Reykjavík - 27.04.2013, Blaðsíða 15
Helgi Vilhjálmsson, eldri borgari
Ég kýs þá sem ætla
að efna þessi loforð sem
gefin voru siðast!
Það þýðir ekkert hálfkák í þetta sinn.
Stefna í málefnum aldraðra til næStu ára
Hinn 27. júní 2008 kynnti félags- og tryggingamálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir
áhersluatriði sem unnið verður að í málefnum aldraðra á næstu misserum:
• aldraðir fái viðeigandi stuðning og einstaklings miðaða þjónustu til að geta
dvalið sem lengst á eigin heimili.• Aldraðir og aðstandendur hafi greiðan aðgang að upplýsingum um réttindi og
þjónustu.
• Almannatryggingakerfið verði einfaldað og réttindi aldraðra verði betur skilgre-
ind.
• Réttur aldraðra til sjálfstæðrar búsetu og sjálfs forræðis verði virtur.
• Öldruðum standi til boða fjölbreytt val búsetuforma.
• Dagvistar-, hvíldar- og skammtímarýmum verði fjölgað.
• Gæðaviðmið um þjónustu við aldraða verði sett.
• Eftirlit með þjónustu við aldraða verði aukið og bætt.
• nýjar áherslur verði teknar upp við uppbyggingu hjúkrunarheimila og
endurbætur á eldra húsnæði.• Greiðsluþátttöku aldraðra í hjúkrunar- og dvalarrýmum verði breytt þannig að
aldraðir haldi fjárhagslegu sjálfstæði og greiðslur vasapeninga lagðar af.
• Hjúkrunarrýmum verði fjölgað til að mæta þörf.
• fjölbýlum á hjúkrunarheimilum verði útrýmt að mestu leyti.
• Tryggt verði að öldrunarþjónustan hafi ávallt á að skipa hæfu og metnaðarfullu
starfsfólki.
• Heildarábyrgð á þjónustu við aldraða verði færð til sveitarfélaga eigi síðar en á
árinu 2012.