk HFS boð um að spila á Akranesi á skemmtun Harmonikuunnenda Vesturlandsogtókst það með ágætum og þökkum við þeim félögum kærtega fyrir góðar móttökur og skemmtun. Um kvöldið var opið hús hjá okkur á Selfossi og tónleikar haldnir og dansiball á eftir fram ánótt. VorfÁrborgbyrjaði 21. maí ogspilaðiHFSáskemmtun á Selfossi og Eyrarbakka og í byrjun júní á Hafnardögum f Þorlákshöfn. í ágúst sóttum við Harmonikuunnendur Vestur- lands aftur heim og spiluðum á tónleikum f Fannahlíð, en þar héldu þeir upp á 30 ára afmæti síns félags með margvíslegri skemmtun og kaffiveitingum fyrir fullu húsi. Þess ber einnig að geta að nokkrir félagar frá HFS spiluðu fyrir eldri borgara á Selfossi og í Reykjavík og jafnframt hafa þeir leikið fyrir vistmenn á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum. Harmonikufélag Selfoss, Harmonikufélag Rangæinga og Harmonikufélag Reykjavíkur efndu til útilegu að Brúarlundi í Landssveitíbyrjun september. Þrýðisveðurvar, þó komið væri fram í september og varð af þessu hin besta skemmtun og mikið fjörvið spilamennsku úti sem inni. Allir sammála um að endurtaka þetta að ári en kannski aðeins fyrr um sumarið. Bestu kvedjurfrá HF5, GuðmundurÆgir Theodórsson, form. 14

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.