Reykjavík


Reykjavík - 12.10.2013, Blaðsíða 4

Reykjavík - 12.10.2013, Blaðsíða 4
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík Sími 560 1010 • www.heilsuborg.is Ætlar þú að breyta um lífsstíl? Að námskeiðinu standa m.a. hjúkrunarfræðingar, íþrótta- fræðingar, læknir, næringar- fræðingur, sálfræðingar og sjúkraþjálfarar. Heilsulausnir Henta einstaklingum sem glíma við offitu, hjartasjúkdóma og/eða sykursýki. • Heilsulausnir hefjast mánudaginn 28. okt. • Mán, mið og fös kl. 07:20, 12:00 eða 17:30 • Verð kr. 17.500 pr. mán í 12 mán. • Skráning í síma 560 1010 eða á mottaka@heilsuborg.is Kynningarfundur miðvikudaginn 16. október kl. 17:30 – Allir velkomnir! ER BÍLSÆTIÐ RIFIÐ ? Viðgerðir á öllum gerðum af bíla-, mótorhjóla og snjósleðasætum. Húsbílaklæðningar og öll almenn bólstrun. Við erum þekktir fyrir fljóta og góða þjónustu. Hamraborg 5 kóp, Hamrabrekkumegin S. 544 5750 www.hsbolstrun.is Formbólstrun Laugavegi 86 101 Reykjavík S. 511 2004 www.dunogdur.is 1000 gr. sængur Verslun og vefverslun Laugavegi 69 S. 551-7955 Allt okkar úrval á: www.hokuspokus.is ALLT FYRIR HALLOWEEN Grímur, gervi og skraut Betra verð! Meira úrval! 12. október 20134 SKEMA: Stelpur og strákar í forritun Skema ehf. stendur fyrir nám-skeiðum fyrir ungt fólk í leikja-forritun auk þess að vinna að rannsóknum og þróunarverkefnum í samstarfi við grunn- og framhaldsskóla landsins. Skema var stofnað í framhaldi af því að hugmyndin „Börn í Undralandi Tölvuleikjanna“ hlaut titilinn „Fræ ársins 2011“ í frumkvöðlasamkeppni Háskólans í Reykjavík, Össurar hf., Samtaka iðnaðarins, Klak, Landsvirkj- unar og Eyri Invest ehf. Aðferðafræði Skemu í kennslu og rannsóknum er þverfagleg og tvinnar saman þekkingu í sálfræði, kennslufræði og tölvunar- fræði. Markmiðið er að kenna ungu fólki frá 6 ára aldri að forrita en í starfs- mannahópi Skema eru sérfræðingar með menntun í tölvunarfræði, sálfræði, stærðfræði og kennsluréttindum. Skema í samstarfi við Microsoft á Ís- landi og Háskólann í Reykjavík stóð fyrir forritunarkeppni „Kodu Gam Lab Challenge“ þar sem Kjartan Örn Styrkársson10 ára Skema strákur bar sigur úr býtum. Hægt er að kynna sér þjónustuna á www.skema.is. Ritstjóri settist niður með fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins Rakel Sölvadóttur og ræddi starfsemi fyrir- tækisins og framtíðaráform. Hvers konar þjónustu býður Skema upp á? Skema býður upp á þjónustu sem varðar uppbyggingu á menntun í takt við tækniþróun. Við bjóðum m.a. upp á ýmis námskeið í forritun fyrir ungt fólk á öllum aldri, námskeið fyrir kennara í bæði forritun og notkun á spjaldtölvum, stuðning til skóla/ sveitarfélaga við innleiðingu á forritun og/eða spjaldtölvum auk námskeiða fyrir fyrirtæki og forelda. Af hverju finnst þér nauðsynlegt að kenna ungu fólki að forrita? Hag- kerfi framtíðarinnar byggir á tækni, tæknilæsi og þekkingu. Í dag er þjóð- félagið háð tæknimenntuðu fólki til að hægt sé að nýta tæknina eins mikið og mögulegt er. Mikil eftirspurn er á markaði eftir tölvu- og tæknimenntuðu fólki og fjölbreytt tækifæri í boði. Við þurfum að byrja strax að þjálfa upp næstu kynslóð og efla tölvufærni í þágu þverfaglegrar hæfni í framtíðinni. Við þurfum að læra að vinna með tölvuna en ekki bara vinna á hana – líkt og við þurfum að læra að skrifa jafnt sem lesa. Það þarf því að gera umbætur í kennslustarfi í takt við tækni- og þjóð- félagslegar breytingar og koma kennslu í forritun inn í almenna kennslu í grunn- og framhaldsskólum landsins. Nú eru flestir forritarar strákar – af hverju eru stelpur ekki að forrita? Með því að hefjast handa snemma og helst fyrir unglingsárin þá fá bæði kynin tækifæri til að sjá möguleikana sem tæknin getur boðið