Fréttir - Eyjafréttir - 15.02.2007, Page 1
Bílaverkstæðið BrAGGINN sf. Flötum 20 ^^lll^jjjj^jjjjjjjjjjj^^jjl^^
Viðgerðir og smurstöð - Réttingar og sprautun - Sími 481 3235 Sími 481 1535
34. árg. / 7. tbl. / Vestmannaeyjum 15. febrúar 2007 / Verð kr. 200 / Sími 481-1300 / Fax 481-1293 / www.eyjafrettir.is
KRISTJÁN Egilsson tók þessa skemmtilegu mynd í höfninni á mánudaginn. Það
er verið að landa upp úr Kap í Vinnslustöðinni en það eru fleiri en mannfólkið
sem elta loðnuna, það gerir æðarfuglinn líka.
Allt á fullu í loðnunni:
Um 140 manns
á vöktum við
frystinguna
Loðnuvertíðin stendur nú sem hæst
en stutt er á miðin því loðnan hefur
veiðst rétt við Vestmannaeyjar og
hefur mátt sjá báta allt í kring við
veiðar og frystingu.
Hjá ísfélaginu er búið að frysta um
eitt þúsund tonn það sem af er
vertrðar auk þess sem Guðmundur
VE er búinn að frysta um 1300
tonn. Pakkað er á tólf tíma vöktum
t' frystihúsi félagsins en alls eru um
tuttugu manns á hvorri vakt. „Við
vorum að byrja að frysta fyrir
Japansmarkað á þriðjudag en fyrir
það höfum við mest verið að frysta
hæng fyrir Rússlandsmarkað,"
sagði Eyþór Harðarson, útgerðar-
stjóri ísfélagsins.
„Mér sýnist á öllu að það sé ekki
meira en svona vika í að við byrjum
í hrognunum. Annars fmnst mér
vertíðin núna sérstök en þetta er svo
sem aldrei eftir bókinni. Við
vonuðumst t.d. eftir meiri veiði hér
við Eyjarnar aðfaranótt miðviku-
dags en þá var lítil veiði.“ ^
Sex skip veiða fyrir ísfélagið,
Álsey, Antares, Guðmundur, Sig-
urður , Júpiter ÞH og Þorsteinn ÞH
en tvö síðustu skipin fylgdu með í
kaupunum á Hraðfrystistöð Þórs-
hafnar.
hrjú skip tvær áhafnlr
Hjá Vinnslustöðinni er búið að
frysta um 1200 tonn á Rússlands-
markað og í hádeginu á miðvikudag
var búið að frysta um 400 tonn á
Japansmarkað. Um eitt hundrað
manns vinna við frystingu hjá
Vinnslustöðinni og er unnið bæði á
átta og tólf klukkustunda vöktum.
„Þeir eru mjög ánægðir Japanimir
héma með loðnuna enda tel ég að
þetta sé besta loðnan sem fryst
verður á þessari loðnuvertíð," sagði
Sigurjón Gísli Jónsson, fram-
leiðslustjóri.
„Við byrjuðum að frysta fyrir
Japansmarkað á mánudagskvöld og
höfum gert það nánast sleitulaust
síðan en við afköstum svona um
240 tonnum á sólarhring á Japans-
markað. Veiðar hafa gengið vel,
Sighvatur fékk 400 tonn aðfaranótt
miðvikudags og þá kölluðum við
hann inn. Við emm að gera ísleif
kláran og verðum þá með þrjú skip
og tvær áhafnir þannig að á meðan
við löndum úr einu þá em tvö úti.
Eg á hins vegar ekki von á því að
við föram þessa leið fyrr en við byr-
jum á hrognunum. Og það styttist í
það,“ sagði Sigurjón.
Vill litla átu og gott veður
Guðmundur Huginn Guðmunds-
son, skipstjóri á Huginn VE, sagði
litla veiði við Vestmannaeyjar þegar
hringt var í hann um hádegisbilið á
miðvikudag. „Það hafa tveir bátar
kastað hérna í morgun og mér skilst
að það haft verið lítið hjá þeim eins
og reyndar hjá öllum við Vest-
mannaeyjar í nótt. Það eru fáir
bátar héma núna, mest vinnsluskip
sem em að frysta en ég hef svo sem
ekkert fylgst með hvað aðrir em að
gera,“ sagði Guðmundur.
Alls hefur Huginn fryst um 2500
tonn af loðnu. Verið var að klára að
frysta aflann sem þeir áttu um borð
en áætlað var að landa á fimmtu-
dagsmorgni.
Guðmundur segir vertíðina hafa
verið óvenjulega vegna átu. „Það
hefur átuvesen. I fyrra vomm við
ekki í þessum vandræðum. Það
virðast vera ákveðin svæði þar sem
loðnan er með meiri átu í sér og þá
reynir maður að forðast þau.
Annars er það tvennt sem þarf að
ganga upp svo að loðnuvertíð gangi
vel, það er að átan sé í lágmarki og
að veðrið sé gott,“ sagði Guð-
mundur að lokum.
Alls eru átján í áhöfn Hugins.
Seðlabankinn til Eyja?
Elliði Vignisson, bæjarstjóri, hefur skrifað hug-
vekju um nauðsyn þess að flytja opinber störf út á
land og segir komið að Vestmannaeyjum. Og
hann spyr, af hverju ekki Seðlabankann til Eyja?
| BLS. 12
Útlendingarnir hjó ÍBV
Eyjamenn hafa verið óhræddir við að sækja
leikmenn til útlanda í handbolta og fótbolta. í
dag er rætt við tvo leikmenn í kvennaboltanum
og þjólfara strókanna en öll koma þau að utan.
| BLS. 8 og 9
PEPSI
PBPSI
sssa®
„ , anHur
TILBOD - SENT
?^?aM/3,álf,??f , tBiwEap
+ 9 hvitlaiikshraiK) + 1/2 1. Pepsi dos
12“ pizza m/3 áleggst. Pt7ÍI(^TLp
+ 9” ln ítlauksbr. / margaríta +1/2 1. l’epsi dós u
16“ pizza m/2 áleggst. _ 0,^-7, n f
+ 16” hvítlauksbr. / margaríta + 2 1. I’epsi dós 13LjcCi>í++P ó-O e
Þetta þarf ekki að vera flókið
t»ú getur sparað bæði peninga og plóss
mlðja.is
KERFISLEIGA - VISTUN - ÞJÓNUSTA