Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Blaðsíða 2
2 Fréttir / Fimmtudagur 11. nóvember 2010 Eignarhaldsfélagið Fasteign - Leiga miðast að hluta við gengi evru: Margítrekað reynt að losna -Ætíð verið of dýrt, segir bæjarstjóri sem var ósáttur við samninginn HAMARSSKÓLI Grunnskólarnir eru meðal eigna sem bærinn leigir af Fasteign. Viðskiptablaðið segir stöðuna erfiða í Viðskiptablaðinu er því haklið fram að sveitar- félög vilji losa sig út úr Eignarhaldsfélaginu Fasteign. Bygging Háskólans í Reykjavík (HR) hefur reynst Fasteign þung í skauti og segir Viðskiptablaðið að veruleg óvissa sé um hvort leigu- tekjur vegna hennar standi undir framkvæmda- kostnaði. Þá liggur ekki fyrir framtíðareignarhald HR og lóðar undir óbyggðar höfuðstöðvar Glitnis. Segir blaðið að það kunni að valda því að vafi leiki á rekstrarhæfi Fasteignar. Bókfært virði nýbyggingar milljarðar króna en óbyggðu eru sagðar þriggja milljarða HR er um 13,2 höfuðstöðvarnar króna virði. „Finnist ekki lausn á þessum málum á næstunni getur það leitt til þess að eigið fé Fasteignar fari undir það sem skilyrði lánasamninga félagsins um eiginfjárstöðu heimila. Ef það gerist geta lánar- drottnar Fasteignar gjaldfellt félagið og sett það í þrot kjósi þeir svo. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi Fasteignar,“ segir Viðskiptablaðið. „Nei, félagið er alls ekki komið að fótum fram þótt sannarlega glími það við erfiðleika. Vandinn nú er fyrst og fremst vegna samninga um HR en sá hluti sem snýr að eignarhaldi og leigu sveitarfélaga er í nokkuð góðu lagi. A meðan leigjendur eins og sveitarfélögin greiða leiguna sína samviskusam- lega þá lendir félagið ekki í vanda með þann hluta. Eftir því sem lánin hækka þá verður leigan einfaldlega hærri. Ráðandi hluti af leigunni er tengdur við gengi evru og þannig tryggir Fasteign sig gegn sveiflum en flytur gengisáhættuna yfir á sveitarfélögin. Vandinn er því sá að sveitarfélögin þurfa að skera niður þjónustu við íbúa til að mæta þess- um kostnaði," sagði Elliði Vignis- son, bæjarstjóri þegar hann var spurður um málefni Eignarhalds- félagsins Fasteignar sem Vest- mannaeyjabær er aðili að. „Vandinn er því sá að sveitarfé- lögin þurfa að skera niður þjónustu við íbúa til að mæta þessum kostn- aði. Eg sagði það 2004, þegar þá- verandi meirihluti V-lista og B-lista hóf undirbúning að samningum við Fasteign hf. og ég segi það enn, samningurinn við Fasteign hf. var ekki góður fyrir Vestmannaeyjabæ. Hugmyndafræðin var mér aldrei að skapi og það eru glettileg örlög að þurfa nú að gera það besta úr stöðu sem maður vildi ekki fara með sveitarfélagið í,“ sagði Elliði og bætti við aðspurður að margítrekað hefði verið leitað leiða tii að losna úr Fasteign. „Eftir að við seldum hlut okkar í HS höfum við sem kunnugt er verið að leita allra leiða til að bæta rekstur Vestmannaeyjabæjar. Við höfum greitt niður lán fyrir á þriðja millj- arð, breytt eignasöfnum okkar og ráðist í hvers konar hagræðingar- aðgerðir. Við fórum því nokkuð vel undirbúin inn í kreppuna. Það eina sem við gátum ekki gert breytingar á var samningurinn við Fasteign hf. Þar sátum við einfaldlega föst. Við höfum margítrekað leitað leiða til að losna út úr félaginu en það hefur ætíð verið of dýrt. Þegar meirihluti V-lista og B-lista valdi að selja Fasteign hf. eignir sínar börðumst við sjálfstæðismenn gegn samn- ingnum. Sjálfur varaði ég við ýmsum skilmálum samningsins og taldi að öll gengisáhætta og önnur áhætta lægi á Vestmannaeyjabæ sem leigutaka. Mér fannst rangt fyrir sveitarfélag að vera að taka gengis- áhættu, taldi samningin við Fasteign hf. dýran fjármögnunarkost og óttaðist að erfitt yrði að komast út úr samningnum. Því miður hefur þetta allt ræst. Við verðum engu að síður áfram að leita leiða til að gæta hagsmuna Vestmannaeyjabæjar í þessu og erum nú að skoða enn eina leiðina í þessu,“ sagði Elliði. Vestmannaeyjabær leigir stóran hluta fasteigna sinna af Fasteign ehf. eftir að hafa selt þær félaginu árið 