Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Blaðsíða 23

Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Blaðsíða 23
Fréttir / Fimmtudagur 11. nóvember2010 23 Eimskipsbikarinn - 16 liða úrslit: B-lið ÍBV tekur á móti íslandsmeisturum Hauka Draga fram tívolíbomburnar - B-liðið lofar alvöru flugeldasýningu. - Birkir ívar hlakkar til að mæta sínum gömlu félögum FLOTTIR. Strákarnir í B-liði ÍBV taka á móti íslandsmeisturuni Hauka á laugardaginn en í liði Hauka má finna Eyjamanninn Birki Ivar Guðmundsson. Á laugardaginn verður sann- kallaður stórleikur í 16-liða úrslit- um Eimskipsbikarsins þegar B-lið IBV tekur á móti sjálfum Islands- meisturum Hauka. Leikur liðanna fer fram í Eyjum og ætla Eyja- menn að tjalda öllu því til sem þeir eiga. Þannig munu þeir mæta til leiks aftur þeir Guð- finnur Kristmannsson og Erlingur Richardsson en nýjasta vopnið í vopnabúrinu er bolta- hrellirinn Sigmar Þröstur Oskarsson. Unnendur hand- boltans ættu því ekki að láta sig vanta í Iþróttamiðstöðina á laugardaginn klukkan 15:00. Islandsmeistararnir tefla ekki fram jafn sterku liði og þeir gerðu áður en Haukar misstu nokkra af sínum sterkustu leikmönnum eftir tímabil- ið, m.a. Eyjamanninn Kára Kristján Kristjánsson, línumanninn sterka. En í herbúðum þeirra má þó enn finna Eyjamann, markvörðinn Birki Ivar Guðmundsson, sem mætir því læriföður sínum, Sigmari Þresti, í fyrsta sinn í ansi mörg ár. „Þetta er frábært og sérstaklega gaman fyrir mig að mæta þessum karlgreyjum,“ sagði Birkir ívar í samtali við Fréttir. „Eg var einmitt á bikardrættmum og óskaði þess að mæta B-liði ÍBV þannig að þetta var sannkallaður óskadráttur fyrir mig.“ En verður þetta ekki ójafnt? Á dögunum fögnuðu íþrótta- félagið Framherjar, sem áður hét Amor, og Knattspyrnufélagið Smástund 20 ára afmæli beggja félaganna. Liðin hafa síðustu ár leikið sameinuð undir merkjum KFS, lengst af í 3. deild en um tíma í 2. deild. Af þessum 20 árum, hefur Hjalti Kristjánsson, læknir og knattspyrnuþjálfari, unnið fyrir Framherja og síðar sameinað félag í heil 18 ár. Flestir eru sammála um að án Hjalta, væru félögin hvorki fugl né fiskur enda sér hann um flest það sem snýr að félaginu, þjálfun, skipu- lagningu og fjáröflun. Hjalti svaraði nokkrum spurningum blaðamanns Frétta rétt áður en hann skaust upp í þotu Icelandair. Hvernig kom það til að þú fórst að þjálfa Framherja? „Magnús Bragason bað mig um að koma og taka við af Óla „hundrað- karli,“ sagði Hjalti. „Ég hafði áður komið að þjálfun í kvennahandbolta í yngri flokkum í Keflavík. Sem ieikmaður varð ég Reykjavíkur- meistari í 2. flokki karla í handbolta en í fótboltanum hafði ég spilað upp í gegnum yngri flokka ÍBK. Auk þess lék ég með Ármanni, Leikni F. og Tortuna í Svíþjóð. Þar unnum við 4. deildina tvö ár í röð.“ Af hverju var ákveðið að sameina Framherja og Smástund? „Þetta var þannig að Smástund hafði getuna en við í Framherjum æfðum og höfðum meira skipulag í félaginu okkar. Gísli Hjartarson, Heimir Hallgrímsson og Magnús Steindórs- son hringdu í mig eftir tímabilið 1997 og vörpuðu fram þessari hugmynd. Það var upplagt að sameina þessi tvö félög í eitt sterkt." Hjalti segir að starfsemin gangi vel en rekstur félagsins er fjármagnaður „Það eru nú nokkrar kempur þama og kannski ágætt að enginn í Haukum veit hver Nonni Loga er. Annars væm þeir töluvert hræddari en þeir eru. En ég býst alveg við erfiðum leik, svona fyrstu 10 mínút- umar.