þeim upp á. Þau geta farið úr því að vera hinn hefð- bundni neytandi yfir í að skapa sín eigin forrit. Það er í kringum unglings- árin sem við festum í sessi stereótýpur. Flestir verða hræddir við tækni og for- ritun því að umhverfið segir okkur að aðeins nördar geti lært að forrita og að það sé ótrúlega erfitt og þá sérstaklega fyrir stelpur. Ef börn fá snemma að kynnast forritun á jákvæðan hátt mun tæknin horfa allt öðruvísi við þeim og mörg hver vilja læra meira og byrja jafnvel að móta framtíðina í átt að tækninámi. Annars er gaman að segja frá því að Ísland getur státað sig af því að eiga Tæknistelpu Evrópu (Digital Girl of the Year 2013), Ólínu Helgu Sverrisdóttir (13 ára), en hún mun taka á móti viðurkenningunni í Litháen í byrjun nóvember. Okkur vantar fleiri svona fyrirmyndir til að brjóta upp þessa nei- kvæðu nördaímynd sem hefur verið ríkjandi fram til þessa. Af hverju ættu stelpur að kynna sér forritun? Kynin eru ólík, það verður að viðurkennast og það er mikilvægt að ná sýn beggja kynja inn í heim tækninnar. Ef að konur koma ekki að sköpun tækninnar þá heldur þróunin áfram að vera byggð út frá þörfum karl- anna og eða þeirra getgátum um þarfir kvenna til tækni. Síðan getur forritun líka bara verið svo skemmtileg og skap- andi að það ættu allir í það minnsta að fá tækifæri til að spreyta sig til að geta út frá þeirri upplifun metið hvort þetta sé eitthvað sem viðkomandi vill leggja meiri rækt við. Hvaða ráð myndir þú gefa ungu fólki sem hefur áhuga á forritun? Taka skrefið og hefjast handa við að byrja að forrita - þetta eru engin geimvísindi og því ekkert að óttast. Skema stendur fyrir fjölda námskeiða þar sem hægt er að byrja á jákvæðan og uppbyggi- legan hátt og síðan eru líka nokkrir skólar farnir af stað með innleiðingu á forritun sem hluta af skólanámskrá. SGK Rakel í viðtali við BBC news Í viðtali Alex Hudson við Rakel á BBC news kemur fram að SKEMA hafi þróað leiðir fyrir krakka til að forrita frá 6 ára aldri. Í viðtalinu kemur fram að Rakel er með ADHD og þegar hún upplifði það að sonur hennar sem einnig er greindur með ADHD var að lenda í sömu erfið- leikum og hún í skólakerfinu þá fannst henni að eitthvað þyrfti að breytast. Það sem hafi vakið fyrir henni var að finna leið til að kenna krökkum að forrita sem væru með athyglisbrest eða önnur frávik sem oft valda námsörð- ugleikum. Í kennslunni er ekki reynt að kenna krökkum að finna villur í forritunarmáli heldur er stuðst við þrívíða leiki á borð við Angry birds og Game Craft til að kenna krökku grundvallaratriði forritunar. Gullna reglan á öllum námskeiðum er að allir þurfa að vera hamingju- samir og læra aðferðir til að verða það t.d. með því að bíta í blýant sem æfir sömu vöðva og það að brosa og sendir því sambærileg skilaboð til heilans sem framleiðir Endorfín sem gerir mann glaðari. Það að vera glaður gerir heilann móttækilegri og eykur líkurnar á því að þú munir það sem þú lærir. Önnur tækni er að krakkarnir læri hver af öðrum en í viðtalinu segir Rakel frá því að SKEMA er með 60 að- stoðarkennara frá aldrinum 8-16 ára, oft krakka sem eru með einhverskonar frávik á borð við ADHD og einhverfu. Í viðtalinu kemur fram að eftir að hafa kennt um 1.700 nemendum á Ís- landi hafi áhugi á verkefninu kviknað erlendis en SKEMA er komin af stað með verkefni í Barcelona á Spáni, Red- mond í Bretlandi. Til stendur að opna miðstöð í Bandaríkjunum auk þess sem aðilar frá Danmörku og Slóvaníu hafa sýnt aðferðafræði SKEMU áhuga. Samkvæmt Alex þá gæti þekking fyr- irtækisins orðið ein besta útflutnings- vara Íslendinga í framtíðinni. Sjá tengil á viðtalið í heild sinni á www.skema.is

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.