Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.2009, Side 2

Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.2009, Side 2
2 Fréttir / Fimmtudagur 26. febrúar 2009 Jórunn segir að hart verði barist um annað sætið hjá VG: Ætlum að stækka þingmanna- hópinn í Suðurkjördæmi JÓRUNN: -Vestmannaeyingar vilja auðvitað alltaf hafa sitt fólk fremst í flokki þannig að það kom aldrei annað tii greina en að stefna eins hátt og mögulegt er. Eyjakonan Jórunn Einarsdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á lista Vinstri grænna í Suður- kjördæmi. Jórunn er dóttir Einars Friðþjófssonar og Katrínar Freys- dóttur sem búa í Vestmannaeyjum en Jórunn býr, sem stendur, í Kópavogi ásamt eiginmanni sínum, Ágústi Oskari Gústafssyni, sem er í læknanámi á höfuðborgarsvæðinu. Jómnn vakti verðskuldaða athygli í alþingiskosningunum 2007 fyrir vasklega frammistöðu en þá var Jórunn í 6. sæti á lista VG. Jórunn segir að fyrir hálfu ári hafi ekki hvarflað að henni að hún ætti eftir að standa í prófkjöri og stefna á setu á Alþingi. „Þegar stjórnin sprakk og pólitíkin fór á flug þá fannst mér þetta vera tækifæri sem ég gæti ekki sleppt. Mig langaði í þennan slag ein- faldlega vegna þess að ég er búin að fá nóg. Eg er búin að fá nóg af því að hlusta á Sjálfstæðisflokkinn tala eins og það sé enginn nógu góður til að stýra þessu landi nema þeir. Ég tel að það sé kominn tími til að sýna þeim að það er fullt af mjög hæfu fólki, sem hefur aðrar skoðanir og önnur gildi en sjálfstæðismenn, fólk sem er fullfært um að stýra þjóðarskútunni.“ Nú varstu í 6. sæti síðast. Er ekki rökrétt skref að færa sig upp listann? „Jú, og í raun fannst mér aldrei annað koma til greina. Fólk hafði á orði við mig síðast að það hefði vilj- að sjá mig ofar á listanum. Vest- mannaeyingar vilja auðvitað alltaf hafa sitt fólk fremst í flokki þannig að það kom aldrei annað til greina en að stefna eins hátt og mögulegt er. Ég geri mér líka fulla grein fyrir því hversu mikil vinna liggur að baki í svona starfi enda skilaði okkar vinna í Vestmannaeyjum 2007 mikl- um fjölda atkvæða. Þá fengum við okkar fyrsta þingmann í Suðurkjör- dæmi og nú ætlum við að stækka þingmannahópinn í kjördæminu." Áðspurð segir Jórunn það bæði kost og ókost að vera ný og nokkuð óreynd. „Ég veit það vel að mig skortir eflaust ýmislegt sem reyndari stjómmálamenn hafa en í flokknum er hins vegar fólk sem er hokið af reynslu í þessu og ég get alltaf leitað til þeirra. Eins og staðan er núna þá kallar þjóðin á nýtt, pólitískt umhverfi. Ég tel að það sé best að halda í reynslubolta eins og Atla Gíslason, sem skipar efsta sætið í Suðurkjördæminu, og fá svo ungt fólk með honum. Ég tel að við Atli komum til með að vinna vel saman ef ég fæ tækifæri til að skipa annað sæti listans. Fólk er líka að leita eftir nýjum vinklum og sjónarhornum hjá stjórnmálamönnum og nýtt fólk hefur aðra sýn en þeir sem hafa starfað lengi í stjórnmálunum. Það hjálpaði líka til við ákvörðunina að Vinstri grænir tefla fram fléttulista þar sem kynjahlutfallið verður jafnt í efstu sætunum," sagði Jórunn og segist stefna ótrauð á að verða þing- maður 25. apríl næstkomandi. Samkvæmt skoðanakönnunum voru Vinstri grænir orðnir einn stærsti stjómmálaflokkur landsins á meðan flokkurinn var í stjómarand- stöðu. Jórunn segir vissulega skipt- ar skoðanir innan flokksins hvort það hafi verið rétt að fara í ríkis- stjóm með Samfylkingunni. „Hvað hefði verið sagt ef við hefðum setið hjá? Við ákváðum að axla ábyrgð og fara í ríkisstjórn þegar til okkar var leitað.