Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 15.02.2007, Síða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 15.02.2007, Síða 13
Fréttir / Fimmtudagur 15. febrúar2007 13 Eyjan okkar: Brekku- söngur og Eyjafjor Eyjan okkar er sýning þar sem Vestmannaeyjar eru kynntar fyrir landi og þjóð. A sýningunni, sem verður í Smáralind 3. mars, munu fyrirtæki frá Vestmannaeyjum kynna vörur sínar og þjónustu allan daginn. Auk þess sem hópur lista- manna og þekktra Eyjamanna frá Perlunni í suðri munu koma fram á stórtónleikunum í Smáralindinni að kvöldi 3.mars 2007. Ymsar viðurkenningar verða veittar til þeirra sem skarað hafa fram úr að mati dómnefndar, og eflt hafa menningar og mannlíf Eyjamanna og velunnara þeirra í gegnum árin. Um kvöldið verður Brekkusöngur og Eyjaskemmtun í Vetrargarði Smáralindar og hefst miðasala á morgun, þriðjudag kl 10:00 á www.miða.is og í verslunum Skíf- unnar og BT búðunum. Miðaverð kr. 1800, einungis 500 sæti í boði. Fréttatilkynning. Þó ekki komi það fram í frétta- tilkynningunni má gera ráð fyrir að Ámi Johnsen mæti með gítarinn. Landakirkja á sunnu- daginn: Tveir kórar í messunni Það verða tveir öflugir kórar sem syngja við guðsþjónstu í Landa- kirkju næsta sunnudag. Kaffihúsa- kórinn syngur tvö til þrjú lög undir stjórn Óskars Sigurðssonar og era það ný lög sem kórinn hefur verið að æfa að undanförnu. Kór Landakirkju syngur svo að venju aðra sálma guðsþjónustunnar og messusvörin, en stjórnandi kórsins er Guðmundur Hafliði Guðjónsson, kantor kirkjunnar. Guðsþjónustan hefst klukkan tvö og á eftir er kaffisopi í Safn- aðarheimilinu. Eru allir hvattir til að koma sem eiga þess kost að sækja kirkju á annað borð. Sr. Krixtján Björnsson. Færri flokkar en betri þjónusta -segja þeir Guðbjörn og Jóhann sem opnuðu nýja verslun á laugardag EYJAMAÐURINN Björn Matthíasson í Harðviðarvali var mættur til að kynna það sem þeir hafa upp á að bjóða í gólfefnum. Ný verslun á gömlum grunni var opnuð á laugardag, þegar þeir Guðbjöm Guðmundsson og Jóhann Guðmundsson opnuðu Eyjatölvur við Strandveginn þar sem Brimnes var áður til húsa. Eyjatölvur eru ekki gamalt fyrir- tæki. Guðbjöm stofnaði fyrirtækið, sem hefur sérhæft sig í tölvum og tölvuþjónustu, fyrir fjómm árum og var fyrst í húsnæði við hlið Spari- sjóðsins en flutti sig fljótlega yfir í stærra húsnæði við Vestmanna- brautina. Umsvif fyrirtækisins jukust og á síðasta ári gekk Jóhann til liðs við hann. Þeir segja að það hafi nokkuð háð þeim á Vest- mannabrautinni hve húsnæðið var lítið en allt í allt var það um 70 fer- metrar. Þeir hafi verið að leita sér að stærra húsnæði og stefnan var sett á um það bil 150 fermetra. Svo æxluðust málin þannig að þeir fóm að ræða við Svavar í Brimnesi sem hafði hug á að hætta í sínum rekstri. „Reyndar fannst okkur þetta alveg svakalega stórt, við vomm ekki alveg tilbúnir að fara úr 70 fermetrum yfir í 300 fermetra," segja þeir félagar. En eftir nánari íhugun ákváðu þeir að láta slag standa og seint á síðasta ári var gengið frá samningum. „Þetta var um það bil tveggja mánaða ferli og vissu fáir af þessu meðan á því stóð,“ segja þeir. Undanfamar vikur hafa staðið yfir breytingar á húsnæðinu og á laugar- dag var svo nýja verslunin opnuð. Óhætt er að segja að talsverðar breytingar hafi verið gerðar á hús- næðinu. I raun og vem er þama um tvær verslanir að ræða undir sama þaki. Önnur er með tölvur og tölvubúnað en hin með málningu frá Flúgger og gólfefni frá Harð- viðarvali. „Það er ekki aukning í vöm- flokkum í því sem Eyjatölvur vom með. Aftur á móti er mjög aukið vömúrval í símum, tölvubúnaði hvers konar og því sem þeim hlut- um tengist," segja þeir Guðbjöm og Jóhann. „Við tókum þá ákvörðun að hætta með búsáhöld, byggingavömr og verkfæri sem höfðu verið fyrir- ferðarmikil í Brimnesi. Emm þó áfram með sjónvörpin. En þess í stað einbeitum við okkur að máln- ingu og gólfefnum. Úrvalið hjá okkur í málningunni er það sama og hjá Flúggerlitum í Reykjavík og verðið það sama. Þá em gólfefnin, sem við emm með, einnig á sama verði og hjá Harðviðarvali í Reykja- vík. í okkar huga er það höfuðmál að geta boðið upp á sama verð hér og á það leggjum við áherslu," segja þeir. „Við emm með færri vömflokka en vom áður en við ætlum að ein- beita okkur að færri flokkum og vera betri í þeirri þjónustu. Og þó að þetta séu ólíkir vöruflokkar, annars vegar tölvubúnaður og hins vegar málning, þá teljum við þetta geta farið ágætlega saman. Yfirleitt em sumarmánuðimir rólegir í tölv- unum en meira að gera í máln- ingarvömm og svo snýst þetta við á vetuma. Þetta ætti því að geta farið ágætlega saman.“ Spurðir um nafnið á nýju versl- uninni, segja þeir að hún muni heita Eyjatölvur áfram. Málningarversl- unin kemur til með að heita Flúggerlitir. Á næstunni verður sett upp nýtt skilti með þeim nöfnum. Verslunin Brimnes heyrir því sögunni til enda segja þeir að Svavar eigi nafnið, þó svo að þeir njóti þeirrar viðskiptavildar sem það fyrirtæki hafði. Og þeim ber saman um að laug- ardagurinn hafí verið frábær. „Við fengum mjög góðar viðtökur, stöðugur straumur af fólki og þessir fyrstu dagar lofa mjög góðu. Þetta er raunar búin að vera botnlaus vinna en við emm auðvitað hæst- ánægðir með það,“ sögðu þeir fé- lagar í lok vinnudags á þriðjudag, þreyttir en ánægðir. Sigurg. Framsóknarmennirnir Hjálmar Árnason og Birkir J. Jónsson á þingi: Ókeypis fyrir Eyja- menn með Herjólfi? -Kostnaður ríkisins óverulegur Framsóknarmennirnir Hjálmar Ámason og Birkir J. Jónsson hafa lagt fram á Alþingi ályktun um að samgönguráðherra verði falið að undirbúa setningu reglugerðar er feli í sér að kostnaður farþega við að sigla með ferjum til staða utan þjóðvegakerfisins verði sambæri- legur kostnaði af akstri á þjóðveg- um. Á þetta að taka gildi fyrir 1. maí nk. í greinargerð er talað um Vestmannaeyjar, Grímsey, Hrísey og Flatey á Breiðafirði þar sem fólk er bundið af skipsferðum eða flugferðum. „Fyrir vikið má segja að íbúar þessara svæða séu bundnari en aðrir við áætlunar- ferðir. Þá má segja að ferðakostn- aður fólks á umræddum svæðum geti verið hærri en almennt tíðkast vegna gjaldtöku. Þannig má taka dæmi af hjónum með einn ung- ling, tvö böm og bíl undir fimm metrum að lengd. Kostnaður þeirra við