Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2006, Blaðsíða 14
14
Fréttir / Fimmtudagur 9. mars 2006
Draumurinn að vera með dáta
Árshátíð Hamarsskóla er toppurinn á
þemaviku þar sem stríðsárin í
Vestmannaeyjum voru í brennidepli.
Nemendur unnu í hópastarfí á
þemadögum og til dæmis tók unglinga-
aðstaðan á sig nýjan búning en þar
málaði myndlistarhópurinn myndir sem
minna á stríðsárin.
Þær eru svo flottar að hver listamaður
gæti verið stoltur af þeim. Lciklistar- og
tónlistarhópur vann að undirbúningi
skemmtidagskrár fyrir sjálft
árshátíðarkvöldið og matreiðsluhópur sá
um árshátíðarmatinn. Margir aðrir
hópar voru að störfum þessa daga og
unnu allir, á einn cða annan hátt, að
sama viðfangscfni sem voru stríðsárin í
Vestmannaeyjuni.
Allir nemendur voru í sínu fínasta
pússi og skemmtilcgt að sjá hvað
krakkarnir voru glæsilcgir.
Kræsingarnar sem matreiðsluhópurinn
hauð upp á, voru ekki af verri endanum,
bayonneskinka með brúnuðum
kartöflum, salati og sósu í aðalrctt og
brúnkaka með ís í eftirrétt. Eftir að
borðhaldi lauk hófst skemmtidagskrá á
sal skólans.
Er skemmst frá því að segja að hún
tókst frábærlega vel. Nemendur njóta
aðstoðar fagfólks við undirbúning
árshátíðar s.s. í lciklist og tónlist og það
skilaði sér svo sannarlega. Skólinn státar
af tvcimur hljómsveitum sem báðar stigu
á stokk og tókst mjög vel upp. Tónlist frá
stríðsárunum í hland við nýja hljómaði
um salinn, tónlistin var vel útfærð og
nemendur og kennarar kunnu svo sann-
arlega að meta það sem flutt var.
Því næst var tískusýning þar sem
tískusýningarhópurinn sýndi tískuna frá
stríðsárunum. Það var mjög skemmtilegt
að sjá straumana sem þá ríktu og þó svo
að tískan fari í hring þá er hvert tímabil
einstakt. Þarna mátti sjá hvernig klæðn-
aður fólks var á þcssum árum, kven-
leikinn greinilcga í hávegum hafður án
þess að vera ögrandi, mikiö lagt upp úr
fallegum sniöum og alls konar tlottum
fylgihlutum.
Næst á dagskrá var leiksýning þar sem
nemcndur fóru hreinlega á kostum.
Ungar stúlkur komu prúðbúnar, að hætti
stríðsáranna, á dansleik. Þær voru allar
mjög sannfærandi í sínum hlutverkum
og skemmtilegt að sjá hvernig þær báru
sig að við að snyrta sig áður en haldið
var í danssalinn. Á meðan á leik-
sýningunni stóð spilaði hljómsveit lög frá
stríðsárunum og söngkona stcig á stokk
þannig að í sýningunni fléttaðist saman,
tónlist og leiklist eins og á alvöru leik-
sýningu sem þessi svo sannarlega var.
Þá kom að þætti íslcnskra karlmanna,
sem voru satt að segja ekki neitt sérstakt
augnayndi. Strákarnir sem léku þá voru
hreint út sagt óborganlegir í hlutverkum
sínum og gerðu það svo vel að það
verður lengi í minnum haft. Ekkert
skrítið að amerísku strákarnir skyldu
taka af þcim sénsinn, eins ömurlcga hall-
ærislegir og þeir voru. Hermennirnir
voru hins vegar fínpússaðir og flottir,
strákarnir sem léku þá töluöu enskuna
reiprennandi og voru þar af lciðandi
mjög sannfærandi. Auðvitað endaði allt í
áflogum á milli hermanna og Islendinga.
I Ieiksýningunni, sem nemendur sömu
sjálfir, kom í Ijós hvaða augum unga
kynslóðin sér tímabilið sem kennt er við
stríösárin. Að minnsta kosti dæmir hún
ekki stúlkurnar, sem litu hcrmenn hýru
auga, eins hart og samtíminn gerði, sem
betur fer.
í lok skemmtidagskrár voru úrslit kynnt
um val á ungfrú og herra Hamarsskóla
ásamt ýmsum öðrum titlum s.s. mestu
gelgjunni, mestu frekjunni, mesta kropp-
inum, mesta krúttinu o.s.frv. Eftir að
dagskrá lauk hófst diskótek fyrir nem-
endur þar sem allir skemmtu sér vel.
Árshátíðin var ncmcndum, kennurum og
starfsfólki Hamarsskóla sannarlega til
sóma.
ÞEIR áttu soldið bágt íslensku strákarnir.
SNYRTINGIN þurfti að vera í lagi till að eiga sjens.
HALLDORA, Erna, Ester, Jóhanna og Drífa stóðu yfir pott- STÓRSVEIT Hamarsskóla
unum.
AÐ sjálfsögðu voru svo allir í spariklæðum og mikið hlegið þegar leikararnir náðu hæstum hæðum.
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir.
ÍSLENSKAR glæsimeyjar og einn dáti.