Reykjavík


Reykjavík - 12.10.2013, Blaðsíða 9

Reykjavík - 12.10.2013, Blaðsíða 9
912. október 2013 Ásmundur Sveinsson: Meistarahendur fyrirlestur Sigurðar Pálssonar, sunnudag 13. október kl. 15 í Listasafni Reykjavíkur Á sunnudaginn verður áfram-hald á þeirri kynningu sem hófst í vor á Ásmundi Sveinssyni myndhöggvara í tilefni af því að í ár eru 120 ár liðin frá fæðingu hans. Að þessu sinni mun Sigurður Pálsson skáld ræða um stefnur og strauma í listum og menningu í Frakklandi á fyrri hluta 20. aldar, en Ásmundur dvaldi í París á þriðja áratugnum. Sigurður var sjálfur við nám í París frá 1967 til 1974 og aftur frá 1977 til 1982. Ásmundur flutti frá Stokkhólmi til Parísar vorið 1926 en hann hafði verið nemandi við sænsku listaakademíuna um árabil. Hann dvaldi í París í þrjú ár við nám í nokkrum listaskólum og hafði sína eigin vinnustofu. Ás- mundur tók á þessum árum þátt í al- þjóðlegum listsýningum sem haldnar voru í París og fengu verk hans góða dóma í þekktum listatímaritum. Dag- skráin hefst klukkan 15. Aðgangur er kr. 1200 en frítt er fyrir handhafa Menningarkorta. Erró - Heimurinn í dag sýning á nýjum verkum Erró verður opnuð í dag í Hafnarhúsinu kl. 16 undir yfirskriftinni Heimurinn að viðstöddum listamanninum. Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, opnar sýninguna. Við sama tækifæri afhendir Erró verðlaunafé og viðurkenningu úr Listasjóði Guðmundu S. Kristins- dóttur listakonu sem þykir skara fram úr. Sjóðinn stofnaði Erró til minningar um frænku sína Guðmundu og er honum ætlað að efla og styrkja list- sköpun kvenna. Sýningarstjóri er Danielle Kvaran en á sýningunni eru tæplega 70 verk sem Erró hefur gefið Listasafni Reykja- víkur síðustu tvö ár. Erró hefur sýnt Listasafni Reykjavíkur mikinn rausn- arskap í gegnum tíðina en allt frá árinu 1989 hefur hann fært safninu yfir 4400 verk sem spanna allan hans æviferil. Verkin á sýningunni Heimurinn í dag eru gerð á ellefu ára tímabili og sýna nýjan kafla í listsköpun Errós þar sem hann skapar sína eigin mynd- rænu veröld með nýjum efnistökum og myndefni. Hann notar fjölbreytt efni, aðferðir og tækni við listsköpun sína en verkin eru samklippimyndir, vatnslitamyndir, smeltiverk, málverk og yfirmálað stafrænt prent á striga. Erró heldur áfram að gera tilraunir með efni og aðferðir. Á síðastliðnum árum hefur hann í auknum mæli unnið með stafræn prent af ólíkum stærðum þar sem hann kannar nýjar leiðir við að endurnýja málverkið. Samhliða þessu heldur Erró áfram að þróa eða endur- skoða myndbyggingu verka sinna. Hann leikur sér af mikilli fagmennsku með að byggja upp verk þar sem hann ýmist raðar myndum eða myndbrotum lárétt eða lóðrétt. Myndefnið tengist oft hugmyndum listamannsins um orku og hvernig hún getur birst sem ofbeldi, náttúruhamfarir, erótík og stríð. Listasafn Reykjavíkur hefur haldið alls 24 sýningar á verkum Errós í Hafnarhúsinu frá því það var tekið til notkunar sem eitt af listasöfnum borg- arinnar árið 2000. En ávallt eru sýn- ingar á verkum listamannsins í húsinu. Fréttatilkynning frá Listasafni Reykjavíkur Listafélag með samfélagslegt leiðarljós Við Háteigskirkju í Reykjavík hefur nýtt listafélag tekið til starfa. Mark- mið Listafélags Háteigskirkju er að standa fyrir gróskumiklu tónlistarstarfi í Háteigskirkju, bæði með tónleikahaldi og við helgihald safnaðarins. Félagið mun starfa allan ársins hring og gefa út tónleikadagskrá sína fyrir hvert misseri. Hugmyndin að baki Listafélaginu er að auðvelda listamönnum að koma fram með því að lána þeim kirkjuna endurgjaldslaust. Jafnframt heldur þetta fyrirkomulag miðaverði frekar niðri. Þannig nær Háteigskirkja því s a m f é l a g s l e g a markmiði sínu að auðvelda tónlist- arfólki að koma fram og jafnframt að auðvelda tón- leikagestum að sækja fleiri tón- leika með sem ódýrustum hætti. Tónleikaröðin Á ljúfum nótum í Há- teigskirkju er alla föstudaga í hádeginu kl. 12:00-12:30 og er undir listrænni stjórn Lilju Eggertsdóttur. Lengri tón- leikar eru einnig á tónleikadagskránni, einkum á fimmtudagskvöldum og um helgar.Sjá nánari upplýsingar á www. hateigskirkja.is. Byggt