Harmonikublaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 15

Harmonikublaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 15
Hvers vegna verðum við alltaf að brosa á sviðinu? Hann Jörgen Sundeqvist lætur hugann reika um sviðsframkomu Verða harmonikuleikarar alltaf að brosa þegar þeir spila? Andrew Walter spurði að þessu eftir að hafa komið fram í nokkrum sjónvarpsþáttum þarsem útsendingarstjór- anum fannst það allra mikilvægast að Andrew skyldi brosa eins mikið og hann mögulega gæti á meðan hann léki á nikk- una. Andrew átti í mestu erfiðleikum með að verða við ósk upptökustjórans. Hann vare.t.v. ekki líflegasti harmonikuleikarinn sem í boði var en spilamennskan var óað- finnanleg. Þessi umræða um glaðværð þegar troðið er upp er jafn áberandi í dag og á sjöunda áratugnum. Tónlistin hefur minna vægi en áður Það er ekki bara í sjónvarpinu þar sem krafan um brosmikla framkomu eykst heldur má hana einnig merkja á flottustu framkomu- námskeiðum þarsem kennslan eroftaren ekki f höndunum á sýninga- og upptöku- stjórum. Aðalatriðið er að kalla fram stórt og breitt bros í anda hins ástsæla þátta- stjórnanda Lawrence Welk sem stýrði vin- sælum sjónvarpsþætti í Bandaríkjunum á sjötta áratugnum. Hvernigmaðurspilarog hvernig tónlistin hljómar skiptir ekki höf- uðmáli. Brosið skalvera á sínum stað. Það er samt bara í heimi harmonikunnar sem þessa er krafist. ímyndið ykkur tón- leika eða sjónvarpsútsendingu með til dæmis Bengt Hallberg, Arne Domnerus, Rune Gustavsson og Georg Riedel. Sjáið þið fyrirykkur upptökustjóra leiða þessa snillinga í gegnum sannleikann um að horfa í myndavélina og brosa Lawrence Welk bros- inu? Nei, aldrei. Allir vita að þessir snillingar hugsa fyrst og fremst um að flytja vandaða og góða tónlist og það er það sem skiptir jú auðvitað mestu máli. En hvers vegna gildir þetta ekki um harmonikuleikara? Hví er gerð krafa á þá um að brosa út í eitt og líta út eins og draumur tengdamóður- innar? En oft á tíðum dugar ekki einu sinni fyrir harmonikuleikarann að brosa bara sínu skærasta, hann verður einnig að bjóða uppá alls kyns kúnstir og látalæti t.d. spila með vettlinga, hatta, húfur, jafnvel spila með nikkuna á bakinu og e.t.v. sitja ofaná nikkunni ogspila á hana. Vandasamt að læra almennilega á harmonikuna Þaðfinnstvarla annað hljóðfæri sem er jafn mikið alþýðlegt ankeri sem harmonikan. Það er tiltölulega auðvelt að læra einföld lög og hljóma á harmonikuna. Hins vegar er það þrautinni þyngra að læra frá grunni almennilega á hljóðfærið og allt sem það býður uppá. Hér er nærtækast að bera saman harmonikuna og gítarinn. Einnig er harmonikan nánast hluti af sumrinu þ.e. Ijúf tónlist, bátar, sól, strendur og e.t.v. smá brennivín með fullri virðingu fyrir þessu öllu. Ljúfa tónlist er vissulega erfitt að skilgreina. Allir spila líklega vegna þess að þeir hafa gaman af, tónlistin heillar þá. Eins er líklegt að margir spili til að gleðja aðra hvort sem það er í kirkju eða á dansleik. Ég hef oft spilað í kirkjum og séð áheyr- endur hrífast með, jafnvel fella tár vegna þess að þeim finnst tónlistin falleg og áhrifamikil. Nýlega lék ég á langlegudeild aldraðra á Örnsköldsvikspftalanum. Lúin öldruð kona sat þar í hjólastól. Ég hélt í fyrstu að hún væri nú alveg út úr heiminum greyið, en þar skjátlaðist mér heldur betur. Þegar ég hafði spilað „Livet pá Finnsko- gerne“ opnaði hún augun og sagði: „Þetta er það fallegasta sem ég hef heyrt í langan tíma, nú langar mig að lifa aðeins lengur“. í þessum tilfellum spilaði ég fyrir þetta fólk án þess að setja upp „gervibrosið", var hvorki með látalæti né í trúðafötum. Auk þess var ég með nikkuna á maganum en ekki á bakinu svo það sé nú á hreinu. En á spítalanum í Örnsköldsvik stóð ég á meðan ég spilaði, sat hvorki á stól né á palli. í næsta tölublaði mun ég fjalla um hvort að maður á að sitja eða standa þegar leikið er á þetta fallega hljóðfæri. Birt með góðfúslegu leyfi Jörgen Sundeqvist '(YWEJíumrf v Verkstæði til alhliða viðgerða Harmonikuþjónusta á harmonikum að Sóleyjarima 15, Reykjavík. Guðna Hafið samband við Guðna í síma 567 0046. 15

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.