Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2006, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2006, Blaðsíða 2
2 Frcttir / Fimmtudagur 9. mars 2006 FRÁ afhendingunni, Kristján, Jóhannes, Hlynur, Jóna Björk og Hermann og fyrir framan er Grétar Þorgils, sonur Jónu. Vestmannaeyjadeild Rauðakrossins veitir viðurkenningar og afhenti íbúð til nota í neyðartilfellum: Jóna Björk skyndihjálparmaðurinn Vestmannaeyjadeild Rauða Kross Islands bauð til sarnkomu sl. þriðjudag þar sem margir góðir gestir voru mættir m.a. nýráðinn framkvæmdastjóri RKÍ, Kristján Sturluson. Deildin verður 65 ára á þessu starfsári og endurbótuni á húsnæði Rauða krossins í Arnardrangi er nær lokið og var húsnæðið vígt formlega og nýtingarmöguleikar kynntir. Einnig var lilkynnt um val á Skyndihjálparmanni ársins, sérstök viðurkcnning til einstaklings fyrir óeigingjarni starf í þágu Rauða krossins, og lögreglu alhent lykla- völd að íbúð í risi Arnardrangs. Rauði kross íslands hefur undan- farin fimm ár staðið að vali á skyndihjálparmanni ársins. Her- mann Einarsson, lormaður Vesl- mannaeyjadeildar RKl sagði að með því vilji félagið vekja athygli almennings á mikilvægi skyndi- hjálpar og hvetja sem flesta til að læra skyndihjálp og verða þannig hæfari til að veita aðstoð á vettvangi slysa og áfalla. Hermann tilkynnti síðan að skyndihjálparmaður nýliðins árs hér í bæ væri Jóna Björk Grétarsdótlir sem sýndi frábæra færni og þekk- ingu í skyndihjálp þegar hún hnoðaði og blés lffi í Ingólf Grétarsson, þegar hann hné fyrir- varalaust niður í Iþróttahúsinu. Hjermann veitti Jónu viðurkenn- ingarskjal og sagði RKÍ veita viðurkenninguna í þeirri von að hún mætti vekja almenning til umhugs- unar um mikilvægi þess að kunna skyndihjálp. Því næst kallaði Hermann upp Hlyn Sigmundsson, lögreglu og sjúkraflutningamann og veitti hon- um sérstaka viðurkenningu en hann hefur til margra ára annast sjúkrabíl staðarins af einstakri kostgæfni. Hermann sagði starf Rauða krossins byggja á fórnfúsu framlagi þúsunda manna og Hlynur væri einn þeirra sem skipuðu þann hóp. Hermann vék sfðan að húsnæðis- málum Vestmannaeyjadeildar Rauða krossins. Sagði hann að hús- næðið væri senn tilbúið að utan og innan og að félagar Lions hefðu unnið óeigingjarnt sjálfboðastarf við standsetninguna. Þakkaði hann þeim fyrir og sagði þóknun fyrir vel unnin störf renna í líknar- og styrkt- arsjóð Lions. I framhaldinu afhenti hann Jó- hannesi Ólafssyni, yfirlögreglu- þjóni. lyklavöld að íbúð á rishæð- inni svo að fyrirvaralaust megi hýsa þar einstaklinga eða fjölskyldu sem vegna bruna, vatnstjóns eða heimil- isofbeldis þurla að yfirgefa heimili sitt. Hermann gat þess jafnframt að einnig muni vera hægt að hýsa þarna ólögráða ungmenni sem hafa komist í kast við lögin en ekki má vista í fangageymslum. Ekki er ætlast lil að fólk dvelji í íbúðinni nema fyrstu sólarhringana eftir óhöpp fyrir utan vörslu ólögráða. Ibúðin