“ Em einhver mál í Suðurkjördæmi og Vestmannaeyjum sem þarf að berjast fyrir? „Það eru fyrst og fremst atvinnumál. I kjördæminu hefur mikið til verið einblínt á sjávarútveg og landbúnað. Ferða- þjónusta er gríðarlega vanmetin atvinnugrein og þar má vissulega gera betur. Reyndar segir bæjarstjórinn í Eyjum aldrei annað en að hér sé allt í blóma þannig að kreppan virðist ekki ná til Vestmannaeyja. Ég held að Vestmannaeyingar þurfi að gera sér grein fyrir því að kreppan kemur til með að hafa áhrif hér eins og annars staðar og við verðum að vera raunsæ. Vandamálin hér em þau sömu og alls staðar annars staðar og við þeim þarf að bregðast. Ég verð samt að minnast á samgöngumálin í Eyjum. Það verður að klára þau mál í góðri sátt við bæjaryfirvöld, sem aftur myndi auka möguleikana í ferðaþjónustunni því eins og staðan er í dag þá er það ferðaþjónustan sem er vaxtarbroddurinn í íslensku atvinnulífi, þar liggja tækifærin," sagði Jómnn. Hvemig metur þú möguleika þína á að ná öðm sætinu? „Samkeppnin er mikil um efstu sætin í forvalinu enda ákaflega öflugir einstaklingar að bjóða sig fram. Þetta forval hefur svo sann- arlega sýnt það að innan flokksins er mikið af hæfu fólk sem er tilbúið að láta til sína taka þegar þörf er á. Möguleikar mínir eru jafngóðir og annarra. Ég tel mig eiga stuðnings- menn um allt kjördæmið þó flestir séu kannski staddir í Eyjum en við sjáum hvað setur. Ég er í það minnsta tilbúin að láta til mín taka.“ Lúðvík hættir eftir 14 ár á þingi - Kominn tími til að skipta um vettvang: Endurnýjun sjálfsögð og eðlileg -Þakka af heilum hug öllum sem hafa stutt mig í gegnum árin SAMHERJAR Björgvin G., Kristján Möller og Lúðvík á fundi í Lúðvík Bergvinsson, þingmaður og þingflokksformaður Samfylkingar- innar, tilkynnti í síðustu viku að hann hefði ákveðið að bjóða sig ekki fram í komandi kosningum til Alþingis. Lúðvík hefur setið á þingi í 14 ár og segir hann mikil straumhvörf hafa orðið í íslensku samfélagi undanfama mánuði sem geri þá sjálfsögðu og eðlilegu kröfu að breytingar verði á skipan Alþingis, enda þáttur stjómvalda mikill þegar kemur að ábyrgð á því að fjármálakerfi landsins hrundi. í samtali við Fréttir sagðist Lúð- vík vilja þakka öllum fyrir þann stuðning og traust sem hann hafi notið þann tíma sem átti sæti á Alþingi. „Það eru mikil forréttindi og lærdómur hverjum þeim sem fær að starfa á Alþingi í umboði almennings. Fyrir það vil ég sér- staklega þakka,“ sagði Lúðvík. „Eftir fjórtán ár fannst mér kom- inn tími til að huga að öðmm verkefnum. Ég var yngsti alþingis- maðurinn þegar ég var kosinn á Alþingi 1995 og því finnst mér góður tími nú til að gera breytingar. Ég fór vandlega í gegnum huga minn fyrir síðustu kosningar, 2007, og ákvað þá að taka eitt kjörtímabil til viðbótar. Það eru því vegamót og kominn tími til að takast á við annað. Staðreyndin er líka sú að á okkar vakt hrundi fjármálakerfi landsins. Ábyrgðarmenn þessa hruns eru hinir föllnu bankar og stjórnvöld. Mér finnst því sjálfsagt og eðlilegt að endurnýjun eigi sér stað á Alþingi. Á þessum árum á þingi hef ég einnig oft rifjað upp með sjálfum mér að ég útskrifaðist úr lögfræði snemma á síðasta ára- tug. Það hefur því lengi blundað í mér að nýta prófið til takast á við lögmennsku og tengd störf. Það kann að vera spennandi nú að takast á við slíkt og er eitt af því sem ég horfi nú til. Þessi tími á Alþingi hefur verið mikil og góð reynsla fyrir mig hvernig sem á hana er litið. Eg tel að hún eigi eftir að reynast vel í hverju því sem ég tek mér fyrir hendur. Þá