á fréttatilkynning frá Háteigskirkju. Kærleikurinn og hrunið Heimspekikaffi í Gerðubergi miðvikudaginn 16. október, kl. 20 Kærleikur var eitt af þeim gildum sem þjóðin kallaði á eftir hrun. Vex og þverr kærleikur í samfélaginu eftir tíðar- andanum? Hvernig hefur gengið að efla kærleikann á liðnum árum? Eru til margar tegundir af kærleika og ef svo er, hvernig lýsa þær sér? Kærleikurinn verður í kastljósinu á heimspekikaffi í Gerðubergi miðviku- daginn 16. október. Gunnar Hersveinn rithöfundur og heimspekingur og Sig- ríður Guðmarsdóttir sóknarprestur í Guðríðarkirkju og doktor í heim- spekilegri guðfræði efna til lifandi umræðu um kærleika fyrir og eftir hrun og velta upp fjölmörgum hliðum hans með hjálp gesta sem einnig láta ljós sitt skína. Byggt á fréttatilkynning frá Menn- ingarmiðstöðinni Gerðubergi Menningarhátíð Seltjarnarness Menningarhátíð Seltjarnarness fer fram um helgina en setn-ing hennar var í Bókasafni Seltjarnarness Eiðistorgi síðastliðinn fimmtudag Á hátíðinni er leitast við að feta ótroðnar slóðir með samvinnu ólíkra hópa lærðra og leikra, yngri og eldri bæjarbúa auk þess að tengja saman listir og vísindi. Áhersla er lögð á að nýta þann mikla kraft, menntun, þekk- ingu og reynslu sem býr í bæjarfélaginu í bland við framlag fagfólks á ýmsum sviðum lista og menningar annars staðar frá. Umfangsmikil dagskrá verður frá morgni til kvölds víða um bæinn. Dag- skráin er sniðin að öllum aldurshópum og ókeypis er á alla viðburði. Á fimmtudag voru opnaðar sýn- ingar, Valgarðs Gunnarssonar í Eiðsskeri, samsýningin Á Milli bóka þar sem lærðir og leiknir listamenn sýndu verk sín auk sýningar úr lífi og starfi rithöfundarins Guðrúnar Helgadóttur í barnadeild safnsins. Í Safnahúsinu leiddu Sigtryggur Baldursson og Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness gesti um undraheima tónlistar og stjarna, útibíó var við Borholuhús við Bygggarða þar sem Kristín Gunnarsdóttir sýndi videoverk. Sýningin Hannað út fyrir rammann úr smiðju Sigga Heimis bæjarlista- manns með eldri borgurum og grunn- skólanemendum var við sundlaugina. Í gær gröffuðu myndlistarmennirnir Karlotta Blöndal og Hildigunnur Birgisdóttir með eldri borgurum og grunnskólanemum útilistaverk í undirgöngunum við Björnsbakarí. Ís- landsbanki bauð upp á djasstónleika á Eiðistorgi og ungmennahátíðin Skelin var opnuð í nýju ungmennahúsi á Sel- tjarnarnesi. Óhætt er að mæla með dagskránni um helgina sem hefst með morgun- verðaboði á Eiðistorgi frá 9:30-11:30 í boði Björnsbakarís þar sem boðið verður upp á rúnstykki, skúffukökur og drykki auk þess sem óvæntur ham- ingjuviðburður gæti brotist út fyrir- varalaust. Listamennirnir á bak við sýninguna Á milli bóka taka á móti gestum í bókasafninu og haldin verður bókasmiðja fyrir 6-11 ára börn kl. 11-13 þar sem Ásdís Kalman mun leiðbeina krökkum um gerð þrívíðra bókverka út frá bókum Guðrúnar Helgadóttur. Dagurinn endar á hátíðardagskránni Óvitar og annað fólk í Félagsheimili Seltjarnarness kl 14-16 sem haldin er í tilefni af 40 ára rithöfundarafmæli Guðrúnar Helgadóttur. Á morgun sunnudag hefst dagskráin með sundlaugarfloti með sígildri tónlist kl. 10-11, guðsþjónusta kl 11 og fræðslu- morgun í Seltjarnarneskirkju kl. 10 þar sem Margrét Hrefna Sæmundsdóttir mun segja frá efni BA ritgerðar sinnar „Helgar meyjar í íslenskri miðaldalist“ auk þess sem opnuð verður sýning á málverkum Soffíu Sigurjónsdóttur og Maríu Bjarnadóttur í safnaðarheim- ilinu. Staðið verður fyrir þremur byggingarlistagöngum; Þær Sólveig Berg Björnsdóttir og Ásdís Ágústdóttir arkitektarnir að Safnahúsinu munu segja frá hugmyndafræði hússins kl 13. Í lyfjafræðisafninu fá gestir leiðsögn um bygginguna og einstakar apóteksinn- réttingar frá síðustu öld og tæki og tól sem notuð hafa verið til lyfjagerðar. Arkitektinn Hörður Harðarson leiðir gesti um Seltjarnarneskirkju. Auk þess verða ýmsir listamenn með opnar vinnustofur bæði í dag og á morgun kl. 13-16. Hátíðarlok verða í Félagsheimilinu með fjölbreyttri dag- skrá kl. 16-17:30. Byggt á fréttatilkynningu og dagskrá

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.