Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 19.03.2009, Síða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 19.03.2009, Síða 16
16 Fréttir / Fimmtudagur 19. mars 2009 Takk fyrir mig -Ég mun stolt taka þátt í þeirri bar- áttu sem framundan er og hvergi draga af mér í þeirri vinnu Qrcin Ragnheiður Elín ií'A'il Arnadóttir skrifar: Skipar efsta sœti K. V ; - Sjálfstœðisflokks. Að lokinni stuttri og snarpri prófkjörsbaráttu vil ég koma á framfæri innilegum þökkum ti) allra þeirra sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi sem lögðu fram- boði mínu lið, sem og til kjósenda sem veittu mér brautargengi í prófkjörinu. Þessi dyggi stuðn- ingur leiddi til öruggs sigurs í baráttunni um 1. sætið á listanum og fyrir það verð ég endalaust þakklát. Þá hefur sá mikli hugur, sem býr í stuðningsmönnum mínum, verið hvetjandi, uppbyggilegur og skemmtilegur. Kosningabaráttan var drengileg og lærdómsrik - áherslan lögð á gildi, sannfæringu og trúverðugleika þess fólks sem var í framboði sem og málefnin sem það stóð fyrir. Eg vil sérstaklega þakka öllum meðframbjóðendum mínum fyrir gott samstarf og skemmtilega bar- áttu - ég ber mikla virðingu fyrir þeim öllum og eru þau öflugir málsvarar Sjálfstæðisflokksins. Nú liggur niðurstaðan fyrir - sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi hafa kosið sér sterkan lista og dug- mikið fólk til forystu í næstu kosn- ingum. Ég hef þann heiður að fara fyrir listanum og mun leggja mig alla fram um að vinna af alefli að hagsmunum kjördæmisins alls. Ég mun leggja mig fram um að við sem skipum efstu sæti listans vinn- um saman sem ein heild, sem eitt sigurstranglegt sóknarlið. Baráttan er rétt að byrja. Sjálf- stæðisflokkurinn stendur á tíma- mótum og það er mikil vinna fram- undan. Við þurfum að endurvinna traust kjósenda, fara vel yfir fortíð- ina og marka skýra stefnu til fram- tíðar um leið og við endurvekjum þau gömlu gildi sem mótað hafa grunninn að sjálfstæðisstefnunni. Umfram allt þurfum við að hlusta á grasrótina og standa saman, nú sem aldrei fyrr. Ég mun stolt taka þátt í þeirri bar- áttu sem framundan er og hvergi draga af mér í þeirri vinnu. Takk fyrir mig. Ragnheiður Elín er þingmaður og skipar efsta sœtið á lista sjálf- stœðismanna í Suðurkjördœmi. Að loknu próf- kjon Qrein Unnur Brá Konráðs- M dóttir skrifar: Skipar 3. sæti Sjálf- stœðisflokks. % **»># Agætu stuðningsmenn Eg vil þakka ykkur kærlega fyrir stuðninginn í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins síðastliðinn laugardag. Það er ánægjulegt að finna fyrir þeim hlýhug og samheldni sem ríkir meðal sjálfstæðismanna í kjör- dæminu. Listinn hefur verið valinn og vindur sér nú í það verkefni að tryggja að stefna Sjálfstæðisflokksins hljómi hátt og skýrt í kosningabaráttunni. Ég hlakka til þeirrar baráttu og þess að eiga enn meiri samskipti við íbúa kjördæmisins í fram- tíðinni. Meðframbjóðendum mínum þakka ég drengilega baráttu og þeim sem lögðu mér lið í bar- áttunni þakka ég ómetanlega aðstoð. Unnur Brá Konráðsdóttir evropu samvinna Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi Conero Skólavegi 1, Vestmannaeyjum 25. mars kl. 13-16 Fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrlfstofa standa fyrir kynningu á styrkja- og samstarfsmöguleikum á vegum evrópskra áætlana. Kjöriö tækifæri fyrir einstaklinga, skóla, fyrirtæki, stofnanir og samtök að kynna sér möguleika til samstarfs á flestum sviðum menntunar, menningar og atvinnulífs Áætlanir sem kynntar verða: www.evropusamvmna.is Iðnaðarráðuneytið Menntamálaráðuneytið ^ Byggðastofnun Eg óttast sumarlokun á skurðstofunni Qrein Sigrún Ama Gunnars- dóttir skrifar: Höfundur er búsett í Eyjum og von á sér. / Mig langar að taka undir og er sammála því sem Þóra segir frá í Fréttum fyrir stuttu. Ég á von á mínu fyrsta bami í byrjun júlí, áætlaður fæðingardagur frumburðar míns er 7. júlí nk. Ég er full tilhlökkunar, líður vel á með- göngunni og allt er eins og best verður á kosið. Nema.. nú var ég að fá þær fréttir að skurðstofan á Heilbrigðisstofnuninni verður lokuð frá I. júní til 20. júlí í sumar, sem sagt akkurat á því tímabili sem ég vænti þess að fæða barnið mitt. Fyrir mig þýðir það að ég þarf fæða bamið mitt í Reykjavík þar sem ekki þykir nógu