er útbúin til að hýsa 6 til átta manns og eftir að sr. Þorvaldur Víðisson hafði Hutt blessunarorð var gestum boðið að skoða hús- næðið og þiggja kaffiveitingar. Þjálfaranámskeið: Tannlækn- irinn dúx- aði Þeir Heimir Hallgrímsson, Hjalti Kristjánsson og Guðlaugur Baldursson útskrifuðust allir síðasta föstudag með UEFA-A þjálfaragráðu frá KSÍ. Þetta er hæsta þjálfaragráða sem í boði er á Islandi og næsthæsta þjálf- aragráða sem UEFA viðurkennir. 22 þjálfarar útskrifuðust með gráðuna en Heimir fékk sérstök verðlaun fyrir að dúxa á prófinu. Þeir þjálfarar sem hlotið hafa UEFA-A þjálfaragráðuna hafa leyfi til að þjálfa alla flokka og í öllum deildum á Islandi en auk þess er þjálfaragráðan viður- kennd í 48 af 52 aðildarlöndum UEFA. Hæsta þjálfaragráða UEFA er svo UEFA Pro þjálf- aragráða, en KSÍ stefnir á að bjóða upp á UEFA Pro þjálfara- gráðu í samvinnu við enska knattspyrnusambandið innan fárra ára. Heimir þjálfaði sem kunnugt er meistaraflokk kvenna til margra ára auk þess sem hann tók við meistaraflokki karla tímabundið. Þá hefur hann þjálfað yngri fiokka félagsins til fjölda ára og er nú þjálfari sjötta fiokks félagsins ásamt eiginkonu sinni, írisi Sæmundsdóttur. Hjalti Kristjánsson hefur þjálfað KFS undanfarin II ár og mun halda því áfram í sumar. Guðlaugur Baldursson er svo að hefja sitt annað tímabil með meistarafiokk karla, ÍBV. Þess ntá svo geta að Eyjamaðurinn Jón Ólafur Daníelsson, sem nú er þjálfari yngri fiokka í Grindavfk, útskrif- aðist á sama tíma og þremenn- ingamir. Office 1 hefur keypt Bókabúðina: Góð þjónusta og sama verð og í öllum verslunum IiINAR Þor og Guömundur. í dag, fimmtudag, tekur Office 1 við rekstri Bókabúðarinnar en gengið var frá samningum um sölu hcnnar um sfðustu helgi. Verslunin hér verður sú sjötta á landinu en Office I er alþjóðleg verslunarkcðja með verslanir í öllum heimsálfum. Guðmundur Eyjólfsson keypti Bókabúðina haustið 2002 og tók við rekstrinum I. október 2002. Þá var hún til húsa að Heiðarvegi 9 en fiutti í núverandi húsnæði að Faxastíg 36 þar sem Guðmundur opnaði nýja og glæsilega verslun. 19. nóvember. „Þetta hefur verið erfiður rekstur ekki síst þegar maður er að kaupa og reyna að borga," sagði Guð- mundur þegar hann var spurður um hvernig gengið hefði. „Það er erfitt að reka sérverslanir í minnkandi bæjarfélagi. Það er bein samkeppni við Reykjavík og ekki hægt að leyfa sér að vera nteð önnur verð en þar eru í boði. Ég auglýsti búðina til sölu í ágúst og það var ekki áhugi innanbæjar að kaupa. Pennanum, sem var samstarfsaðili minn, stóð til boða að kaupa en þeir hölðu ekki áhuga. Það var svo í síðustu viku að þetta small sarnan og Office I tekur við rekstrinum á morgun," sagði Guðmundur þegar rætt var við hann í gær. Sáum gott tækifæri Einar Þór Sigurgeirsson, rekstr- arstjóri Office I. var í Eyjum í vikunni að ganga frá lausum endum og gera verslunina tilbúna fyrir nýja eigendur. Heildsölufyrirtækið Egilsson hf. keypti rekstur Office 1 á íslandi á síðasta ári og hefur smátt og smátl verið að fjölga verslunum. „Okkar stærsta verslun er í Skeifunni en við erum einnig í Smáralind. Svo er verslun frá okkur á Akureyri, ísafirði og á Egilsstöðum og nú hér í Eyjum.