að ferðast fram og til baka frá Vestmanna- eyjum með Herjólfi er á bilinu 8000 til 13.000 krónur. Til saman- burðar væri kostnaður þeirra við að fara Hvalfjarðargöng aðeins veggjaldið 600 til 1.000 kr„ óháð fjölda í bfl. Hér er mikið ójafnræði meðal þegna landsins eftir því hvort þeir búa á eyjum við landið eða geta ferðast landleiðina á bflum sínum. Með rökum má halda því fram að siglingar með Herjólfi séu þjóðleiðin til Vestmannaeyja. Því er ekki óeðlilegt að gjaldskrá farþega með Herjólfi sé sniðin að því, þannig að kostnaður við að ferðast milli lands og eyja verði sambærilegur við það sem yrði ef ekið væri á milli. Hið sama gildir um önnur eyjasamfélög." Að mati þeirra félaga gæti ein lausn vandans verið sú að íbúar með lögheimili á umræddum stöðum fengju að sigla gjaldfrjálst með hinum ríkisstyrktu ferjum. Með því móti væri aðstöðumunur jafnaður en kostnaður ríkisins af þessu væri óverulegur. Guðjón Hjörleifsson alþingismaður skrifar: Um 5, 4 milljarðar í samgöngubætur Tillaga til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun fyrir árin 2007 Höfn: til 2010 og 12 ára samgönguáætlun fyrir árin 2007 til 2018 hefur verið lögð 2007 í undirbúning, uppgræðsla, vegur o.fl. 200.000.000. fram á Alþingi og mun samgönguráðherra mæla fyrir þessum tillögum nk. 2008 í höfn.1.035.000.000. fimmtudag. 2009 í höfn.1.240.000.000. Aldrei í sögu Eyjanna höfum við fengið eins mikið fjármagn í samgöngu- 2010 verklok.825.000.000. bætur á fjögurra ára samgönguáætlun og nú. Samtals: 3.300.000.000. Ferja: Bakkafjara 2010: 2008.100.000.000. I samgönguáætlun 2007 til 2010 er gert ráð fyrir 4 milljörðum og 900 2009.725.000.000. milljónum til þess að bygggja upp höfn í Bakkafjöru og tengd mannvirki, 2010.775.000.000. uppgræðslu, vegtengingu og nýrri ferju sem tekur 45 til 50 bfla og 250 Samtals: 1.600.000.000. farþega. Skiptingin er í kr.: Enn kaupir Mk Magnús Kristinsson festi nýverið kaup á Áma Gíslasyni ehf. sem sérhæfir sig í bílaréttingum og sprautun, en það mun verða Toyota í Kópavogi ehf sem mun reka ÁG, sem hluta af sinni starfsemi. „Ástæðan fyrir kaupunum á Bifreiðaverkstæði Áma Gíslasonar er einföld: Við stefnum að því að veita viðskiptavinum okkar fram- úrskarandi þjónustu í öllum þáttum þjónustuferlisins," segir Magnús Kristinsson, eigandi Toyota á ís- landi, aðspurður. „Bifreiðaverkstæði Áma Gísla- sonar hefur verið starfrækt sem fjölskyldufyrirtæki með myndar- brag í yfir 50 ár og með kaupum okkar á því skapast gríðarlega spennandi sóknarfæri í átt að því takmarki okkar að framfylgja þjónustustigi gagnvart Toyotaeig- endum, sem uppfyllirog fer jafnvel fram úr þeim væntingum sem þegar em til okkar gerðar. Kaupin eru jafnframt rökrétt framhald af þeirri ákvörðun sem við tókum á síðasta ári þegar við keyptum bifreiðaverkstæði Kópa- vogs, en þá voru formerki kaup- anna þau sömu - að auka þá þjónustu sem við veitum nú þegar í dag. Með auknum fjölda Toyota bifreiða í umferð er aukin þörf fyrir þjónustu og við leggjum mikið upp úr því að tryggja Toyotaeigendum sem besta þjónustu. ”

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.