öruggt að fæða hér ef grípa þyrfti inn í þar sem engin starfsemi er á skurðstofunni á þessum tíma. Ég þarf að fara til Reykjavíkur þegar ég verð gengin 38 á vikur, þ.e þann 23 júní og „bíða“ í Reykjavík og það vita allir að þó fæðingardagurinn sé áætlaður 7. júlí getur fæðingin dregist um 2 vikur sem gæti þá þýtt a.m.k. 4 vikna viðveru í Reykjavík. Ég er heppin að ég á góða að og hef góða aðstöðu í höfuðborginni en það hafa ekki allir. Ef ég og unnusti minn viljum vera útaf fyrir okkur þá verðum við að útvega okkur húsnæði á eigin kostnað sem er dýrt. Unnusti minn og bamsfaðir kemur til með að vinna í Vestmannaeyjum í sumar en hann hefur stundað nám í Reykjavík síðast liðna vetur. Þetta þýðir því tekjuskerðingu fyrir okk- ur á þessum tíma. Þetta eru ekki fréttir sem ég vildi fá og em ekki til að auka gleði mína á meðgöngunni og tilhlökk- unnar til fæðingarinnar. Hér er ég í mæðraskoðun hjá frábærum ljós- mæðmm sem mér finnst gott að tala við og treysti fullkomlega og finnst ég hafa myndað tengsl við og hefði því mjög gjaman vilja hafa þær áfram í fæðingunni og sængur- legunni En nú er það ekki lengur í boði heldur á ég von á að ljósmóðir sem ég hef aldrei hitt eða talað við, taki á móti baminu mínu og jafnvel að það verði fleiri en ein ljósmóðir sem kemur að fæðingunni. Ég veit líka að hér í Vestmannaeyjum er gott að liggja á sæng. Hef ég séð það með eigin augum að starfsfólk- ið hér er allt meiriháttar og gerir sængurleguna ánægjulega og vill allt fyrir sængurkonumar gera. Því þykir mér ekki spennandi að fara að fæða í Reykjavík þar sem allt er frekar ópersónulegt. Ég er ekki að setja út á sængur- kvennadeildina í Reykjavík en hún er svo miklu milku stærri og því eru ekki þessi persónulegu tengsl eins og hér í Eyjum þar sem „allir þekkja alla“. Annað ... á tímabilinu frá 1. júní og þar til áætlað er að ég fari til Reykjavíkur, þ.e. þessar 3 vikur þá er meðgöngulengd mín 35 til 38 vikur. Það vita allir að blessuð bömin koma í heiminn á mismun- andi tíma þannig að á viku 35 til 38 er engin starfsemi á skurðstofunni í Vestmannaeyjum. Því get ég ekki séð annað en að ég búi hér við falskt öryggi?- Hvað ef ég fer á stað í fæðingu á 36. viku og það er ófært með flugi? Þetta er ekki uppörvandi fyrir verðandi móður, fmmbyrju og ekki til að auka vellíðan hennar á með- göngunni, frekar til að auka kvíða, sem konur eiga nú helst að vera lausar við á þessum tíma og njóta megöngunnar kvíða og áhyggju- lausar. Em þetta Eyjamar sem eiga að laða ungt fólk til sín, Eyjamar sem ungt fólk á að byggja upp ala upp böm sín og líða vel í þessu sam- félagi? Er ekki Heilbrigðisstofn- unin hér það öryggi sem við bæjar- búar eigum að geta verið ömgg með allan ársins hring? Verðandi mæður annarstaðar á landinu geta í flestum tilfellum keyrt til Reykjavíkur til að fæða bam sitt, þurfi að koma til þess. Ég er viss um að verðandi mæður á Selfossi eða Akranesi mundu ekki sætta sig við að þurfa að fara 2 vikum fyrir áætlaðan fæðingardag til Reykjavíkur og bíða þar. Ég geri mér líka fyllilega grein fyrir því að stundum kemur til þess að það þurfi að senda konur til Reykja- víkur til að fæða þó svo að full starfsemi sé hér á Heilbrigðisstofn- unni - en það er við ákveðnar að- stæður sem konur em sendar en ekki alltaf fyrirfram ákveðið að þær þurfi að fara til Reykjavíkur 2 vikum fyrir tímann. Énda held ég að allar konur mundu sætta sig við það ef það er móður og bami fyrir bestu. Én það er kannski ekki ásættanlegt þegar það er ákveðið fyrirfram af einhverjum pólitík- usum að loka fyrir þessa heil- brigðisþjónustu hér í Eyjum. Ég er ung kona full tilhlökkunnar að fara að eiga mitt fyrsta bam en ákvarðanir einhverra pólitíkusa hafa áhrif á líðan mína og vona ég að þeir fari aðeins að hugsa um hvemig svona ákvarðanir geta haft á fólk í Vestmannaeyjum. Mig langar að fæða bamið mitt hér á ömggan hátt, láta ljósmæður sem hafa hugsað um mig á meðgönunni, myndað tengsl við og treysti taka á móti baminu mínu, láta frábært starfsfólk hér hugsa um mig í sængurlegunni, fara HEIM TIL MÍN með bamið mitt. VEGNA ÞESS! AÐ ÉG BÝÍVEST- MANNAEYJUM OG HEF HINGAÐ TIL VERIÐ STOLT AF ÞVÍ AÐ VERA VESTMANNA- EYINGUR. Kveðja Sigrún Ama Gunnarsdóttir.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.