“ Aðspurður hvers vegna Office I hafi ákveðið að kaupa rekstur Bókabúðarinnar-Pennans sagði Einar að þeir hafi einfaldlega séð gott tækifæri til að koma hér inn á markaðinn. „Við teljum okkur geta veitt Eyjamönnum góða þjónustu og boðið sama verð og í öllum öðr- um verslunum okkar. Við auglýsum okkur ávallt ódýrari og stöndum við það.“ Verslanirnar eru allar keimlíkar í grunnþjónustu. það er boðið upp á skrifstofuvörur í miklu úrvali en einnig tölvur og tölvurekstrarvörur. „Síðan erum við sterkir í skóla- vörunt og skiptibókum þannig að þegar sá tími kemur er mikið líf og fjör í verslunum okkar. Til dæmis erum við með 50 manns í vinnu í Skeifunni þegar skiptibókamark- aðurinn fer af stað en að jafnaði starfa sex f versluninni." Einar sagði þó hverja verslun hafa sín séreinkenni þó grunnþjónustan sé sú sama. „Hér í Eyjum ætlum við til að mynda að halda áfram með tónlist, bækur og afþreyingu en við erum ekki að selja mikið af því í öðrum verslunum okkar." Hann sagði að verslunin myndi taka breytingum en halda sínum séreinkennum. „Fram að helgi ætlum við að vera með rýming- arsölu og vera nieð 50% afslátt af öllum vörum f búðinni og síðan í framhaldinu munu öll góðu tilboðin sem við erum með í verslunum okkar í Reykjavík endurspeglast hér í Eyjum." Reksturinn leggst vel í Einar. Hann telur að þeir geti veitt þessum rúm- lega fjögur þúsund íbúum hér góða þjónustu. „Við munum taka hér eitt skref í einu og næsta skref er að finna hér góðan heimamann til að taka að sér verslunarstjórastöðuna og munum við auglýsa það starf fijótlega." tltgBfandi: Kyjasýn Hil'. tHIWIR-tl.'ittl - W-stinaiiiiiicyjiini. Hitstjóri: Oiiuir (iimliiisson. Bladamenn: Siguisvcinii Þóltliusmi, (iiulbjiirj;Si*<nr<<(‘ii-sdóttir. Iþróttir: .liilius liignsoii. ÁbjTgðarmenn: Oilinr (iiiúlnrsson & (lisli Vnltvssoii. Prentvinna: Kyjnsrn Ivy jupii'iit. Vpstiiiniiiiiiryjiiiii, Aðsetur ritstjómar: Stinndvegi 4i. Símar: 4HI I:!()() A 4KI :):)l(). Myndriti: 4HI- l:*!):j. Netfang/rafpóstur: fivttiiýdoyjnli’cttii.is. Voffang: littp www.oyjnfivttir.is FRÉTl'LH koiiui út nllii luiiiiitiidiign. Bladid or solt i áskril't og ciiiuig i lniisnsölii :i Klotti, Tvistiiium, To|i|iiiiiin, Vöruval, Horjólfi, Þ1 ugliafiiarvoissluniiini, Kniniiniii, ísjakanuiii, Bónusvidoó, voi'slun I l-ll, Skýlinu i Fridarliöl'u og i .lolla i llafiiarfirdi og afgiriifslu llojnilfs i Þorláksliöfn. FRÉ'iTLK oru |iroiitadar í '.‘(HH) eintökuni. FRÉTi'LK oru adilnr ad Samtökiim Un'jar- og lióiudsfróttalilada. Iíftir|iivntuii, liljÍKlritun, notkiin Ijiismymla ogimiiiid or ólioimilt iioina lioimilda sógotid.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.