Fréttir - Eyjafréttir - 26.02.2009, Blaðsíða 16
ÍFRÉTTIR]
Frétta- og auglýsingasími: 481-1300 / Fax 481-1293
t sun
inv<
Investments S.L
FASTEIGNASALA A SPÁNI
LINDA RÓS
(0034) 646 930 757
lindafesgíSholmalUam
www.*unínv«Hm»nt»l.«)m
plÚS 141 <C?
UimOÐÍE/JUM:
r/i'úlhmuy Phmhrnfiizvn
^43'V\'\6vJ v->yVií)v
vyjniijJsJ&ulrjirjciUs
STAFRÆN PRENTUN
Boðskort Veggspjöld Nafnspjöld
Ársskýrslur Sönghefti Félagaskrár
og hvað sem þig vantar prentað.
EYJA5Ý1M
ErJAPRCNT • reíTTW • FJÖISYN • «r|»rr*ttlr4»
Strandvegi 47 | s. 481 -1300
I SVÖLUKOTI Sigríður, systir Önnu Svölu, var meðal fjölda gesta við opnunina á laugardaginn.
Svölukot - Listasmiðja fyrir listir án landamæra:
Fyrir listamenn úr öllum
kimum listaflórunnar
Listasmiðja Svölukots var opnuð
formlega um síðustu helgi en
smiðjan er til húsa að Strandvegi
95. Anna Svala Johnsen og Guðjón
Jónsson, eigendur Svölukots,
keyptu húsnæðið árið 2007 og hafa
unnið að endurbótum í tvö ár.
Húsnæðið, sem er u.þ.b. 200 fer-
metrar, hefur hýst ýmsa starfsemi,
s.s. veiðarfæragerð, fiskverkun og
trésmíðaverkstæði. Eftir gagngerar
endurbætur er það allt hið glæsi-
legasta. Á neðri hæðinni er mikið
og gott rými og á efri hæðinni er
kaífistofa, setustofa og salur sem
hægt er að nota til sýninga og
námskeiðahalds.
Markmið Svölukots er að skapa
góða vinnuaðstöðu til útleigu fyrir
listamenn úr öllum kimum lista-
flórunnar og skapa þannig umhverfi
fyrir list án landamæra.
„Húsið heitir nú Látraberg, þar
sem ég er frá Saltabergi og Gaui frá
Látrum og þannig tengjum við
nöfnin saman. Við keyptum hús-
næðið 2007, höfum verið að stand-
setja í um tvö ár og höfum tekið
húsið í gegn eftir efnum og aðstæð-
um,“ segir Anna Svala þegar hún er
spurð út í húsið og Svölukot.
„Á neðri hæðinni verður smiðja
sem er fyrir grófari vinnu. Á efri
hæðinni getur fólk verið með
listviðburði t.d. ef fól vill flytja tón-
list, lesa upp ljóð eða úr bókum eða
yfirleitt úr verkum sínum. Mér
finnst mikilvægt að þetta verði fjöl-
nota hús. Uppi er líka hægt að hafa
fyrirlestra, kynningar og minni
námskeið. Þar er skjávarpi og við
ætlum að koma upp þráðlausu neti
og við erum með vandað hljóð-
kerfi.“
Anna Svala segir að fólk hafi
þegar skráð sig og vilji fá aðstöðu
og vinna t.d. við textíl eða mynd-
list.„Fólk sýnir þessu mikinn
áhuga, bæði einstaklingar og nám-
skeiðshópar hafa þegar pantað pláss
hér í húsinu. Ég er sjálf að vinna í
tré, garðhúsgögn og skúlptúra og
verð hér í húsinu. Ég leigi aðstöð-
una til einstaklinga eða hópa í
tiltekinn tíma en fólk vinnur oft við
handverk eða að listsköpun í
skorpum. Ef einhver vill halda
námskeið þá leigir hann aðstöðu og
sér alfarið um námskeiðahaldið
sjálfur.
Ég reikna með að tólf til fjórtán
manns geti verið hér á námskeið-
um. Það verður sett upp stunda-
tafla, sumum hentar betur að koma
á morgnana og aðrir koma seinni
part dags eða á kvöldin.
Anna Svala segist sjá Svölukot
sem samastað fyrir þá sem eru að
vinna að listsköpun. „Hér verður
kaffistofa þar sem þeir sem vinna í
húsinu geta sest niður og spjallað
og miðlað af sinnu þekkingu. Ef
þetta nær að þróast verður líf og
fjör í húsinu og þá verða kannski til
störf í kringum þetta. Þetta á auð-
vitað eftir að þróast og það væri
skemmtilegt ef við gætum keypt
ofn í framtíðinni og þá gæti fólk
unnið annað hvort gler eða leir
héma. Við fengum 350 þúsund
styrk frá Atvinnuþróunarsjóði
Suðurlands sem var ætlaður í
heimasíðu og bæklingagerð um
starfsemina og Helgi Georgsson
vann það fyrir okkur.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis-
ráðherra veitti, sem félagsmála-
ráðherra, sömu upphæð í tengslum
við atvinnumál kvenna og ný-
sköpun. Frosti Gíslason og Hrafn
Sævaldsson hafa stutt við bakið á
okkur í þessu ferli öllu og við
munum leita til þeirra áfram. Ég
vona að starfsemin hér eigi eftir að
nýtast bæjarbúum vel og að fólki
eigi eftir að líða vel hér í húsinu, “
sagði Anna Svala að lokum og hafa
hún og Gaui hafa látið stóran
draum rætast með því að byggja
upp Listasmiðjuna Svölukot sem
gæti að einhverju leyti tekið við
hlutverki Vélasalar Listaskólans.
VIKUTILBOÐ
26. febrúar - 4. mars
Beauvaise rauðkól sso g.
veri nú kr 198,-
verð úáur kr 298,-
Prince fullkorn kremkex
verá nú kr 168,-
verá úáur kr 248,-
Kókosbollur 4 uk
verá nú kr 328,-
verá úáur kr 428,-
B.D. satoy sósa
verá nú kr 398,-
verá úáur kr 498,-
SS Cajp s helgarsteik
verá nú kr/kg 1698,-
verð dður kr/kg 2098,-
Frosn. kjúkl.bringur 900 gr
verð nú kr 1388,-
verð dður kr 1968,-
Búrf.hamborgarar 4 stk
verð nú kr 468,-
verð dður kr 550,-