Harmonikublaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 4

Harmonikublaðið - 01.05.2010, Blaðsíða 4
Erindi haldid að Núpi í Dýrafirði í tilefni 20 ára afmælis Harmonikufélags Vestfjarða Á árunum fyrir og eftir 1980, um nokkud mörg ár, stóð Tómas heitinn Jónsson, menningar- frömuður okkar á Þingeyri, fyrir sönghátíðum um páska sem mig minnir að gengju undir heitinu Syngjandi páskar. Tómas var skóla- stjóri barnaskólans um 20 ára skeið, stundaði smíðar og múrvinnu að sumrinu og var síðar sparisjóðsstjóri um nokkurár. Tómas vardrif- fjöður söngmála, leiklistar og félagsmála ýmissa. Engar meiriháttar samkomur voru haldnarán aðkomu hans. Það mun hafa verið fyrir páskana 1981 eða 82 að Tómas kom til fundar við mig og kvaðst í nokkrum vanda staddur. Uppsetning söngpró- grammsins um páska hefði reynst full stutt, sig vantaði atriði í dag- skrána sem stæði yfir í svona 8 til 10 mínútur. Sér hefði dottið í hug að safna saman þeim sem ættu harm- onikur og fá þá til að fylla upp f það sem á vantaði í dagskrána. Tekið skal fram að hann vareinn af harmoniku- eigendum. Spurði hann mig hvernig mérlitistá. ÞegarTómasvarannars vegar með erindi sögðu menn bara já, orðið nei var ekki til í orðaforð- anum. Náðustsaman að migminnir sex harmonikueigendur sem taka vildu þátt. Hófust svo æfingar taf- arlaust enda stutt til stefnu. Gekk áætlun þessi upp á besta máta og reyndist konsert okkar hið besta sjónarspil. Brátt fjölgaði í hópnum og veturinn eftir hófust reglulegar æfingar. Héldum við áfram að koma fram á Syngjandi páskum sem og við fleiri tækifæri. Slíkir hæfileikar máttu ekki ónotaðir. Það mun líklega hafa verið tveimur eða þremur árum seinna að hópurinn taldi ellefu spilara. Var áður uppteknum sið haldið, þ.e. að koma saman á Syngjandi páskum. Við harmonikukarlarnir erum engin englabörn, sem betur fer. Við kunnum að meta heimsins lystisemdir og nota gleðigjafa á okkar stuttu vegferð þessa heims. Bar nú til tíðinda á tón- leikum að einn okkar ágætu harmonikuleikara mætti til leiks í kátara lagi. Hafði hann verið í félagsskap þess ónefnda tengi dags, sem margurvillvera ívinfengi við. Bráokkurfélög- unum nokkuð, enda mikil alvörustund fram- undan. Þegarað okkar prógrammi kom ogvið röðuðum okkur upp til inngöngu á sviðið, bað ég áðurnefndan félaga okkar að ganga á eftir mér inn og standa síðan við hlið mér og spila lágt. Hófst svo konsertinn. Brá nú svo við að félagi vor fór að leika með fingrafimi þeirri er aldrei hafði áður sést þar á fjölum. Minnti þetta helst á tilþrif Toralf Tollefsen, þegarhann eittsinn hélt tónleika á Þingeyri. Einn varsamt munur þar á, snillingurinn félagi okkar snerti aldrei nóturnar. Ekki var það bara að fingra- fimin væri svo ofurmannleg heldur bættust við armsveiflur tígulegar. Að vísu varð vart lítilsháttar truflana af hálfu félagsskaparins fyrr um daginn sem einkenndust af örlitlum bakföllum, sem þó leiðréttust farsællega með fótstigi fram ítæka tíð. Brátt fór að fara kliður undrunar og hrifningar um salinn, einkum þeirra sem aldrei höfðu slík tilþrif séð fyrr. Að atriðinu loknu reyndi verulega á þakfestingar hússins. Er konsert þessi sá eftirminnilegasti sem við höfum haldið. Eftir þessa vel heppnuðu sönghátíð meður framlagi harmonikuprógrammsins fékkTómas hugljómun seinna