2004. „Fyrsta heila árið sem þessar fasteignir voru leigðar eða árið 2005 námu leigugreiðslur 89 milljónum króna. Arið 2006 voru leigugreiðsl- ur 93 milljónir og árið 2007 109 milljónir. A árinu 2008 voru leigu- greiðslur komnar upp í 151,4 milljónir og 2009 voru þær alls 185,7 milljónir króna. Ástæðan er að leigan er að verulegum hluta tengd gengi krónu gagnvart evru. Á móti þessum leigugreiðslum hafa arðstekjur Vestmannaeyjabæjar numið um 35 milljónum króna árin 2005 til 2007 af eignarhlut sínum í Fasteign. Enginn arður var hins vegar greiddur af hlutafjáreign í Fasteign hf árið 2009,“ sagði Elliði. Samkvæmt nýjustu ársreikningum er hlutur Vestmannaeyjabæjar um 180 milljónir eða um 3,74% af heildarhlutafé félagsins (8,48% af virku hlutafé). Styrktarfélagstónleikar Lúðrasveitarinnar í Hvítasunnukirkjunni á laugardaginn: Var með gæsahúð allan tímann LÚÐRASVEITIN á tónleikunum. Bauð hún upp á fjölbreytta dagskrá. Stundum verður skrifari alveg óskaplega stoltur af því að vera Vestmannaeyingur. Það á einkum við ef okkar fólk hefur verið að gera góða hluti, svo sem í bolt- anum. Og það gerðist líka á laug- ardag, og ekki bara í boltanum. Skrifari fór nefnilega á tónleika hjá Lúðrasveitinni og var afskaplega ánægður og stoltur Eyjamaður á eftir. Kannski líka smávegis af því að honum er málið dálítið skylt. Þarna var fólk nefnilega að gera góða hluti. Skrifari hefur áður sagt frá því að forðum daga fór hann á lúðrasveit- artónleika aðallega af skyldurækni. Kannski var það lagavalið. Hér áður fyrr léku lúðrasveitir ætt- jarðarlög og þýska og ameríska marsa. Það þótti eiginlega ekki við hæfi að spila eitthvað annað, dægurlög og rokk, hvað þá klassísk músík, áttu einhvem veginn ekki heima þar, þó svo að Oddgeir heitinn hafi verið iðinn við að koma bæði sínum dægurperlum sem og annarra að hjá Lúðrasveit Vestmannaeyja. En nú em betri tímar. I dag fer skrifari ekki á tónleika hjá Lúðra- sveitinni af skyldurækni einni saman heldur aðallega af tilhlökk- un. Á laugardaginn gaf að heyra afrakstur af æfingum félaga í Lúðrasveitinni og þar fór lítið fyrir ættjarðarlögum og mörsum. Reyndar fengu marsamir sitt, eins og vera ber á lúðrasveitartón- leikum, í syrpu af fjómm frekar nýlegum mörsum sem flestir kann- ast við sem kvikmyndatónlist. Og auðvitað fylgdu lög Oddgeirs með eins og venja er. En svo var leitað fanga í ragtime, bandarískri trúar- tónlist svartra, harðri rokktónlist, mýkri rokktónlist, söngleikjatónlist, stórsveitatónlist, þjóðlagatónlist og ópemtónlist. Eitthvað sem ekki hefði þótt við hæfi fyrir nokkrum áratugum. Og útkoman: Alveg stórskemmtilegt prógramm sem stóð í tæpa tvo klukkutíma og sautján verk leikin, sum hver feikn viðamikil og krefjandi. Nær ævinlega er húsfyllir í Gamla Samkomuhúsinu á tónleikum Lúðrasveitarinnar og svo var einnig að þessu sinni. Áheyrendur skemmtu sér hið besta og hið sama má segja um þá sem voru uppi á sviði, það var greinilegt að þessir hátt í fimmtíu hljóðfæraleikarar höfðu afskaplega gaman af því sem þeir voru að gera. Af þessum hópi er u.þ.b. þriðjungur sem kalla má liðsstyrk við Lúðrasveit Vestmanna- eyja, bæði gamlir félagar úr LV sem halda tryggð við heimaslóð- imar þótt þeir búi annars staðar, og svo ákveðinn hópur sem hefur komið ár eftir ár til að taka þátt í þessum tónleikum. Það ágæta fólk segist alltaf hlakka jafnmikið til að mæta hingað. Einhvem tíma sagðist skrifari mæla ágæti hljómleika eftir því hve oft hann fengi gæsahúð af hrifningu yfir flutningnum. Að þessu sinni byrjaði gæsahúðin strax og komið var inn í salinn í gömlu Höllinni og hélst nær óslitið út alla tónleikana. Ekki af hrifningu held- ur af kulda. Húsið var nefnilega óupphitað og er slíkt varla boðlegt. Sem betur fer hafði skrifari vit á því að vera sæmilega klæddur og þetta slapp því fyrir horn hjá honum. En tæplega hjá öðrum sem voru minna dúðaðir. Nú veit skrifari ekki hverju það sætir að kynda ekki hús, eigendur þessa ágæta húss hafa reyndar á sinni stefnuskrá að vara mjög