Reykjavík


Reykjavík - 27.04.2013, Síða 8

Reykjavík - 27.04.2013, Síða 8
8 27. apríl 2013 Vésteinn Valgarðsson, Alþýðufylkingunni: Það er ekki hagkvæmt fyrir hag-kerfi að taka upp erlenda mynt sem fylgir annarri hagsveiflu, eins og til dæmis evruna. Þrátt fyrir allt hefur íslenska krónan kannski bjargað því sem bjargað varð í kreppunni, því ef höggið hefði ekki lent á henni hefði það í staðinn komið fram í svo miklu atvinnuleysi að það er varla hægt að hugsa það til enda. Gallinn við íslensku krónuna er að annarri hverri krónu er stolið jafnharðan af okkur og lausnin við því er að félagsvæða umsvifamesta ræningjann, sem er fjármálakerfið. Lýður Árnason, Lýðræðisvaktinni: Nýja stjórnarskráin kveður á um, að aðild að ESB og þá um leið upptaka evrunnar verði ákveðin í bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Mál, sem þjóðin ræður til lykta í þjóðar- atkvæðagreiðslu, þurfa ekki og eiga ekki að koma til kasta Alþingis, þar eð þjóðin er yfirboðari þingsins, eins og stendur skýrum stöfum í nýju stjórnarskránni. Þess vegna hefur Lýðræðisvaktin ekki tekið ákveðna stefnu í gjaldmiðilsmálinu. Lýðræðisvaktin mun virða stjórn- arskrárbundna verkaskiptingu þings og þjóðar og lúta niðurstöðu allra þjóðaratkvæðagreiðslna, einnig um nýjan gjaldmiðil. Arnaldur Sigurðsson, Pírötum: Allt tal um nýja gjaldmiðla á borð við evru, kanadadollar eða ríkis- dal hljómar eins og töfralausnir. Taka þarf peningakerfið til endurskoðunar og gefa fólki fleiri möguleika á hvernig gjaldmiðil það kýs að nota. Metúsalem Þórisson og Júlíus Valdimarsson, Húmanistaflokknum: Við þurfum að fást við afleiðingar hrunsins en jafnframt að hindra annað hrun og þess vegna þurfum við að breyta fjármálakerfinu, sjálfum orsakavaldinum. Við eigum að halda okkur við íslensku krónuna og taka upp nýtt peningakerfi. Það verður að taka af bönkunum það vald að búa til peninga úr engu og dæla því inn í hagkerfið eins og gerðist á árunum frá 2003 til 2008 þegar peningamagn í umferð tvöfaldaðist fjögur ár í röð. Við viljum 100% bindiskyldu bankanna og að Seðlabankanum einum verði heimilt að gefa út pen- inga og ákvarðað peningamagn í umferð sem verði miðað við þarfir þjóðarbúsins. Aðeins með þessum hætti er hægt að koma í veg fyrir hagsveiflur sem enda með hruni eins og því sem við lentum nú síðast og aðeins þannig er hægt að koma á því jafvægi í efnahagsmálum og þeim stöðuga gjaldmiðli sem við þurfum á að halda. Styrkur gjaldmiðils ræðst allaf endanlega af þeirri raunveru- legu verðmætasköpun sem á bak við hann stendur. Hólmsteinn Brekkan, Dögun: Það að segja að krónan sé ónýt og það þurfi annan gjaldmiðil, er eins og áfengissjúklingur sem segir að vandamál hans sé sú áfengistegund sem hann er að drekka og þetta verði nú allt í lagi þegar hann skiptir um áfengistegund. Ég er ekki að segja að við eigum ekki að taka upp evru eða annan gjaldmiðil heldur að það er svo margt sem þarf að laga áður en við svo mikið sem hugsum um það að taka upp annan gjaldmiðil. Fyrsta skrefið er gera það sem þarf að gera svo það sé hægt að taka upp annan gjaldmiðil, ef það þá þarf ! Dögun leggur til að lögð verði upp samsett aðgerð til að takast á við gjaldeyrishöft og ósjálfbæra skulda- og eignastöðu í efnahagskerfinu; með myntskiptum á mismunargengi (mismunandi skiptigengi), eða annars konar leiðréttingum eigna/skulda, með bröttum og tímabundnum skatti á útstreymi gjaldeyris – og með því að leggja á „uppgripaskatt“ (windfall-tax). Jafnhliða verði leitað allra færra leiða til að koma á heil- brigðum gjaldeyrisbúskap og annað hvort tengja íslenska krónu við körfu erlendra gjaldmiðla eða taka upp nýja íslenska krónu. (Sjá nánar í efnahags- stefnu Dögunar) Einnig að leiðrétting fari fram eins og kemur fram í svörum við lið 1. og 2. komið böndum á fjármálavaldið, að- skilnaður verði á milli viðskipta- og fjárfestingarbankastarfsemi, tryggt að bankar verði ekki í eigu vogunarsjóða og eignarhald fjármálafyrirtækja verði gegnsætt. Helgi Hjörvar, Samfylkingunni:: Já. Af flokkunum sem starfað hafa á Alþingi er Samfylkingin sá eini sem hefur mótaðar tillögur um útleið úr okri og óstöðuleika íslensku krón- unnar, með hávöxtum og verðbólgu, á næstu fjórum árum. Í aðildarvið- ræðum við Evrópusambandið viljum við að felist evrópsk króna, þ.e. að krónan verði hluti evrópska myntsam- starfsins með sama hætti og danska krónan, þangað til við tökum upp evru. Þess má geta að óverðtryggðir húsnæðisvextir í dönskum krónum eru nú einn þriðji af því sem fólk á Íslandi greiðir. Guðmundur Steingrímsson, Bjartri framtíð: Björt framtíð vill klára aðildarvið-ræðurnar við ESB og landa það góðum samningi að þjóðin geti sam- þykkt hann. Skömmu síðar er hægt að fara í gjaldmiðilssamstarf við evrópska seðlabankann í gegnum ERM II, sem heldur genginu stöðugu innan vik- marka. Þegar réttar aðstæður skapast er svo hægt að taka upp evru Hvaða lausnir hafa flokkarnir? Frambjóðendur eru duglegir að skrifa greinar til birtingar í fjölmiðlum en lítið fer fyrir spurn- ingum til þeirra um helstu mál þessara kosninga. Reykjavík vikublað sendi því öllum framboðum sem skiluðu inn framboðslista í suðvesturkjördæmi spurningalista. Forystumenn flokkanna sem bjóða fram í Reykjavík fengu það verkefni að svara 4 spurningum.. Hér birtast svör við fjórðu spurningunni. Eigum við á nýju kjörtímabili að vinna að því að koma upp nýjum og stöðugri gjaldmiðli en óverðtryggðu íslensku krónuna.? Greinið frá útfærslu ykkar á því X2013

x

Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.