Fréttir - Eyjafréttir - 11.11.2010, Blaðsíða 8
8
Fréttir / Fimmtudagur 11. nóvember2010
Sunlendingar mót-
mæla niðurskurði:
Hópakstur
með undir-
skriftalista
Sunnlendingar munu safnast
saman við sjúkrahúsið á Selfossi
kl. 14:30 í dag, fimmtudag, og
aka þaðan fylktu liði með undir-
skriftir til Reykjavíkur þar sem
þær verða afhentar ráðherrum við
Alþingishúsið.
Mikill kraftur og samhugur er
meðal Sunnlendinga í baráttunni
gegn blóðugum niðurskurði í
heilbrigðisþjónustunni á lands-
byggðinni. Undanfarna daga
hefur verið safnað undirskriftum
meðal fbúa á Suðurlandi undir
mótmælaskjal þar sem áform-
uðum niðurskurði er mótmælt og
skorað á ríkisstjóm og Alþingi að
tryggja að sjúkrahúsunum á
Selfossi, Vestmannaeyjum og
Höfn verði ekki lokað eins og
ætlunin er með fyrirliggjandi
fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011.
Akveðið hefur verið að afhenda
forsætis-, heilbrigðis- og fjár-
málaráðherra undirskriftalista
með mótmælum íbúa á Suður-
landi við Alþingishúsið á fimmtu-
daginn 11. nóvemberkl 16.00.
Sunnlendingar munu safnast
saman við sjúkrahúsið á Selfossi
klukkan 14:30 á fimmtudag og
aka þaðan fylktu liði á fólksbílum
og langferðabílum til Reykja-
víkur.
Þetta er málefni sem snertir alla
Sunnlendinga - sýnum samstöðu
og mótmælum.
Samband sunnlenskra kvenna
Stéttarfélögin á Suðurlandi
Samtök sunnlenskra sveitafélaga
Búnaðarsamband Suðurlands
Atorka, félag atvinnurekanda á
Suðurlandi
Með því
rólegra hjá
lögreglu
Vikan var með rólegra móti hjá
lögreglu og ekkert um alvarleg
mál sem upp komu. Rólegt var í
kringum skemmtistaði bæjarins
og þurfti lögregla ekki að hafa
teljanleg afskipti af gestum.
Tvö umferðaróhöpp voru til-
kynnt lögreglu í vikunni en í
báðum tilvikum um minni háttar
óhöpp að ræða.
Tvær kærur liggja fyrir vegna
brota á umferðarlögum, í öðru
tilvikunu var skráningarnúmer
tekið af bifreið vegna vanrækslu á
að greiða lögbundnar tryggingar
en í hinu tilvikinu var um að ræða
árekstur þar sem sá er tjóninu olli
tilkynnti ekki um óhappið.
Lögreglan vill minna gangandi
vegfarendur á að nota endur-
skinsmerki og hvetur foreldra
sérstaklega til að láta böm sín
bera endurskinsmerki enda hefur
notkun þeirra sýnt að slysum
fækkar.
Bæjarráð:
Frjálsar í fjöl-
nota íþróttahús
Bæjarráð tók fyrir erindi frá
Ungmennafélaginu Óðni þar sem
óskað er eftir því að komið verði
fyrir stokkum í fjölnota íþrótta-
húsi til að hægt verði að iðka
þrístökk og langstökk þar en
áætlaður kostnaður er 400 til
500 þúsund krónur.
I bókun ráðsins kemur fram að
ráðið hafi lagt ríka áherslu á að
nýja íþróttahúsið við Hástein
nýtist sem best fyrir allar íþrótta-
greinar. „Frjálsar íþróttir hafa á
seinustu árum búið við verulega
takmarkaða aðstöðu og mun hið
BÚIÐ er að loka íþróttahúsinu að mestu og verður það tilbúið til
notkunar á næstu vikum.
nýja hús því á margan hátt nýt-
ast þeim betur en flestum öðrum
greinum. I húsinu verður
kasthringur fyrir kúluvarp og
kringlukast, stökkgryfja fyrir
lang- og þrístökk, stangarstökks-
stokkur, fjórföld 60 mm hlaupa-
braut með start- og stoppsvæði
o.fl. Bæjarráð fagnar áhuga
forsvarsmanna frjálsíþrótta á því
að nýta aðstöðuna enn betur
enda Iiggur fyrir að íþróttasvæð-
ið við Hástein er framtíðarsvæði
til iðkunar frjálsra íþrótta.