við þeim heita stað sem bíður þeirra sem ekki haga sér sæmilega í þessu jarðlíft. En skrif- ari efast satt að segja um að það komi þessum kulda nokkuð við. En í gegnum þessa föstu gæsahúð fyrir kulda sakir, fann skrifari nokkrum sinnum fyrir öðmvísi gæsahúð, gæsahúð sem yljaði honum, ekki síst í Faust eftir Gounod og þjóðlagaballöðunni Lord of the Dance, sem og Up- rising frá Muse, sem vom að hans dómi hápunktar tónleikanna. Sú jákvæða gæsahúð yfirvann fyllilega ónotin frá hinni og entist langt fram yfir sjálfa tónleikana. Sem varð til þess að skrifari hélt glaður og stoltur heim á leið, með þakklæti í huga til handa því ágæta fólki sem skipar Lúðrasveit Vestmannaeyja. Sigurg. -Gildran með útgáfu- tónleika í Eyjum: Vorkvöld Hin goðsagnakennda rokksveit, Gildran, fagnar nú útkomu nýrr- ar tónleikaplötu sem ber nafnið Vorkvöld. Sveitin heldur tvenna útgáfutónleika, fyrst í Austurbæ í Reykjavík á föstudaginn en daginn eftir munu þeir halda stórtónleika í Höllinni. Þann 1. maí síðastliðinn fagn- aði sveitin 30 ára afmæli en Gildran hélt afmælistónleika af því tilefni. Gildruna skipa þeir Birgir Haraldsson söngvari og gítarleikari, Karl Tómasson, trommari, og Þórhallur Árnason, bassaleikari. Þá hefur Sigurgeir Sigmundsson, gítarleikari og fyrrum Eyjamaður, verið með sveitinni síðustu 20 ár og hljóm- borðsleikarinn Vignir Stefánsson verður með þeim félögum um helgina. Gildran hefur alls gefið út sex hljómplötur, Huldumenn, Hugarfóstur. Gildran, Ljósvaka- leysingjar, Út og Gildran í 10 ár. Vorkvöld er því sjöunda plata þeirra en um leið fyrsta hljóm- leikaplata sveitarinnar. Karl sagði í samtali við Fréttir að Vestmannaeyjar hafi alltaf verið ofarlega í huga Gildr- unnar. „Eyjar hafa alltaf verið í uppáhaldi hjá okkur félögunum enda höfum við alltaf fengið mjög góðar móttökur þama. Við viljum auðvitað halda tryggð við okkar fólk og hlökk- um óskaplega mikið til að koma. Þetta verður auðvitað svakalegt „show“, með tilheyr- andi ljósasýningu og við tjöld- um öllu til. Við höfum oft spil- að í Eyjum og ekki eingöngu sem Gildran. Við vorum einnig með minni útgáfu af sveitinni, 66, og spiluðum oft í Eyjum og komum sömuleiðis með Creedence Clearwater Revival sýninguna til Eyja. En þetta eru alvöru tónleikar og ég bendi fólki á að forsala miða er á Volcano Café fram að helgi,“ sagði Karl en miðinn í forsölu kostar 2.500 kr. Á 60 ára ártíð Næstkomandi mánudag 15. nóvember eru 60 ár liðin frá andláti eins virtasta ljósmyndara í Vestmannaeyjum, Kjartans Guðmundssonar. Af því tilefni verða myndir Kjartans til sýnis í anddyri Safnahússins frá mánudeginum 15. nóv. til laugardagsins 20. nóv. Á laugardeginum 20. nóv. verður jafnframt efnt til dagskrár til heiðurs Kjartani sem nánar verður auglýst í næstu Fréttum. Röng mynd I síðustu viku birtist röng mynd með frétt af væntanlegu konukvöldi Volare. Myndin var sögð af konukvöldi sem fyrirtækið hélt í fyrra en var tekin af sams konar kvöldi í Geisla. Mistökin voru eðlileg því Guðmunda í Volare og Eydís, tengdadóttir hennar, voru á myndinni. Er beðist velvirðingar á þess- um mistökum. ttgefandi: Eyjasýn chf. 480Í178-054!) - VestmaSnaeyjum. Hitetjóri; Ómar GarSarsson. Blaðamenn: Guðbjörg Sigurgeirsdóttir og Júlíus lngason. ÁbyrgSarmenn: Ómar Gardars- son & Gísli Valtýsson. Prentvinna; Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetnr ritstjómar: Strandvegi 47. Símar: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1393. Netfang/rafpóstnr frettir@eyjafrettir.is. Veffang: http/Avww.eyjaii'ettir.is FRÉTTIB koma út alla fimintndaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Toppnum, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Kiónunni, Isjakanum, verslun 11-11 og Skýlinu í Friðarböfn.. FRÉTTTB eru prentaðar í 9000 eintökimi. FRÉTi'IB eru aðilar að Samtökum bæjar- og béraðsfréttablaða Eftirprentun, bljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óbeimilt nema heimilda sé getið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.