Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.03.2009, Qupperneq 14

Fréttir - Eyjafréttir - 19.03.2009, Qupperneq 14
14 Fréttir / Fimmtudagur 19. mars 2009 W$m P§|!$É| MMM wmmmi • /1' r. !* i '<Vi 'viV'«- ll>m4'jWlé‘W\lL Æp$mk IBiíMtr'ftíiiriniiif' mpme ftirai -það er einmitt sú hugsun sem sjávarútvegsnemar tileinka sér í námi sínu og í þeim störfum sem þeir munu taka sér fyrir hendur í framtíðinni, segja þau Fyrir skömmu komu í heimsókn nokkrir nemendur við Sjávarút- vegsdeild Háskólans á Akureyri og heimsóttu sjávarútvegsfyrirtækin í Vestmannaeyjum. Kynntu þau sér starfsemi fyrirtækjanna og stöðu sjávarútvegs í Eyjum. Margt sáu þau jákvætt en glöggt er gestsaugað eins og kemur fram í ferðasögu þeirra sem hér birtist. Þar nutu þau aðstoðar Eyjamannsins Harðar Sæ- valdssonar sem kennir við skólann. Nemendumir, sem komu til Vest- mannaeyja, stunda nám á öllum námsárunum sem eru þrjú. Segja þau að gaman hefði verið að fara þessa ferð fyrr á námsferlinum til þess að víkka sjóndeildarhringinn. Kemur fram að mikill vilji er nú innan sjávarútvegsfræðibrautar að gera heimsókn til Vestmannaeyja að föstum lið í náminu í samstarfi við Þekkingarsetur Vestmannaeyja. Nemendur sem komu eru: Eyrún Elva Marinósdóttir, Halldór Pétur Ásbjörnsson, Hrafn Bjamason, Jón Benedikt Gíslason og Jón Ingi Bjömsson. Hvernig ferðin tengist náminu Ferðin var liður í þeirri þróun Sjávarútvegsdeildar HA að efla tengsl nemenda og atvinnulífs með heimsóknum í fyrirtæki. „Sjávarútvegsfræðingar, sem hafa áhuga og metnað til að kynna sér nýjungar í starfsemi sjávarútvegs- fyrirtækja, verða mun betur í stakk búnir til að starfa í greininni en þeir sem einungis halda sig við bóklega kennslu og hirða ekki um að fara í vettvangsferðir. Vestmanneyjar em eitt virkasta samfélagið í fiskvinnslu á landinu og þykir það ekki sæma sjávarút- vegsnema að hafa ekki farið til Eyja a.m.k. einu sinni á námstím- anum,“ segja þau í inngangi. Fjölbreytt vinnsla Þau segja að Vestmannaeyjar séu ein stærsta útflutningshöfn á land- inu og fiskvinnsla þar sé fjölbreytt, miðað við að vera ekki stærra at- vinnusvæði að flatarmáli. „Vinnslan í Eyjum er mjög fjöl- þætt, allt frá löndun afla úr bátum á innlendan markað eða beint í gáma, sem seldur er ferskur erlendis, til fullvinnslu afurða beint á disk neytenda.. Sjá fyrirtækin að mestu um sín markaðsmál sjálf,“ segja þau. Þau taka Grím kokk, sem fram- leiðir fullunna fiskrétti, sem dæmi um starfsemi sem þau vilja sjá víðar á landinu. „Þetta er lýsandi dæmi um hvað sjávarútvegurinn á að vera, líkt og annar matvælaiðn- aður á hann að framleiða fullunnar fiskvörur. Það sjálfstæði og sú útsjónarsemi sem skín í gegn í Eyjum er einmitt sú hugsun sem sjávarútvegsnemar eru að tileinka sér í námi sínu og í þeim störfum sem þeir munu taka sér fyrir hendur í framtíðinni," segja þau. Ástæða heimsókn- arinnar Tilgangur ferðarinnar var að kynna KÍKT VIÐ í Neti þar sem var verið að útbúa trol fyrir gulldepluveiðar. sér starfsemi og umfang sjávarút- vegsfyrirtækja í Vestmannaeyjum. Eins og flestum ætti að vera ljóst segja þau Vestmannaeyjar með stærri löndunarhöfnum landsins, með mjög hátt hlutfall aflaheim- ilda. „Eyjamenn hafa yfir að ráða tólf prósentum aflaheimilda lands- manna, fyrir utan uppsjávardeili- stofna; en þar ráða þeir rúmlega 21 prósenti uppsjávarheimilda í loðnu, norsk-íslenskri síld og kolmunna. Til gamans má geta að Eyjamenn eru einungis 1,3% af íbúafjölda íslands. Það sem einkennir Vestmanna- eyjar að mati nemanna er hvað BJÖRN BRIMAR Hjá ísfélaginu kynnir áhugasömum nemendum starfsemina. einkaframtakið hefur mikið vægi. „Sést það best á fjölda smærri útgerða, nýlegra togbáta og skipa í smíðum. Einnig sást vel hvers eðlis útgerðimar eru, yfirmenn í landi mæta á bryggjuna í kuldagöllum til að taka á móti skipunum. Einn út- gerðarmaður bauð okkur einfald- lega heim til sín og kynnti fyrir- tækið. Það sem einkennir útgerð og fiskvinnslu í Vestmannaeyjum er lítil sem engin yfirbygging í fyrir- tækjunum. Það sýnir að menn eru ekki í þessu til þess að líta vel út heldur til að byggja upp öflug sjávarútvegsfyrirtæki og fjárfesta fremur í aflaheimildum en útliti. Mikil samstaða er meðal útgerða um að efla kvótastöðu sína og útskýrir það líklega hversu lítið ber á svokallaðri „kreppu" í Eyjum. Allir hagnast Samstaðan og samvinnan í Eyjum ætti kannski ekki að koma á óvart þar sem allir hagnast á öflugu atvinnulífi sem heild. Mikið líf er á bryggjum ólíkt mörgum öðrum höfnum sem búa yfir sterkri kvóta- stöðu. Til samanburðar er lítið líf við Akureyrarhöfn, þar er reyndar ríkari hefð fyrir útgerð vinnslu- skipa og togara,“ segja þau. Þeim fannst merkilegt hvað vel hefur tekist að aðlaga flotann að breyttum aðstæðum til sjávar og lands. „Það sést t.d. á fjölda þriggja og fjögurra mflna báta sem og ýmsum nýjungum í veiðarfæra- tækni. Það vakti þó athygli okkar að í nokkrum bolfiskverkunum var fremur gamaldags vinnslubúnaður í samanburði við aðrar hátækni- væddar bolfiskvinnslur, sem við höfum kynnt okkur víðs vegar um landið.“ Þau spyrja hvort mikil áhersla á gámaútflutning gæti verið ástæðan? Forsvarsmenn fyrirtækjanna bentu Nemendur við Sjávarútvegsdeild Sjálfstæöi semi skín í HA í heimsókn - Glöggt er gests augað: og útsjónar- gegn í Eyjum

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.