Reykjavík


Reykjavík - 12.10.2013, Blaðsíða 12

Reykjavík - 12.10.2013, Blaðsíða 12
kr. Fullt af ódýrum skóm á alla á frábæru verði OUTLET-SKÓR | FISKISLÓÐ 75 | 101 REYKJAVÍK Opið: mán-fös 13-18 & lau 12-16 sími: 514 4407 Stelpu skór St. 27-35 kr. 6.900 Herra skór St. 39-51 kr. 9.900 Herra skór St. 41-48 kr. 9.900 Dömu skór St. 36–41 kr. 8.900 Kulda skór St. 27-35 kr. 7.900 … Heilsurækt fyrir konur Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is Inga Hildur Yngvadóttir - 48 ára snyrti- og fótaaðgerðafræðingur. Ég er búin að vera í Curves í 7 ár og líkar mjög vel ég mæti alltaf 3 í viku. Mér finnst gott að ráða hvenær ég kem og hversu oft . Mér finnst mikill kostur að þurfa ekki að stilla tækin og að ég sé að taka á öllum helstu vöðvahópum. Mér líður mjög vel á eftir og ekki er verra að halda kílóunum í skefjum og vera styrkari og liprari. Frábær stöð sem er bara fyrir konur og þarna er skemmtilegt starfsfólk og mjög góður andi. Oddný Sigríður Nicolaidóttir – 82 ára Ég byrjaði að æfa í Curves vorið 2009. Æfingarnar henta mér afar vel. Ég mæti 4x í viku og held þannig líkamanum í góðu formi þrátt fyrir gigt og fleira sem fylgir mínum aldri. Eftir skurðaðgerð nýlega fór ég í 6 vikna geislameðferð og meðan á meðferðinni stóð stundaði ég líkamsræktina 4x í viku. Félagsskapurinn, stuðningurinn og ekki síst það frábæra starfsfólk sem Curves hefur upp á að bjóða er ómetanlegt. Þarna hef ég eignast góðar vinkonur og sleppi helst aldrei úr tíma. Stærsti kosturinn er að ég get mætt þegar mér hentar. Æfingin hjá okkur tekur aðeins 30 mínútur Hringdu og fáðu frían prufutíma Bjóðum einnig upp á trimform Settu heilsuna í fyrsta sæti! 12. október 2013 Deiliskipulag Hofsvallagötu Nýlega var auglýst breyting á deiliskipulagi á Laugavegs- og Skólavörðustígsreit í Reykja- vík. Í breytingunni fólst skv. auglýs- ingunni að húseigendur fengu leyfi til að gera minniháttar breytingar á húsum sínum, m.a. gera svalir, setja kvisti, skyggni og lagfæringar. Almenningi var gefinn margra vikna frestur til að gera athugasemdir við þessa breytingu áður en borgaryfirvöld samþykktu hana og hefur þó sjálfsagt flestum íbúum Reykjavíkur staðið hjartanlega á sama. Auglýsing þessi er valin af handahófi af hundruðum slíkra. Skipulagslög og skipulagsreglugerð tryggja mjög vand- aða málsmeðferð í tilvikum sem þessum. Um svipað leyti var skipulagi hluta Hofsvallagötu breytt. Sú breyting skipti mjög marga íbúa miklu máli. Miklu meira máli en einhverjar minniháttar lagfæringar á húsum við Laugaveg eða Skólavörðustíg. Borgin leit hins vegar ekki svo á að þarna væri nokkur þörf á að gera deiliskipulag. "Það er aldrei gert deiliskipulag fyrir götur" hafa borgar- yfirvöld sjálfsagt hugsað. Við þekkjum afleiðingarnar. Samráð við borgarbúa var í skötulíki og endaði þetta með því að háttsettur embættismaður hjá borginni varð að biðja íbúa Reykjavíkur afsök- unar á samráðsleysinu. Það má velta því fyrir sér hvort ekki hefði verið eðlilegra að borgin léti vinna deiliskipulag fyrir þennan hluta Hofs- vallagötu í stað þess að fara fram án nokkurra formlegra skipulagsáætlana. Áður fyrr veltu skipulagsyfirvöld