Reykjavík


Reykjavík - 27.04.2013, Blaðsíða 15

Reykjavík - 27.04.2013, Blaðsíða 15
Helgi Vilhjálmsson, eldri borgari Ég kýs þá sem ætla að efna þessi loforð sem gefin voru siðast! Það þýðir ekkert hálfkák í þetta sinn. Stefna í málefnum aldraðra til næStu ára Hinn 27. júní 2008 kynnti félags- og tryggingamálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir áhersluatriði sem unnið verður að í málefnum aldraðra á næstu misserum: • aldraðir fái viðeigandi stuðning og einstaklings miðaða þjónustu til að geta dvalið sem lengst á eigin heimili.• Aldraðir og aðstandendur hafi greiðan aðgang að upplýsingum um réttindi og þjónustu. • Almannatryggingakerfið verði einfaldað og réttindi aldraðra verði betur skilgre- ind. • Réttur aldraðra til sjálfstæðrar búsetu og sjálfs forræðis verði virtur. • Öldruðum standi til boða fjölbreytt val búsetuforma. • Dagvistar-, hvíldar- og skammtímarýmum verði fjölgað. • Gæðaviðmið um þjónustu við aldraða verði sett. • Eftirlit með þjónustu við aldraða verði aukið og bætt. • nýjar áherslur verði teknar upp við uppbyggingu hjúkrunarheimila og endurbætur á eldra húsnæði.• Greiðsluþátttöku aldraðra í hjúkrunar- og dvalarrýmum verði breytt þannig að aldraðir haldi fjárhagslegu sjálfstæði og greiðslur vasapeninga lagðar af. • Hjúkrunarrýmum verði fjölgað til að mæta þörf. • fjölbýlum á hjúkrunarheimilum verði útrýmt að mestu leyti. • Tryggt verði að öldrunarþjónustan hafi ávallt á að skipa hæfu og metnaðarfullu starfsfólki. • Heildarábyrgð á þjónustu við aldraða verði færð til sveitarfélaga eigi síðar en á árinu 2012.

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.