“ Birkir Ivar hefur væntanlega spilað með flestum ieikmönnum B-liðsins en segir það sérstaklega skemmti- legt ef sinn gamli lærifaðir Sigmar með getraunastarfsemi sem Hjalti sér um. „Tipparar hafa verið okkur mjög jákvæðir en ég bendi á að getraunanúmer KFS er 904. Tekjur félaganna lækkuðu hins vegar ný- lega úr 33% í 22% af seldum miðum og munar mikið um það. Breyttar samgöngur í Landeyjahöfn gætu hins vegar vegið á móti í útgjöldum félagsins. Annars leggur fólk um það bil fimm þúsund krónur í einn hópleik sem er í 10 vikur. Ég tippa fyrir það og geri svo upp eftir hópleikinn. Áhugasamir þurfa aðeins að hringja í mig ef þeir vilja styðja við okkur.“ Umgjörðin svipuð og áður Umgjörð félagsins hefur hins vegar ekki breyst mikið á þessum 18 árum sem ég hef verið með liðið en saml að einhverju leyti. Við erum alltaf með getraunafréttir vikulega og leikskrár fyrir hvem leik. Óðinn Steinsson, formaður félagsins, hefur hangið með mér megnið af þeim tíma sem ég hef verið hjá félaginu." Þröstur verður með. „Ég fagna því innilega. Ég er auðvitað búinn að grafa upp gömlu gulu buxurnar mínar og verð í þeim. Ég tek með auka gular buxur ef Simmi er búinn að týna sínum.“ Og eru það svo stuttbuxurnar í seinni hálfleik? „Nei, ég er nú ekki svo klikkaður," sagði Birkir Ivar og hló. „En eins og ég segi þá verður þetta Hvernig gengur að manna liðið? „Það er orðið erfiðara en áður enda mun færri hér í Eyjum. Við urðum að taka ppp æfingar í Reykjavík fyrir nokkrum árum en samstarfið við IBV um leikmenn eykst jafnt og þétt.“ Flest lið keppast um að komast upp um deild. KFS leikur í riðla- skiptri 3. deild en í 2. deild eru liðin dreifð út um allt land og sjö af tólf liðum eru ekki á Suðurlandi eða höfuðborgarsvæðinu. En þrátt fyrir það segir Hjalti að það sé spennandi að komast upp. „Sérstaklega fyrir unga og efnilega leikmenn hjá IBV því ef við kæmumst upp, fengju þeir sterkari deild til að spila í ef þeir koma til okkar í lengri eða styttri tíma. Þeir myndu bæta sig meira á því.“ Sigurinn í 3. deild stendur upp úr Hvað stendur upp úr eftir 18 ára þjálfaraferil hjá Framherjum/KFS? „Það er sigurinn í 3. deild 2002 og fyrst og fremst skemmtilegt og sérstaklega fyrir mig auðvitað. Ég trúi því og treysti að karlarnir lemji aðeins frá sér. Peyjarnir sem eru með mér í Haukum hafa bara gott af því. Svo getur þú sagt Nonna Loga að Dagur Sigurðsson sé ennþá í Þýskalandi þannig að hann getur geymt boxhanskana heima hjá sér,“ sagði Birkir að lokum. frábær árangur á þeim tíma. Við erum að ná þessu upp aftur eftir lægð í nokkur ár eftir 2. deild.“ Nú ertu einn harðasti Man. Utd. aðdáandinn, varst með merki félagsins á húddinu á bílnum þínum ef ég man rétt. Ertu að reyna slá Ferguson við með því að þjálfa lengur en hann ? „Nei, en Ferguson er þó helsta fyrirmyndin. Nýtt knattspymuhús hér myndi hins vegar eyða öllum vafa um framhaldið. Einnig árangur U-21-landsliðsins sem hvetur mig mjög til dáða almennt. Batnandi árangur KFS sl. 2 ár hvetur mig líka áfram. Loks langar mig að slá leik- mannametið í deildakeppni karla og spila 54 ára deildaleik. Það em þrjú ár í það og vil gjarnan vera mönnum fyrirmynd með það. Aldur er afstæður og ég vona að mér takist að sýna fólki það. Ég hef sett stefnuna á að þjálfa KFS í það minnsta næstu þrjú árin.“ Hefur aldrei komið til greina hjá þér að taka að þér þjálfun t.d. hjá ÍBV? „Jú, þó bara meistaraflokk karla, en ég hef ekki verið beðinn um það.