lítið fyrir sér svæðinu á milli húsanna. Þar voru einfaldlega götur og gangstéttar og aðalatriðið var að umferð væri greið fyrir bifreiðar og að gangandi fólk héldi sig á gangstéttum. Reiðhjól voru leik- tæki fyrir börn og áttu ekkert erindi út á götur. Þetta er allt gjörbreytt. Ég held að það sé kominn tími til nýrrar hugsunar í skipulagsmálum borgarinnar. Það gengur ekki að líta svo á að borgin hafi frítt spil við endurskipulag gatna án nokkurs samráðs við borgarbúa. Það væri rannsóknarefni hvort ekki væri eðlilegt að beita deiliskipulagi þegar farið er af stað með breytingar eins og gerðar voru á Hofsvallagötu. Það tryggir lögbundið samráð við borgarbúa og vandaða vinnu skipulagsfólks. Flugvöllur eða ekki í Vatnsmýrinni ? Samtök um betri byggð stóðu fyrir blaðamannafundi síðastliðinn fimmtudag í tilefni að sam- þykktri tillögu borgarstjórnar að nýju aðalskipulagi. Markmið fundarins var að beina kastljósinu að hinni hliðinni Vill 71,8% höfuðborgarbúa flugvöll í Vatnsmýri? Nýverið létu samtökin Hjartað í Vatns- mýrinni MMR gera könnun meðal borgarbúa þar sem fram kom að 71,8% þeirra vilja flugvöllinn áfram í Vatns- mýrinni en könnunin fór fram dagana 9. til 11. september og svarhlutfalla var 87% en alls tóku 330 manns af höfuð- borgarsvæðinu þátt í könnuninni. Í könnuninni var stuðningur við áfram- haldandi veru flugvallar í borginni mældur hjá kjósendum ólíkra flokka á alþingi en þar kom fram að flokksmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks voru mjög fylgjandi flugvellinum eða 89% framsóknarmanna og 87,2% sjálfstæðismanna á meðan fylgi fylgis- manna annarra flokka var minna en minnst hjá Samfylkingunni eða 44,9% og Pírötum eða 46,3%. Meirihluti kjós- enda Bjartrar Framtíðar (62,6%) og VG (65,1%) vildu flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni. Síðastliðinn fimmtudag höfðu 69.735 manns skrifað undir áskorun samtakanna Hjartað í Vatnsmýrinni á www.lending.is um að flugvöllurinn verði þar áfram. Hin hliðin er Hólmsheiði betri staðsetning? Að sögn forsvarsmanna samtakanna þeirra Gunnars H. Gunnarssonar verk- fræðings og Arnar Sigurðssonar þá telja þeir að niðurstaða ofangreindrar könnunar feli í sér að borgarbúar séu að taka afstöðu gegn bæði þjóðarhag og hagsmunum borgarinnar. Bent er á að árið 2001 hafi Reykvíkingar kosið flug- völlinn burt í kosningu sem haldin var fyrir atbeina Samtaka um betri byggð en þar var ákveðið að flugvöllurinn skyldi farinn úr Vatnsmýrinni 2016. Það er mat þeirra að síðan þá hafi engin málefnaleg og rökræn umræða farið fram um tilfærslu flugvallarins en slík umræða og kynning sé forsenda þess að höfuðborgarbúar geti tekið afstöðu í málinu líkt og gert var 2001. Í upplýsingum sem dreift var til fjöl- miðla kemur fram að samtökin fagna nýju aðalskipulagi til 2030 þar sem helsta markmið þess sé þétting byggðar. Samtökin benda á að Vatnsmýri er eina svæðið í borgarlandinu þar sem mögu- legt er að reisa þétta og blandaða mið- borgarbyggð. Fram kemur að á þessu tímabili sé metin húsnæðisþörf 24.000 íbúðir sem höfuðborgarsvæðið mun ekki geta brugðist við heldur muni mikill meirihluti nýrra íbúða til 2030 rísa