Fréttir - Eyjafréttir - 09.03.2006, Síða 20
—> r
\ \ \ \j I X ' — O f \ oo *-> K_J Æ o —T" v
Frétta- og auglýsingasími: 481-1300 / Fax 481-1293
Um 30 manns mættu í Kaffi Kró á fimmtudagskvöldið og skemmtu sér vel
undir fyrirlestri Sigurgeirs Jónssonar um viðurnefni í Vestmannaeyjum.
Skipalyftan: Lengingu lokið á Frá VE
Fyrirmyndar vinnubrögð
-segir Óskar Þórarinsson útgerðarmaður
Einu stærsta verkefni síðustu ára í
Skipalyftunni er nú að ljúka en það
er lenging á Frá VE unt þrjá metra
ásamt ýmsu öðru sem lagfært var í
leiðinni. Stefán Jónsson, verkstjóri
Skipalyftunnar, sagði að ásamt
lengingunni hafi lestin algjörlega
verið endurnýjuð. „Hún var klædd
að innan með vatnsheldum spóna-
plötum og settar nýjar karafest-
ingar. Þá var lagað til á milli-
dekkinu og bætt við tveimur klef-
um. Eins var sett í skipið
slökkvikerfi og skipið sandblásið að
hluta.“ Byrjað var að vinna í Frá VE
seint í október og hefur verkefnið
því tekið tæpt hálft ár. Stefán segir
verkefnið hafa verið stórt en menn
séu ánægðir með útkomuna. „Þetta
er stærsta einstaka verkefni okkar
síðustu ár en það hefur dregist
saman í þessu eins og öllu öðru f
þessum iðnaði síðustu ár. Líkt og ég
hef sagt hundrað sinnum áður þá
komum við alltaf að þessum vanda-
málum. Skipin eru að stækka og við
ráðum ekki lengur við þau verkefni
sem eru í boði en menn virðast
engan áhuga hafa á að laga það.“
Hann segir verkefnaástandið hafa
verið gott síðustu misseri en lítið sé
framundan. „Það er ekkert bjart
framundan en við verðum að halda
áfram að reyna, bjóða í verk uppi á
landi og reyna að útvega verkefni út
um allt land,“ sagði Stefán og bætti
við að hann hafi verið mjög
ánægður með öll vinnubrögð starfs-
manna sinna, þau hafi verið til
fyrirmyndar.
Gott kaffi þarna niður frá
Óskar Þórarinsson, útgerðarmaður
Frás VE, sagði að eftir breyting-
arnar tæki lestin þrjátíu körum
meira en áður og hún hafi öll verið
tekin í gegn auk fleiri lagfæringa.
Frár VE var smíðaður árið 1977 í
Skotlandi en fór í yfirbyggingu árið
1993 í Skipalyftunni. „Það má
kannski segja að þeir haldi áfram
því vérki sem þeir hófu þá. Mér
fannst eiginlega ágætt að þeir klár-
uðu verkið og svo er lfka alveg
ágætt kaffi þama niður frá.“ Óskar
segir vinnubrögðin hafa verið til
fyrirmyndar. „Þetta hefur allt
gengið mjög vel og það er sómi að
þessu.“ Smávægilegar tafir urðu við
sandblástur á skipinu en það var
vegna veðurs. Óskar segir það einu
tafimar og ekki hafi ráðist við það.
Aðspurður hvort hann hafi ekki
íhugað að sigla utan í skipa-
smíðastöðvar, líkt og margir
útgerðarmenn á Islandi gera sagðist
hann ekki hafa viljað það. „Nei, ég
sá það bara í hendi mér. Þeir í
Skipalyftunni voru í svipuðum
flokki, það munar ekki það miklu
og svo skapar þetta atvinnu. Þannig
að þetta var ekkert til að tala um,“
sagði Óskar og bætti við að kannski
vantaði bara þennan stórkapítalisma
í sig. „Þeir hafa unnið þetta vel, það
er hörkulið þarna niður frá. Við
vorum búnir að kynna okkur það
þannig að við vissum alveg að þeir
myndu standa sig. Svo verður bara
að koma í ljós hvort hann fljóti ekki
í prufusiglingunni," sagði Óskar.
FRÁR er öflugra og afkastameira skip eftir breytingarnar.
pANcy
r Snyrtistofa A verslun
Skólavegi 6
s. 481-3330
Kirkjuvegi 10
Sími: 481-3666
VIKUTILBOÐ
9. -15. mars
Elitesse bitar
verd nú kr 199,-
verá óður kr 258,<
Grand Orange helgarsteik
verð nú kr/kg 1299,-
verð óður kr/kg 1668,-
SS smurkæfa 200g
verð nú kr 169,-
verð óður kr 230,-
Kjúklingastubbar
verð nú kr 539,-
verð óður kr 690,-
Reykt folaldakjöt
verð nú kr/kg 469,-
verð áður kr/kg 598,-
Munið heita matinn í hádeginu
$ vörnt á tilbóöil