Harmonikublaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 24
í þá gömlu göðu daga...
Petta er úr blaSinu Harmonikunni 2.
tbl. 9 drg. mars 1995. Birt meSgóSfus-
legu leyfi peirra Hilmars Hjartarsonar
og Þorsteins R. Þorsteinssonar. EfiniS
skýrir sig sjdlft.
Á langferða-
leiðum
í október síðastliðnum millilenti
(20.okt.) hér á landi fslandsvinurinn og
harmoníkuleikarinn Lars Ek ásamt
konu sinni Ann Mary. Þau voru á leið
vestur um haf í 10 daga skemmtisigl-
ingu með risavöxnu skemmtiferðaskipi
um Mexíkóflóa og nærliggjandi eyjar.
Lars boðaði komu sína nokkru áður,
þau komu hér degi fyrir ferðina vestur
svo að við gátum hist eina kvöldstund
og rennt yfir farinn veg og ýmis
Góðra vina fundur á Hótel Loftleiðum.
Fulltrúar Frosini félagsins á Norðurlöndum funda. Frá v. Seppo Lankinen
Finnlandi (FAIF) Jens Peter Nielsen Danmörku (DAIF) Lars Ek fonnaður Svíþjóð
(SAIF) og (IFS) og John Mandelit Noregi (NAIF).
framtíðaráform. Við höfðum matarboð
með nokkrum vinum okkar um kvöld-
ið. Lars Ek og Ann Mary eru enn heill-
uð af þeirri upplifun að fá að kynnast
Islandi og íslendingum og vilja um-
fram allt halda tengslunum. Lars er
uppfullur af draumum og lífsfjöri. Einn
draumur hans er Frosini tónlistin og
félagið kringum Pietro Frosini
„Frosiniselskapet." Hann gefur þessu
tónlistarformi háa einkunn, segir hana
heilla hvar sem er um víða veröld, falli
vel að uppbyggingu og tækni í harm-
oníkunámi, sé gullmoli í klassískri har-
moníkutónlist. Hann er æðsti maður
þessa félagsskapar sem verður 10 ára
18. mars næstkomandi og þess verður
minnst í Stokkhólmi með viðhafn-
arsamkomu þar sem mæta fulltrúar
Svíþjóðar, Danmerkur, Noregs og
Finnlands. Því miður er ísland ekki
með í þessum samtökum, né heldur að
við höfum ennþá fulltrúa sem ynni að
því að halda okkar merki á lofti. Lars
bendir á að hér gæti verið um áhuga-
vert samvinnuverkefni að ræða milli
þjóðanna. Keppni er haldin árlega í
Grieghöllinni í Bergen (Frosini Grand
Prix) þar eru leiddir saman keppendur
frá hverri þjóð sem keppa til veglegra
verðlauna. Þeir sem hafa hlustað á Lars
Ek spila hér á landi gleyma ekki túlkun
hans og leikni í Frosini tónlistinni. Lars
hafði svo samband eftir ferðina um
mánaðamót okt.-nóv. Skemmtileg ferð
,jú mjög” en heimferðin, flugið heldur
hrollvekjandi því að flugvélin lenti í
útjaðri fellibyls og nötraði eins og lauf-
blað í vindi. Á Keflavíkurflugvelli var
þreifandi bylur og seinkaði flugtaki til
Stokkhólms í þrjá tíma af þeim sökum.
Á heimili þeirra hjóna í Stokkhólmi lá
svo heimiliskötturinn í hárri elli
fársjúkur og gaf upp öndina skömmu
eftir heimkomuna. Að endingu minnti
hann á fjörlegar viðræður hér heima
kvöldið góða og bað mig um að beita
þrýstingi á Ingvar Hólmgeirsson um að
gerast fulltrúi Frosinifélagsins á íslandi
og tengilið út í frá Þeir kynntust vel
1985 þegar Lars og fjölskylda voru á
vegum S.Í.H.U. hjá H.F.Þ. á Húsavík í
tónleikaferð. Eins gisti öll fjölskyldan á
heimili Ingvars og Boggu á Húsavík á
þeim tíma. H.H
Ingvar Hólmgeirsson og Lars Ek tóku nokkur létt lög, ánœgjan leynir sér ekki yfir
þessu fyrsta dúettspili.
22