í nágrannabæjarfélögum. Það er mat samtakanna að upp- safnað tjón Reykvíkinga og lands- manna allra vegna flugvallarins nemi á 20 ára tímabili um 1.725 milljörðum en þeir útreikningar byggja á áætlunum um fækkun bíla og minni akstur borg- arbúa samanborið við akstur annarra borgarbúa í Evrópu. Einnig vísa þeir í skýrslu frá ParX frá 2007 sem unnin var fyrir samgönguráðherra og borgar- stjóra þar sem sýnt er fram á ábata þess að flytja flugvöllinn úr Vatnsmýri og reisa þar í staðinn blandaða miðborgar- byggð en samkvæmt Gunnari þá sýndi umrædd skýrsla ennfremur fram á að hagkvæmast væri að byggja upp flug- völl á Hólmsheiðinni. Í tilkynningu til fjölmiðla kemur fram: dr. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur fullyrti árið 2008 og ítrekaði í ágúst 2013 að nýting á hugsanlegum flugvelli á Hólmsheiði væri 96-98% að óbreyttum forsendum. Að mati flugrekenda nægja 95%. Áhrif af flutningi á innanlandsflugi til Keflavíkur Í skýrslu KPMG „Áhrifin ef miðstöð innanlandsflugs flyst til Keflavíkur“ (september 2012) sem unnin var fyrir nokkur sveitarfélög á landsbyggðinni kemur fram að 70% farþega í inn- anlandsflugi er landsbyggðarfólk og að með flutningi innanlandsflugs til Keflavíkur muni ferðakostnaður lands- byggðarfólks aukast um 6 til 7 milljarða á ári. Þar kemur fram að tilflutningur myndi þýða fækkun flugferða um 40% og að innanlandsflug í núverandi mynd til Ísafjarðar, Hornafjarðar og Vestmannaeyja myndi leggjast af auk þess sem kostnaður við ríkisstyrkt flug myndi aukast vegna færri farþega. Í skýrslu KPMG er gengið útfrá því að flugvöllur á Hólmsheiði sé ekki val- kostur sökum veðurskilyrða þar sem svæðið sé berskjaldað og vindasamt. Auk þess eru reifaðir aðrir kostir s.s. landfylling út í Skerjafjörð sem er of dýr og fyrir utan hraunið í Hafnarfirði sem á eftir að móta og er því ekki tekin afstaða til. Er pólitísk málamiðlun í uppsiglingu Á blaðamannafundinum kom jafn- framt fram að viðræður um flugvöll- inn og aðalskipulag Reykjavíkurborgar milli Dags B. Eggertssonar og Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráð- herra um flugvöllinn en Samtökin um betri byggð óttast að niðurstaða þeirra viðræðna verði einhverskonar pólitísk málamiðlun sem er ekki síst ætlað að bæta fylgi stjórnarflokkana í borginni í komandi sveitarstjórnarkosningum. Breyta texta Er kominn tími til að kjósa ? Af ofangreindu er ljóst að ákvarðanir varðandi staðsetningu á miðstöð inn- anlandsflugs skipta miklu máli fyrir alla landsmenn og að fylgi við áfram- haldandi veru flugvallarins hefur aukist síðustu ár. Þess má þó geta að kosn- ingaþátttaka árið 2001 var takmörkuð og tók ekki til allra landsmanna heldur eingöngu íbúa Reykjavíkur. Á þeim tíma var takmörkuð umræða um hina hliðina sem síðan þá hefur fengið byr undir báða vængi. Kannski mætti nýta tækifærið í næstu kosningum til að kjósa um fleiri þætti en bókstafi fram- boða svo sem staðsetningu flugvallar (með þátttöku allra landsmanna), áframhaldandi viðræður við Evrópu- sambandið og nýja stjórnarskrá? SGK Höfundur er Einar Örn Thorlacius lögfræðingur 12

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.