I samræmi við þetta samþykkir
bæjarráð að viðkomandi búnaði
skuli komið fyrir í hinu nýja fjöl-
nota íþróttahúsi og felur um-
hverfís- og framkvæmdasviði að
gera viðeigandi ráðstafanir. “
Eyjamenn á Þjóðfundi - Jákvætt andrúmsloft - Margt kom á óvart:
Gæti orðið vegvísir til framtíðar
Tæplega þúsund manna þjóðfundur
fór fram í Laugardagshöll á laug-
ardag og kom með hugmyndir og
tillögur sem fulltrúar stjórnlaga-
þings eiga að hafa til skoðunar þegar
þeir fjalla um breytingar á
stjómarskrá. Fulltrúar á þjóðfundinn
vom valdir af handahófi úr þjóðskrá
og Vestmannaeyingar áttu þó
nokkuð marga fulltrúa á þjóðfund-
inum. Fréttir ræddu við þau Sigurð
Þ. Jónsson, Sæfinnu Sigurgeirs-
dóttur og Laufeyju Bjarnadóttur
sem sátu fundinn.
Sigurður Þ. Jónsson:
Aðferð til að
leysa ýmis mál
Sigurður Þ. Jónsson sat þjóðfundinn
á laugardag og segir hann hafa verið
þrælskemmtilegan og vel skipu-
lagðan
„Það kom mér mjög á óvart og ég
var hrifinn af vinnubrögðunum og
hvemig þetta prógramm var keyrt á
fundinum,“ sagði Sigurður en vill
ekki segja til um hvort þeir háu
herrar sem fá þessar hugmyndir f
hendur taki mark á þeim. „Það var
unnið vel og skipulega. Strax um
morguninn hófst hugmyndavinna og
svo er síað úr og þær hugmyndir
sem flestir aðhyllast eru inni. Þetta
byrjaði mjög vítt og þrengdist síðar.
Ég hélt að umsjónarmaður hvers
borðs yrði svolítið ráðandi en það
var ekki. Það var tekinn hringur um
hvert mál og ég varð ekki var við
neitt pex eða deilur. Menn unnu
þetta eins vel og þeir gátu og það
kom mér á óvart hvað þetta fór fram
í mikilli rósemd og friði.
Ég var með fólki á borði sem ég
hafði aldrei rætt við áður og kom
alls staðar af landinu. Mér fannst
hugmyndafræðin góð því hver og
einn hafði sína skoðun og engin
rökræða eða átök í gangi. Ég held að
með þessari aðferð væri hægt að
leysa ýmis mál og nýta t.d. í staðinn
fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu og
Alþingi getur svo nýtt niður-
stöðumar. Ég hefði verið tilbúinn í
annan dag ef ég hefði verði skárri í
skrokknum," sagði Sigurður en
hann og kona hans lentu í
óskemmtilegri reynslu þegar bíll
þeirra valt á Suðurlandsvegi
Eyjamaðurinn Hermann
Ingi í bókaútgáfu:
Kabbala-
Tæknifræði
handa sálinni
í byrjun október gaf Kabbalah á
Islandi út bókina, Máttur
Kabbala-Tæknifræði handa
sálinni.
Stofnandi og cigandi Kabbalah
SIGURÐUR: -Það kom mér mjög
á óvart og ég var hrifínn af
vinnubrögðunum og hvernig
þetta prógramm var keyrt á
fundinum.
deginum áður. „En þetta er þræl-
sniðugt og ég held að flestir hafi
verið mjög ánægðir með þetta, ég
gat ekki skynjað annað,“ sagði
Sigurður.
Sæfínna Sigurgeirsdóttir:
Komum að
málum sem
skipta miklu
„Þetta var alveg frábær fundur og
mikil samheldni og jákvæðni. Allir
gátu tjáð sig um það sem þeir vildu
og fundurinn var vel skipulagður.
En þetta var mikil vinna og maður
var gjörsamlega búinn þegar þessu
var lokið," sagði Sæfinna Sigur-
geirsdóttir einn fundarmanna á
þjóðfundi.
„Tveir stjómendur voru á fund-
inum og síðan borðstjórar. Við
fengum ákveðin mál til að ræða um
og gátum skrifað tillögur niður á
miða og síðan var kosið um bestu
tillögumar. Svo var þemavinna um
miðjan dag og þá fékk hvert borð
umfjöllunarefni.