“ KFS í 1. deild eftir 10 ár Af hverju eiga menn að œfa hjá KFS? „Það er andlega og félagslega gef- andi og menn geta átt skemmtilegan ferii þar, þótt þeir hafi ekki getu eða tíma til að vera með ÍBV á toppnum. Leið margra inn í þjálfun og stjómarstörf hjá IBV hefur legið í gegnum okkar starf. Mikið gáfu- legra að æfa með okkur en að hanga á pöbbunum um helgar. Reyndar gera sumir hvort tveggja, en spila þá minna.“ Hyar sérðu KFS eftir 10 ár? „I mínum villtustu draumum er KFS komið í 1. deild," sagði Hjalti að lokum. íþróttir ÍBV á toppinn Karlalið ÍBV er komið á topp 1. deildar eftir að hafa lagt ung- mennalið FH að velli í Hafnarfirði um helgina en Hafnfirðingar hafa verið á toppnum það sem af er vetri. Lokatölur urðu 27:28 en staðan í hálfleik var 12:15. ÍBV er nú með 10 stig í efsta sæti en IR og Grótta koma næst með 9 stig og Stjaman og FH U með 8. Vignir Stefánsson var markahæstur með 9 mörk, Theodór Sigurbjörnsson skoraði 5 og Birkir Már Guð- bjömsson 4 en þess má geta að Vignir hefur nú skorað yfir 200 mörk fyrir IBV. Þá varði Kolbeinn Amarson yfir 20 skot í leiknum. Eyjamenn taka svo á móti Víkingi á laugardaginn í næstu umferð deild- arinnar. Magnaður endasprettur Kvennalið ÍBV átti hreint magn- aðan lokasprett gegn HK á heimavelli á iaugardaginn. Útlitið var ekki gott í upphafi síðari hálfleiks þegar HK breytti stöð- unni úr 13:16 í 14:21. En með mikilli baráttu tókst Eyjastúlkum hið ómögulega og undir lok leiksins vom þær líklegri til að fara með sigur af hólmi. Guðbjörg Guðmannsdóttir kom ÍBV í 27:26 þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir af leiknum og við tóku æsi- spennandi lokamínútur þar sem HK náði að jafna úr vítakasti þegar tæp hálf mínúta var eftir. Loka- tölur urðu því 27:27 en Eyjastúlkur geta nagað sig f handarbökin að hafa ekki byrjað betur í leiknum. Guðbjörg Guðmannsdóttir skoraði 9 mörk í leiknum og Ester Ósk- arsdóttir 6 en Heiða Ingólfsdóttir varði alls 20 skot, þar af eitt víti. Ungur Selfyss- ingur í ÍBV Einn efnilegasti leikmaður Selfoss í suntar, Guðmundur Þórarinsson, skrifaði undir árs samning hjá ÍBV í síðustu viku. Guðmundur lék 16 leiki fyrir Selfyssinga í sumar og skoraði eitt mark en hann er aðeins 18 ára gamall. Guðmundur lék ýmist á vinstri kantinum eða sem vinstri bakvörður en hann hefur verið fastamaður í leikmanna- hópum yngri landsliða Islands í knattspymu. Framundan Fimmtudagur 11. nóvember Kl. 16:00 Afturelding2-ÍBV 3. flokkur karla. Laugardagur 13. nóvember Kl. 13:00 IBV-Víkingur 1. deild karla. Kl. 16:00 ÍBV 2- Haukar Eimskipsbikar karla. Kl. 13:00 Fram-ÍBV N1 deild kvenna. Kl. 13:00 Reynir S. - ÍBV 2. deild karla, körfubolti. Kl. 15:00 ÍBV-Valur 4. flokkur karla A-lið. Kl. 15:30 Grótta B-ÍBV B 4. flokkur kvenna, bikar. Kl. 16:15 ÍBV-Haukar 2 4. flokkur karla, B-lið. Sunnudagur 14. nóvember Kl. lLOOFram 1-ÍBV 3. flokkur kvenna. Kl. 11:30 ÍBV-Valur 4. flokkur karla, bikar. Kl. 13:00 ÍBV-Valurl 2. fiokkur karla. Kl. 14:00 Grótta-ÍBV 4. flokkur kvenna. IKnattspyrna: 20 ára afmæli KFS Toppurinn var að vinna 3. deildina - segir Hjalti Kristjánsson, þjálfari, framkvæmdastjóri, búningastjóri og getraunastjóri KFS - Hefur séð um félagið í 18 ár og stefnir á að gera það í það minnsta þrjú ár í viðbót HJALTI Krist jánsson, lengst til vinstri, ásamt leikmanni ársins hjá KFS, Antoni Rafni Jónassyni og Óðni Steinssyni, formanni félagsins.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.