um vorið. Skyldi nú haldið til Bíldudals og vinum okkar þar miðlað af menningunni. Þegar Tómas kom til fundar við migogtjáði mérþessa ákvörðun sína varekki laust við að ónot gerðu vart við sig í mínum maga. Varð mér á að spyrja hvort það væri ekki ábyrgðarhluti að fara að skapa Bílddæl- ingum þærvæntingarað einhverjirharmoniku- snillingarværu héráferð. Oghvernigværi þá hægt að auglýsa fyrirbærið, helst þannig að úr slíkum væntingum mætti draga. Eftir heil- miklarvangavelturkom lausnin, heitið Harm- onikukarlarnir varð til, Harmonikukarlarnir á Þingeyri. Á Bíldudal var okkur tekið með kostum og kynjum. Er við gengum í salinn og til senu í einfaldri röð, ellefu saman, heyrðist gamall maður sem sat næst dyrum segja: „Nei, nei, nei, nei, svona margar harmonikur til á Þing- eyri.“ Frá því er að segja að eftir samkomuna vorum við þrír staddir saman í bakherbergi, tveir harmonikukarlar og samkomuhússstjór- inn, GuðmundurSævar. Þá spurði Guðmundur: „Hvað eru margir sem spila á harmoniku þarna á Þingeyri?" Ég ætlaði félaga mínum að svara spurningunni, félaga sem er bæði orðhagur og hugmynda- ríkur. Brá nú svo við að hann þagði þunnu hljóði svo að þar kom að það hrökk ósjálfrátt út úr mér: „Þegar best lætur erum við ellefu og hálfur.“ Fannst nafna mínum svarið ögn skrítið ífyrstu, en hann áttaði sigfurðu fljótt og þótti þetta bara sjálf- sagt. Um tíma fórum við að vera með konu en hún skildi fljótlega við okkur. Vorum við kvenmanns- lausir nokkuð lengi þangað til að Lóa okkar á Mýrum fór að spila með okkur. Við sem nú komum saman og mætum til æfinga erum 11 með harmonikur. Að auki mæta þeir Líni Hannes og Jón Sigurðsson stundum okkur til ánægju með ýmsar gerðir hljóðfæra. Apparatið er ekki starfsmannafrekt. Við höfum framkvæmdastjóra frábæran, Sigurð Friðrik Jónsson og svo rit- ara, Gunnar Bjarnason. Færir hann samviskusamlega mæt- ingaskrá meðurýmsum upplýs- ingum öðrum um starfsemi okkar. Velgjörðamann sérstakan vil ég nefna í þessum pistli, en það er Guðbjörn Charlesson flug- málastjóri okkarVestfirðinga. Hann hefurleyft okkur að koma saman og æfa í flugstöðinni á Þingeyri til fleiri ára og gert það með mikilli ánægju. Reyndar gat hann þess í vígsluræðu þegar Þingeyrarflugvöllurvartekinn í notkun eftir endurbætur, að flugmálastjórn væri í sam- starfi við Harmonikukarlana og Lóu, sem sjá mætti og heyra, en athöfnin hófst á harmoniku- spili. Við erum þess meðvituð að við munum ekki breyta músikhefðum heimsins eða skyggja á háþróaða tónlistarflytjendur. Hins vegar höfum við gaman af því að spila, koma saman, fá okkur kaffisopa, spjalla og segja eina og eina góða sögu. Guðmundur Ingvarsson, Þingeyri Þessi mynd er upphafid affyrstu þátttakendum harmonikukarlanna. Þeir eru talidfrá vinstri: Tómas Jónsson, Þórður Sigurðsson, Guðmundur Ingvarsson, Ólafur Þórðarson og Gunnar Sigurðsson. Héreru svo harmonikukarlarnir og Lóa í dag á æfingu. Talið frá vinstri, fremri röð: Bernharður Guðmundsson, Bergsveinn Gíslason, Elínbjörg Snorradóttir (Lóa), Guðmundur Ingvarsson, Ásvaldur Guðmundsson og Kristjðn Gunnars- son. Aftari röð: Gunnar Gísli Sigurðsson, Gunnar Bjarnason, Sigurður Fr. jónsson, Hreinn Þórðarson, Hannes Sigurðsson bassi og Þórður Sigurðsson. 4

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.