var tíminn í bæjarstjóm Vestmannaeyja skemmtilegur, að því leyti að verkefnin voru erfið og krefjandi enda reyndu þau mikið á, en gáfu mikið. Þar vann ég með mörgu góðu fólki eins og á þingi. Mikið var gert til að endurreisa fjárhag bæjarins og endurskipu- leggja reksturinn. Það var sársauka- fullt á þeim tíma en nýtist bænum vel í dag. Þá hefur mér virst að núverandi bæjarstjórn hafi gert mikið í því að ljúka þeim verkefn- um og áætlunum sem við lögðum upp með, svo að mér virðist Ijóst að við vorum á réttri leið. Það eru mikil forréttindi að fá að vera og starfa á Alþingi og í bæjarstjóm, og fyrir það þakka ég af heilum hug og sendi kveðju öllum sem hafa stutt mig í gegnum árin. Á þessum fjórtán árum telst mér til að ég hafi farið í gegnum níu kosningar og prófkjör. Margir hafa lagt hönd á plóg svo ég kæmist í gegnum þær orustur. Fyrir það er ég afar þakklátur og marga vinina á ég eftir. Það er ómetanlegt," sagði Lúðvík. Slökkvitækjaþjón- ustan selur fyrir Strandmöllen Selur loft af öllum gerðum Strandmöllen ehf. er íslenskt dótturfyrirtæki danska gas- fyrirtækisins Strandmollen Á/S, sem býr yfir 90 ára reynslu af framleiðslu og sölu lofttegunda. Umboðsaðili í Vestmannaeyjum er Slökkvi- tækjaþjónusta Vestmanna- eyja sem Grímur Guðnason á og rekur. Um áramótin 2007 og 2008 var sala á öllum lyfjaloftteg- undum til heilbrigðisstofnana á íslandi, fljótandi súrefni, súrefni og glaðlofti á hylkjum, boðin út á vegum Ríkiskaupa. Strandmollen reyndist vera með hagstæðasta tilboðið. Undanfarið hefur hið nýja íslenska Strandmöllen ehf. verið að_ koma undir sig fót- unum á íslandi og hyggst m.a. bjóða upp á ýmsar þær loft- tegundir, sem notaðar eru í málmiðnaðinum. Fyrirtækið hefur tekið á leigu húsnæði að Drangahrauni 1B í Hafnarfirði, þar sem lagerhald verður fyrir viðskiptavini á höfuðborgar- svæðinu. Nýlega gerði Strandmöllen samning við Slökkvitækja- þjónustu Vestmannaeyja, um sölu lofttegunda í Vestmanna- eyjum, um lagerhald og þjónustu við viðskiptavini og notendur í Eyjum. „Það er von okkar, að viðskiptavinir og væntanlegir kaupendur taki vel á móti Strandmöllen. Markmið fyrir- tækisins er að veita góða þjónustu, kynna nýjar loft- tegundir og blöndur, sem ekki þekkjast á íslandi í dag en hafa gefið góða raun víðast hvar erlendis. Enn fremur leggur fyrirtækið áherslu á ráðgjöf og samvinnu við væntanlega viðskiptavini í Eyjum, sem tryggir, að við- skiptin verði sem hagstæðust fyrir báða aðila,“ sagði Grím- Slökkvitækjaþjónustan er til húsa við Skildingaveg 10 til 12 en flytur fljótlega að Vestur- vegi 40. Útgefandi: Eyjasýn elif. 48(ri7H-(l.i4(l - Vestmanniioyjum. Ritstjóri; Ómar Garðarsson. Blaðamenn: (Juðbjörg Sigurgoirsdöttir og Július lngason. fþróttir: Ellort Scheving. Áhyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gisli Valtýsson. I’rentrinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vostmannaoyjum. Aðsetnr ritstjómar: Stnindvogi 47. Símar: 4H1 1300 & 4HI 3310. Myndriti: 481-1393. Netfang/rafpóstnr frettir@oyjafrcttir.is. Veffang: http/Avww.oyjafn'ttir.is FRÉ'lTLlt koma ót alla fimmtudaga. Blaðið orsolt i áskrilt og einnig i lansasölu á Klotti, Jristinum, Toppnum, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarvorsluninni, Krónunni, Isjakanum, verslun 11-11 og Skýlinu i Friðarhöfn.. FRÉTTIK oru pivntaðar i 3000 eintökum. FRÉTJTB oru aðilar aö Samtökum bæjar- og hóraðsfréttahlaða. Eftirpivntun, hljóðritnn, notkun ljósmynda og annað or óheimilt noma heimilda sc getið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.