Mitt borð fjallaði um valddreif-
ingu, ábyrgð og gagnsæi og allir
komu með sínar tillögur. Síðan fóm
allir frá borðinu nema einn, sem í
SÆFINNA: -Ég trúi ekki öðru en
að þeir sem sitja á stjórnlaga-
þinginu komi til með að skoða
þær ábendingar sem komu fram
á fundinum.
þessu tilfelli var ég, og aðrir komu
þá að borðinu. Það fólk kom með
sínar tillögur og þegar borðfélagar
mínir komu aftur var kosið um þær.
Við skrifuðum líka niður setningar
og sú setning sem fékk flest atkvæði
á mínu borði var á þá leið að
menntun og reynsla ráðherra í mál-
efnum ráðuneytis skipti máli,“ sagði
Sæfinna og tók fram að öll skipu-
lagning hafi verið til fyrirmyndar.
Heldur þú að tillit verði tekið til
niðurstöðu fundarins?
„Ég trúi ekki öðm en að þeir sem
sitja á stjómlagaþinginu komi til
með að skoða þær ábendingar sem
komu fram á fundinum. Fundar-
menn lögðu á sig mjög mikla vinnu
og þetta var rosalega gaman og fullt
af fólki frá Eyjum á fundinum. Ég
tók þetta mjög alvarlega enda fá
landsmenn þarna tækifæri til að
koma að málum sem skipta miklu,"
sagði Sæfinna að lokum.
Bragi og Laufey - Einu
hjónin:
Ahugaverður og
skemmtilegur
Hjónin Laufey Bjarnadóttir og
Bragi Ólafsson sátu þjóðfundinn á
laugardag en fulltrúar sem sátu
á íslandi er Eyjamaðurinn Her-
mann Ingi Hermannsson Vídó,
Kabbalisti, eigandi netverslunar-
innar www.kabbalah.is , tónlist-
armaður og formaður L-listans í
Garði. Hermann Ingi er sonur
Hermanns Inga úr Logum og
Finnu Vídó.
I fréttatilkynningu segir að
Máttur Kabbala sé metsölubók
eftir Yehuda Berg og er þýdd af
Atla Magnússyni rithöfundi og
þýðanda. Atli hefur þýtt margar
bækur sem teljast til heimsbók-
mennta, eins og t.d. Meistara
LAUFEY: -Heilt á litið fannst
mér fundurinn bæði áhugaverður
og skemmtilegur og þetta var
ógleymanlegur
dagur.
fundinn voru valdir af handahófi úr
þjóðskrá. „Mér líkaði mjög vel,
fyrirkomulagið var til fyrirmyndar
og þetta gekk allt mjög vel,“ sagði
Laufey en vildi ekki segja til um
hvort hún og Bragi voru einu hjónin
í hópi þingfulltrúa.
„Þetta barst í tal og við vorum einu
hjónin sem við vissum um á fund-
inum en ég þori ekki að fullyrða
neitt um það. Jákvæðni er það sem
mér dettur helst í hug til að lýsa
andrúmsloftinu á fundinum. Það var
mikið talað um framtíðina og skipst
á skoðunum og lífssýn en það voru
átta manns við hvert borð, fjórir
karlar og fjórar konur og mikið af
ungu fólki.“
Éannst þér þessi aðferð, þ.e. að
safna saman fólki til að ræða málin
virka?
„Já, svo framarlega sem það verður
tekið mark á því sem þama fór fram.
Fundinum var skipt upp í verkþætti
og búið að skipuleggja og tímasetja
allt fyrirfram. Vinnan gekk mjög vel
og þama kom fólk alls staðar af
landinu og ekkert neikvætt tal eða
tuð. Það var, eins og komið hefur
fram í fjölmiðlum, mikið talað um
auðlindir, náttúru, gildi mannsins,
siðgæði, jafnrétti, vald, valddreif-
ingu og gagnsæi. Heilt á litið fannst
mér fundurinn bæði áhugaverður og
skemmtilegur og þetta var ógleym-
anlegur dagur,“ sagði Laufey um
þjóðfundinn.
Jim, Nostromo og Innstu myrkur
eftir Joseph Conrad, Gatsby og
Nóttin blíð eftir F. Scott Fitz-
gerald ásamt fleirum.
Máttur Kabbala - Tæknifræði
handa sálinni er í raun handbók
sem útskýrir á auðskiljanlegan
hátt um hvað þessi forna viska
Kabbala er og kemur með endan-
leg svör við mikilvægustu spurn-
ingum um mannlega tilveru.
Bókin hjálpar þér að sjá hver þú
raunverulega ert, hvaðan þú
komst og hvers vegna þú ert hér.
Fréttatilkynning.